21.12.1956
Neðri deild: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (649)

6. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónason):

Á síðasta Alþ. var gerð ýtarleg grein fyrir því, að tollgæzlan byggi við óhæfa aðstöðu. Það er ekki hægt að annast tollgæzluna, svo að sæmilega fari, nema hún hafi svo mikil húsakynni, að hún geti tekið við heilum skipsförmum og afgreitt þá aftur frá sér og þannig gengið algerlega úr skugga um, að allt sé í lagi varðandi þá farma, sem koma til landsins. Þetta þarf að vera hægt að gera, a. m. k. alltaf af og til, en til þess að svo megi vera, þarf tollgæzlan að ráða yfir talsvert miklum húsakynnum. Það er keppt að því í öllum löndum, að þessi háttur geti orðið á hafður.

Við höfum undanfarið látið menn kynna sér í nágrannalöndunum, hvernig þessu er fyrir komið, og það hefur komið í ljós, að það er kostnaðarsamt að koma þessu fyrir á þann hátt, sem þarf að vera. Það er mjög erfitt að fá nægilegar fjárveitingar í þessu skyni. Við þekkjum það af reynslunni undanfarið, og höfum við þess vegna tekið upp þá till., sem hér liggur fyrir, að menn horfist nú í augu við þá staðreynd, að það þarf að kosta til tollgæzlunnar og ætla nú framvegis 1% af sjálfum tolltekjunum til þess að bæta aðstöðuna. Þetta mun margborga sig á allan hátt, að bæta tollgæzluna frá því, sem hún er nú. Það gefur meiri tekjur og minnkar um leið það ranglæti og misrétti, sem af tollsvikum leiðir.

Það er talað um, að þessi fjárhæð sé nokkuð há, en sannleikurinn er sá, að hún er þó mjög lág í hlutfalli við það verkefni, sem þarf að leysa, en á hinn bóginn ekki tilfinnanlegt skattþegnunum, ef staðið er að málinu á þennan hátt, sem hér er lagt til.

Það sýnist ekki vera óeðlilegt, þegar um tollgæzlukostnað er að ræða eða nánar stofnkostnað við aukna tollgæzlu, að þessi háttur sé á hafður. Á hinn bóginn vil ég ekki mæla með því, að þessi leið verði farin í sambandi við önnur verkefni, sem sé að leggja til ákveðna prósentu af tolltekjunum. Ég álít, að það sé rétt að nota þessa aðferð eingöngu að því er varðar kostnað við að byggja upp tollgæzluna sjálfa, en ekki aðra liði ríkisrekstrarins. Þess vegna mundi ég mæla á móti því, að þessi háttur yrði á hafður um aðra liði, og segi ég þetta í tilefni af því, sem hv. 1. þm. Reykv. (BBen) tók fram um lögreglustöð í Reykjavík.

Það er í athugun, að hve miklu leyti hagkvæmt geti talizt að sameina löggæzlu og tollgæzlu. Þeir menn, sem til þess voru settir af fjmrn. og dómsmrn. að skoða það mál sérstaklega, hafa ekki skilað endanlegu áliti, en það verður eftir því gengið, að þeir segi frá niðurstöðunni af athugunum sínum á því máli.

Ég vil nota tækifærið til þess að taka fram, að það hefur farið fram enn á ný á vegum fjmrn. athugun á tollgæzlunni og hvernig ástatt er um þau mál, og í tilefni af því, sem sú athugun hefur leitt í ljós, verður tollgæzlan aukin verulega á næstunni, og vona ég, að hv. Alþ. taki því vel, þótt af því kunni að leiða talsvert aukinn kostnað, en nauðsyn er brýn á því að bæta úr í því efni.