19.12.1956
Neðri deild: 35. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (660)
92. mál, útflutningssjóður o. fl.
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Um leið og frv. þetta er lagt fyrir þessa hv. þingdeild, vil ég til viðbótar þeirri ýtarlegu greinargerð, sem málinu fylgir, segja nokkur orð um það almennt. Aðrir hæstv. ráðh. munu svo sennilega í þessum umr. gera skil þeim þáttum þessa frv., sem heyra undir þeirra verkahring.
Ég geri jafnvel ráð fyrir, að sumir muni svo mæla, að mál þetta hefði átt að koma fyrr fram og það sé síðbúið. Ég hygg þó, að þeir, sem bezt til þekkja og vita, við hvaða erfiðleika nú er að stríða í framleiðslumálum þjóðarinnar, muni naumast hafa getað gert ráð fyrir, að það kæmi fyrr fram. Það hefur þurft að leysa þetta sama vandamál svo að segja við hver áramót, og þótt viðfangsefnin hafi verið mun minni en nú, hefur þá stundum dregizt talsvert fram yfir áramót að leggja fram frv. um úrlausn málsins hér á Alþ., til mikils fjárhagslegs tjóns fyrir þjóðina. Erfiðleikar framleiðslunnar hafa stöðugt farið vaxandi, og þeir hafa áreiðanlega aldrei verið meiri en á þessu ári. Af þeim ástæðum einum er málið allt enn vandasamara viðfangs en það hefur nokkurn tíma verið fyrr. En jafnframt hefur það kostað mikla vinnu og mikinn tíma að ræða við þá aðila, sem hér eiga einna mestan hlut að máli.
Ríkisstj. hefur rætt þetta mál við stjórn Alþýðusambands Íslands og fjölmenna nefnd fulltrúa, er síðasta þing Alþýðusambands Íslands valdi til þess að ræða þessi mál við ríkisstj. Stjórn Stéttarsambands bænda og framleiðsluráð landbúnaðarins hafa haft þetta mál til meðferðar. Málið hefur verið rætt og um það samið við sjómenn á togurum og sjómenn á bátum. Það hefur verið rætt við stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, bátaútvegsmenn, togaraeigendur og frystihúsaeigendur. Allt hefur þetta verið gert til þess að reyna að samræma sjónarmiðin.
Ríkisstj. telur, að þessar viðræður hafi borið þann árangur, að vel hafi tekizt og friðsamleg lausn þessa stóra vandamáls sé tryggð með samtökum framleiðslustéttanna og launþega í framkvæmd. Það er því sannfæring ríkisstj., að þeim tíma, sem varið hefur verið til þess að ræða lausn þessara mála við framangreinda aðila, hafi verið mjög vel varið, og tryggt sé, að þrátt fyrir þessar nauðsynlegu tafir geti frv. þetta fengið samþykki næstu daga, þ. e. a. s. nægilega snemma til þess, að framleiðslan geti haldið áfram með fullum rekstri og ekki komi til þeirra stöðvana, sem stundum hafa orðið afleiðingar þeirra aðgerða í efnahagsmálum, sem gerðar hafa verið á undanförnum árum.
Með þessum nýju vinnubrögðum telur ríkisstj. mikið unnið, því að það er stórt hagsmunamál fyrir þjóðina, að framleiðslan þurfi ekki að stöðvast.
Það kemur áreiðanlega engum á óvart, að frv. þetta er flutt. Allir, sent fylgzt hafa með hraðvaxandi verðbólgu á síðustu árum og hrörnandi hag framleiðslunnar fljótlega eftir að síðustu bráðabirgðaráðstafanir voru gerðar, munu hafa gert sér ljóst, að hjá stórfelldum ráðstöfunum varð ekki komizt til þess að fyrirbyggja algerða stöðvun útflutningsframleiðslunnar og koma í veg fyrir þær ægilegu afleiðingar, sem það hefði haft í för með sér.
