19.12.1956
Neðri deild: 35. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (668)

92. mál, útflutningssjóður o. fl.

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég get nú verið stuttorður og þá fyrst og fremst vegna þess, að það, sem ég sagði í minni frumræðu, stendur óhrakið, og hafa raunar nauðalitlar tilraunir verið gerðar til þess að hrekja það, og einnig vegna þess, að mínir háttvirtu flokksbræður, sem hér hafa talað, hafa áréttað það, sem ég sagði, og sumpart svarað þeim lítilmótlegu aðfinnslum, sem mín frumræða sætti.

Hæstv. fjmrh. og hæstv. atvmrh. véku báðir að því, að ég hefði ekki ástæðu til að kvarta undan málsmeðferðinni, málsmeðferðin hefði ævinlega verið sú sama og nú er viðhöfð, að stjórnarandstaðan fengi ekki langan tíma til að athuga málin.

Ég tók nú einmitt fram, að ég ætti að skilja vel, að slíkum málum sem þessum þarf að hraða. En ég gagnrýndi annað. Ég gagnrýndi það, að ríkisstj., sem hefur talið sig þurfa að sýna þessi mál og rekja aðalefni þeirra a. m. k. fyrir hundruðum manna, hefur ekki virt stjórnarandstöðuna þess að gera henni kunnugt aðalefni frv. Þetta vítti ég. Ég sagði: Þetta er ekki eðlileg þingleg meðferð, úr því að ríkisstj. hefur talið sér skylt að kynna mörg hundruð mönnum efni þessa máls, og ég endurtek það, sem ég þá sagði, að annaðhvort er það rétt, að ríkisstj. hafi kynnt mörgum hundruðum manna aðalefni málsins, eða hitt er rangt, að ríkisstj. hafi raunverulega fengið nokkurt samþykki þessara mörgu manna, sem hún er að vitna til og ég raunar í minni fyrri ræðu sýndi einnig fram á að er rangt, hvað sem þessu liður.

Ég vil enn fremur leyfa mér að minna hæstv. fjmrh. á, að ef ég man rétt, þá höfðum við sjálfstæðismenn þann hátt á, þegar við höfðum mikið mál svipað þessu til meðferðar og undirbúnings um áramótin 1949 og 1950, að 2. febr., þegar frv. okkar var til, það var gengisfellingarfrv., þá sendum við, að ég hygg, bæði Framsfl. og Alþfl. málið til athugunar og fengum þá bara þau svör, að þegar ríkisstj. hefði sagt af sér, þá skyldu þessir flokkar dæma um málin, en ekki fyrr. Við lögðum þá frv. fram allmiklu seinna, og um leið og við lögðum þau fram, var því svarað með vantrausti, sem var rætt og samþykkt 6. marz það sama ár, árið 1950, ef ég man rétt.

Það var þess vegna full ástæða til þess, að ég beindi þessum aðfinnslum að stjórninni, og ég hverf heldur ekki frá þeim að heyrðum þessum ummælum hæstv. ráðherra.

Hæstv. atvmrh. sagði, að ég spyrði bjánalega, þegar ég hefði spurt, hvort útvegurinn þyrfti meiri styrks. En ég segi: Hann heyrði bjánalega, skildi bjánalega og talaði bjánalega, þegar hann sagði, að ég hefði verið að spyrja um þetta. Ég var að spyrja um allt annað. Ég spurði um það, hvort sá stuðningur, sem ætti að veita landbúnaðinum annars vegar og útveginum hins vegar, væri meiri eða minni en sérfræðingar stjórnarinnar hefðu lagt til.

Hæstv. ráðherra var að reyna að leitast við að svara þessu að einhverju leyti. Hann sagði, að sérfræðingarnir hefðu lagt eitthvað svipað til varðandi togarana, en varðandi bátana hefðu þeir lagt til, að styrkurinn væri 26 millj. kr., hins vegar hefði síðari rannsókn leitt í ljós, að þeir þyrftu nú 38.6 millj. kr., og enn væri þó óafgert um 1½ millj. kr., þ. e. a. s. uppbæturnar á hrogn, sem ég hafði nú haldið að væri prentvilla í frv., vegna þess að þessi hæstv. ráðherra hafði tjáð útvegsmönnum, að það ætti að vera sami styrkur á hrognunum, þ. e. a. s. 24.45%, eins og er á fisknum, eða sömu prósentuppbætur. Ég hafði þessar upplýsingar mínar frá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, og þær eru áreiðanlega réttar.

