19.12.1956
Neðri deild: 35. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (657)
92. mál, útflutningssjóður o. fl.
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Það er rétt hjá hv. 1. þm. Reykv., að ríkisstj. hefur leitað samkomulags við stjórnarandstöðuna um að afgreiða þetta mál fyrir jól. Þetta var gert s. l. ár, og var þá gott samkomulag við stjórnarandstöðuna um að afgreiða málið á stuttum tíma. Í fyrradag bjóst ég við að geta afhent stjórnarandstöðunni með svipuðum hætti og gert var s. l. ár frumvarpið með grg. Frv. var hins vegar ekki tilbúið í gærmorgun, til þess að stjórnarandstaðan gæti hálft daginn fyrir sér til að athuga málið, og frv. var ekki tilbúið fyrr en milli kl. 4 og 5 og þá sent stjórnarandstöðunni, en grg. var ekki til fyrr en milli 10 og 11 og mun ekki hafa komið í hendur Bjarna Benediktssyni, hv. 1. þm. Reykv., sem gert var ráð fyrir að tæki við grg., fyrr en kl. 1l. Af þessum ástæðum höfum við ákveðið í ríkisstj. að óska eftir, að þessum fundi verði frestað til kvölds, til þess að nokkur tími sé fyrir þm. að athuga þetta mál. Ég geri að að engu atriði, hvort afbrigða er leitað nú eða í kvöld, og tel það ekki því máli skipta, að ég get vel fallizt á, að afbrigðanna sé leitað í kvöld.