Nokkru eftir að núverandi ríkisstj. tók við völdum, fékk hún þekktan erlendan hagfræðing til þess ásamt íslenzkum hagfræðingum að rannsaka hag framleiðslunnar. Varð niðurstaðan sú, að til þess að útflutningsframleiðslan gæti haldið áfram, þyrfti að flytja yfir til hennar með einhverju móti um 500 millj. kr., þar með talið það fjármagn, sem varið hefur verið með bátagjaldeyri og úr framleiðslusjóði henni til aðstoðar. Við enn nánari athugun ýmissa íslenzkra hagfræðinga og sérfróðra manna hefur niðurstaðan orðið svipuð á tekjuþörfum ýmissa greina útflutningsframleiðslunnar. Auk þess hefur tekjuþörf ríkissjóðs vaxið vegna vaxandi verðbólgu. Það er ekki auðvelt verk að afla þessa fjár, án þess að það komi við hag margra. En þetta er það vandamálið, sem núverandi ríkisstj. þurfti að mæta, og ekki varð í kringum það komizt. Ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið á undanförnum árum, hafa einatt reynzt bráðabirgðaráðstafanir í framkvæmd. Bent hefur verið á, að ein meginorsök þess hafi verið sú, að ráðstafanirnar hafi verið gerðar án samráðs við vinnustéttirnar. Reyndin hefur því orðið sú, að ýmsar þeirra hafa snúizt gegn þeim, þær hafa talið þær andstæðar hagsmunum sínum, vegna þess að eigi hefðu samtímis verið gerðar ráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna.
Afleiðingarnar hafa orðið þær, að dýrtíðin hefur aukizt hröðum skrefum, hagur útflutningsframleiðslunnar farið versnandi og þurft hefur að gera nýjar ráðstafanir við hver áramót.
Núverandi ríkisstj. tók við völdum með því fyrirheiti að reyna að stöðva verðbólguna í samráði og samstarfi við launþega, bændur og aðra vinnandi framleiðendur og velja leið eða leiðir til þess að koma í veg fyrir stöðvun framleiðslunnar í samráði við þessar stéttir, til þess að reyna að skapa gagnkvæmt traust milli ríkisstj. og stéttanna og til þess að ríkisstj. og þær gætu ráðizt sameiginlega gegn vandanum í stað þess að standa í deilum.
Eitt af fyrstu verkum þessarar ríkisstj. var að ná samkomulagi við bændur og launþega um það, að þeir féllu frá hækkun kaupgjalds og afurðaverðs, sem þeir áttu samkvæmt samningum og lögum. Þetta samþykki fékkst með því skilorði, að gerðar yrðu ráðstafanir til þess, að verðlag hækkaði ekki almennt til næstu áramóta og að kaupmáttur launanna yrði ekki rýrður, meðan leitað væri að lausn í þeim málum, sem hér liggja fyrir. Þetta hefur tekizt, og mun það almenn skoðun landsmanna, að þetta fyrsta spor hafi verið til mikils gagns, Það orkar ekki tvímælis, að ef kaupgjaldið og afurðaverðið hefði hækkað, — það var alveg óumflýjanlegt, ef ekki voru ráðstafanir gerðar, — og ef þessar ráðstafanir hefðu ekki verið gerðar, hefði útflutningsframleiðslan verið miklum mun verr á vegi stödd og málefni hennar jafnvel verið lítt leysanleg nú.
Eins og frv. ber með sér, er gert ráð fyrir, að þetta fyrrnefnda samkomulag haldist. En eins og tekið var fram á síðasta hausti, voru þær ráðstafanir, sem gerðar voru, aðeins fyrsta skrefið í rétta átt til þess að koma í veg fyrir vöxt verðbólgunnar. Það lá ljóst fyrir, eins og margoft var sýnt fram á í kosningabaráttunni, sem fór fram á miðju s. l. sumri, og svo sem ég hef áður rakið, að stórfelldar ráðstafanir þurfti að gera við þessi áramót til þess að koma í veg fyrir stöðvun framleiðslunnar. Þær tekjur, sem aflað var í byrjun þessa árs, voru fyrirsjáanlega alls ekki nægilegar til þess að halda framleiðslunni á floti árið út. Verðbólgan jókst, og þess vegna varð ekki hjá því komizt að hækka uppbæturnar til framleiðslunnar.