Þá sagði þessi hæstv. ráðh., að sérfræðingarnir hefðu lagt til, að frystihúsin fengju 5.2 millj. kr., en stjórnin legði til, að þau fengju 9.2 millj. kr., og gleður það mig, að stjórnin hefur sannfærzt um það, að árásir á frystihúsin hafa verið mjög úr hófi og úr lausu lofti gripnar, og rennt þar með niður einum af sínum fyrri staðhæfingum. — Ég held nú, að þeir þurfi ekki orðið að renna niður, kommúnistarnir. Þetta dettur orðið ofan um kokið á þeim alveg fyrirhafnarlaust.

Þá sagði hæstv. ráðherra, að það væri furðu bjálfalegt, að ég skyldi vera að spyrjast fyrir um, hvað þessar prósentur, sem frv. gerir ráð fyrir í hverjum lið uppbótanna, þýddu í aurum, maður, sem væri nýkominn úr stöðu sjútvmrh., ætti að vita þetta. En mér þykir gaman að segja mönnum frá því, að sjálfur hefur þessi ráðherra orðið að láta vaka yfir sér nótt eftir nótt af mörgum sérfræðingum til að segja sér, hvað þessar prósentur þýddu í aurum, þó að hann tími ekki að segja mér frá því. En það er búið að kosta ríkið laglegan skilding að reikna þetta inn í hausinn á honum.

Þá sagði hann, að ég væri slitnaður úr öllu sambandi við útveginn og væri jafnvel svo vitlaus að vita það ekki, að útvegsmenn væru búnir að ganga inn á hans till. Ég segi: Ég hef nægjanlega örugg sambönd hjá útgerðarmönnum til að vita það, að útgerðarmenn segja: Við byggjum okkar samþykkt á því, að þessi ráðherra standi við það, sem hann æ ofan í æ er búinn að segja okkur, að það eigi enga skipulagsbreytingu að gera á sölu framleiðsluvöru þeirra. Og svo kemur þessi sami ráðh., lýsir því hér yfir, að það eigi að gera breytingar, eftir að vera búinn að margsegja útgerðarmönnum, að það eigi engar breytingar að gera á þessu næsta ári. En hans eigið blað er búið að segja það, sem ég las upp í kvöld og leyfi mér enn að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Afurðasalan hefur verið í höndum einokunarhringa eins og S. Í. F., og að sjálfsögðu ber vinstri stjórn þegar að afnema það kerfi og að koma á réttlátu fyrirkomulagi.“

Hvort stendur nú heldur, það, sem þessi maður hefur verið að segja við útvegsmennina og þeir byggja sína samþykkt á, eða það, sem blaðið hans segir, og það, sem sjálft frv. segir? Hvort stendur heldur?

Mínar upplýsingar eru beint frá aðalmönnum þessara miklu samtaka, Landssambands íslenzkra útvegsmanna, og ég vefengi ekki, að þeir segja allt satt um þetta. En ég hef miklu meiri ástæðu til þess að vefengja orð þessa hæstv. ráðherra. Ég hef reynt hann að því nú að undanförnu.

Hæstv. ráðherra sagði, að ég hefði verið að gera samanburð á okkar till. 1955, mínum og hæstv. fjmrh., starfsbróður hans núna, og vildi hann nú gera þar mjög mikið upp á milli, og það grætir mig nærri að vita það, hvernig þessi maður, sem á seinustu stundu illu heilli laumaðist inn, kosinn af kjósendum fjmrh., getur aldrei minnzt á hæstv. fjmrh. án þess að svívirða hann. Ég tek upp hanzkann fyrir minn gamla samstarfsmann, hæstv. fjmrh., og mótmæli þessum eilífu árásum á hann. Þær eru mjög illa rökstuddar. Ég var hins vegar engan samanburð að gera á þessu, en ég hæddi þennan hæstv. ráðherra, atvmrh., Lúðvík Jósefsson, fyrir ummælin, sem hann hafði haft um okkar till. í fyrra, og þau ummæli, sem hann hefur um sínar till. nú. Ég hef aðeins hér ein ummæli með mér af hans ummælum, þegar fyrrverandi ríkisstj. var að leggja á 150–200 millj. kr. skatta, sem ég las að vísu upp áðan. Þá sagði Þjóðviljinn eftir þessum manni: „Ræddi Lúðvík Jósefsson sérstaklega um hinar nýju og óhemju álögur ríkisstj. Sýndi hann fram á, að hér væri ekki aðeins um að ræða einhverja stórfelldustu árás, sem gerð hefur verið á lífskjör vinnandi fólks á Íslandi, heldur efnahagslegt glapræði, sem draga mundi enn meiri ófögnuð á eftir sér.“ Ja, það er sannarlega, að ófögnuðurinn hefur ekki látið á sér standa. Hann er bara kominn í till. þessa sama manns með nýjum sköttum upp á 240 millj. kr. Menn verða að virða mér það til vorkunnar, þó að ég hlæi að svona manni.