Það er gerð grein fyrir aukinni tekjuþörf ríkissjóðs og aukinni tekjuþörf til að halda útflutningsframleiðslunni á floti í greinargerðinni fyrir þessu frv. og einnig hvernig er áætlað að afla teknanna. Ég geri naumast ráð fyrir, að þessi tekjuþörf verði í nokkrum verulegum atriðum vefengd. Þó tel ég rétt og skylt að gera hv. Alþ. nánari grein fyrir þessu í samræmi við nákvæmustu áætlun, sem völ er á, en við það hefur komið í ljós, að 7 millj. kr. mismunur er frá því, sem áætlað er í greinargerðinni. Nýju gjöldin eru hækkuð og á lögð sem hér segir:
1) Hækkun innflutningsgjalds af öðrum vörum en brýnustu nauðsynjum og helztu rekstrarvörum sjávarútvegsins og landbúnaðarins og yfirfærslugjöld af sömu vörum 163 millj. kr.
2) Gjald af ýmsum duldum greiðslum o. fl. 30.7 millj. kr.
3) Gjald af innlendri framleiðslu og þjónustu 19.9 millj. kr.
4) Gjöld af bifreiðum og ferðakostnaði erlendis 11.7 millj. kr.
5) Gjald af innlendum tollvörutegundum 5.5 millj. kr.
6) Greiðsla frá gjaldeyrisbönkunum 10 millj. kr.
Samtals 240.8 millj. kr.
Áætlað er, að fénu verði varið þannig:
1) Auknar uppbætur til sjávarútvegsins 1957. a) Auknar uppbætur til bátaútvegsins 38.6 millj. kr. b) Auknar uppbætur til torgaranna 38 millj. kr. c) Auknar uppbætur til fiskvinnslu 9.2 millj.
Samtals 85.8 millj. kr.
2) Hækkun verðuppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir 20 millj. kr.
3) Halli framleiðslusjóðs 1956 20.7 millj. kr.
4) Eftirstöðvar innflutningsréttinda 1956 15 millj. kr.
5) Vegna olíufarmgjalda 22.5 millj. kr.
6) Vegna aukinnar niðurgreiðslu á innlendum afurðum 24 millj. kr.
7) Vegna atvinnuaukningar, raforkumála o. fl. 50 millj. kr.
Samtals 238 millj. kr.
Vandamálið er að afla þessara tekna, og það er ekki auðvelt að afla þessara tekna þannig, að sem minnst komi við hag þeirra stétta, sem ríkisstj. hefur heitið að hafa samráð við um lausn málsins, þeirra stétta, sem einna minnst hafa úr að spila í þjóðfélaginu. Viðræðurnar undanfarnar vikur og viðleitni ríkisstj. hefur öll beinzt í þá átt að leysa þetta mál þannig, að í sem mestu samræmi væri við vilja launþega, bænda og annarra vinnandi framleiðenda, sem hafa mesta sameiginlega hagsmuni af því, að nauðsynlegum tekjuþörfum framleiðslunnar sé borgið.
Í samræmi við þessi sjónarmið fyrst og fremst hyggst ríkisstj. gera verulegar breytingar á því fyrirkomulagi tekjuöflunar, sem verið hefur undanfarin ár í sambandi við stuðning útflutningsframleiðslunnar. Ráðgert er, að svokallað bátagjaldeyriskerfi verði lagt niður, framleiðslugjald af innfluttum vörum verði einnig afnumið ásamt söluskatti í smásölu. Það, sem kemur í þess stað, er innflutningsgjald af innfluttum vörum, og er það mishátt eftir tegundum, en jafnframt er gert ráð fyrir nokkurri hækkun á núverandi gjöldum af innlendri þjónustu og iðnaðarframleiðslu.
Eins og ég áður gerði grein fyrir, hefur tekjuþörfin aukizt, og til þess að mæta þessari tekjuþörf eru gjöld hækkuð af ýmsum vörutegundum, sem sízt verða taldar til brýnna nauðsynja, hækkaður ferðakostnaður erlendis, gjald tekið af innlendum tollvörutegundum, leyfisgjöld af innfluttum bifreiðum, lagt er gjald á sölu farmiða til og, frá útlöndum, ýmsar tegundir tryggingargjalda og hækkað gjald af innlendri framleiðslu og þjónustu.
Eins og frv. ber með sér, er gert ráð fyrir, að gjaldeyrisbankarnir greiði tiltekinn hluta yfirfærsluþóknunarinnar, en fjár þess, sem á vantar, er aflað með almennu yfirfærslugjaldi, sem bankarnir munu innheimta af seldum gjaldeyri fyrir vörur og ýmsar duldar greiðslur. En til þess að koma í veg fyrir, að gjald þetta leggist á allar vörur, hefur jafnhátt gjald á ýmsum innfluttum vörum ýmist verið fellt niður eða lækkað frá því, sem verið hefur, Engin ný gjöld eru lögð á innflutning brýnustu nauðsynja né helztu rekstrarvörur útflutningsframleiðslunnar. Er hér um að ræða 421 millj. kr. cif., miðað við árið 1955, og er það um 36% innflutningsins.
Ríkisstj. hefur af fremsta megni reynt að haga tekjuöflun þeirri, sem ekki verður með neinu móti hjá komizt, þannig, að sem minnst íþyngi þeim mönnum í þjóðfélaginu, sem minnst hafa úr að spila. Hefur ríkisstj. einnig talið sér skylt að gera auk þessa og nú samstundis ráðstafanir til þess, að ekki hljótist ónauðsynlegar verðhækkanir af þessari löggjöf.
Í fyrsta lagi verða ráðstafanir gerðar til lækkunar á álagningu milliliða. Enn fremur telur ríkisstj„ að eins og efnahagsmálum er nú komið, sé óhjákvæmilegt að lögleiða strangara verðlagseftirlit til þess að tryggja neytendur gegn óhóflegu vöruverði og reyna að koma í veg fyrir vaxandi verðbólgu.
Að lokum vil ég af hálfu ríkisstj. lýsa yfir því, að hún hefur samþykkt að beita sér fyrir aðgerðum, sem hún telur líklegar til þess að stuðla að því, að þær ráðstafanir, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., nái tilgangi sínum. Munu frv. verða lögð fyrir Alþ. um, þau efni, sem nú skal greina:
1) Um skatt af stóreignamyndun. Innstæður í lánsstofnunum, innlánsdeildum sem og opinber verðbréf verða undanþegin skattinum. Skattálagningin miðast við, að skatturinn nemi a. m. k. 80 millj. kr., sem greiðist að nokkru við álagningu, en að öðru leyti á nokkrum árum.
2) Um lækkun tekjuskatts af lágum tekjum.
3) Um aukinn skattfrádrátt fyrir fiskimenn,
4) Um endurskipulagningu fisksölunnar til útlanda.
5) Um endurskipulagningu bankamálanna,
6) Um húsaleigu.
Og auk þess: Álagning milliliða verði lækkuð verulega. Byggingarsjóði verkamanna verði tryggt aukið fé. Hækkuð verði ræktunarframlög til þeirra bænda, sem ekki hafa náð tiltekinni túnstærð, og aukinn stuðningur við nýbýlastofnun frumbýlinga.
Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja um þessar ráðstafanir. Þær koma fram, undireins og búið er að undirbúa málin.
Ég legg nú til, að máli þessu verði vísað til 2. umr. og fjhn, Málið er þess eðlis, að það þarf skjóta afgreiðslu og dráttur á afgreiðslu þess gæti valdið miklu tjóni, eins og hv. alþm. er kunnugt.