Þetta sagði maðurinn, sem nú vill ólmur bæta 240 millj. kr. og kannske líka miklu meiru, ef það er rétt reiknað, ofan á þetta.

Hann segir: Í fyrra átti að leggja á allar vörur. Nú á bara að leggja á óhófsvörurnar. Það er hvorki meira né minna en 400 millj. kr. og rúmlega það, segir hann, sem alls ekki á að auka álögur á. En ef innflutningurinn er á milli 12 og 13 hundruð millj. kr., þá spyr ég enn, eins og ég spurði í dag: Hverjir eru það þá, sem nota þessar 8–9 hundruð millj. kr.? Er það ekki almenningur í landinu, sem notar langmest af þeirri vöru? Og hvað er verið að gera með þessum hætti? Það er það, sem ég sagði í minni frumræðu og aðrir mínir flokksbræður hafa líka drepið á, það er verið að fremja stærstu vísitölufölsunina, sem hér hefur verið framin. Og afsökunin átti að vera sú nú, að áður hafi hver verðhækkunin rekið aðra. Nú virðist helzt svo að skilja, að 240 millj. kr. nýir skattar boði svo sem ekki verðhækkun. Nei, nei, það er helzt svo að skilja, að verðið muni stórlækka í landinu. Ja, almenningur má svei mér hlakka til að hafa fengið vinstri stjórn, sem getur lagt á hann 240 milljónir í nýjum sköttum og látið vörurnar allar lækka. Ja, þetta er nú að kunna vel til vígs.

Hæstv. ráðh. sagði: Vill ekki formaður Sjálfstfl. benda á úrræði Sjálfstfl.? Hverjar eru till. Sjálfstfl.? Ég gerði einmitt grein fyrir því í minni frumræðu og deildi á stjórnina fyrir það, hvers vegna hún hefði ekki gefið okkur færi á að kynnast þeim úrræðum, sem hennar sérfræðingar hafa verið að fjalla um, útlendir og innlendir, þrátt fyrir margendurtekin loforð forsrh. um, að álitsgerð erlendra sérfræðinga skyldi koma okkur öllum fyrir sjónir, og ætti löngu að vera búið að efna það loforð. Mér var og er ljóst, að til þess að geta gert okkur rétta grein fyrir, hvort önnur úrræði þjónuðu betur heill og hag almennings heldur en þau, sem hér er lagt til að verði framkvæmd, þyrftum við þessar upplýsingar, án þeirra gætum við ekki gert samanburðinn, svo að það er nú helzt til borginmannlegt að koma nú, þegar maður fær engin svör, engar upplýsingar um þennan samanburð, ekkert að vita um, hvað sérfræðingar stjórnarinnar hafa sagt um þetta, og heimta af okkur, að við dæmum um plögg, sem við aldrei höfum fengið að sjá.

Þessi hæstv. ráðh. sagði enn fremur, að ráðh. Sjálfstfl. hefðu svo sem ekki verið sparir á að þjóna olíufélögunum, þeir hefðu veitt olíufélögunum stórkostlegar verðhækkanir, bara ef var beðið um það. Ég get upplýst þennan ráðherra um það, sem hann raunar veit, að ríkisstjórnin fyrrverandi stóð mánuðum og jafnvel árum saman á móti kröfum, sem verðlagsyfirvöldin voru fyrir sitt leyti búin að dæma sanngjörn. En nú er öldin önnur sannarlega. Nú segir þessi hæstv. ráðh.: Hamrafell gaf 10 milljónir. Ja, hverjum? Útgerðarmennirnir segja, að það hafi ekki gefið 10 millj., heldur eigi að leggja á þá 14 millj. handa Hamrafellinu fyrir 4 eða 5 túra og þá 35–40 millj., ef sömu gjafirnar halda áfram í heilt ár. Þetta segja útgerðarmennirnir. En kannske þeir séu svo vitlausir allir eins og hæstv. atvmrh. telur mig vera. Og hverjum gaf, segi ég, Hamrafell? Fór þetta í Ungverjalandssöfnunina, þessar 10 millj.? Fóru þær til að reyna að þurrka blóðið af þeim, sem eru að myrða í Ungverjalandi? Hér kannast menn ekki við þessar gjafir. Svo kemur þessi ágæti maður og segir: Af hverju er verið að skamma mig fyrir þetta? Ekki á ég neina sök á því, að Hamrafell tekur þetta gjald? Það er allt annar maður, sem ber þá ábyrgð alla. — Ég segi: Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi. Það má bróðir Hannibal sannarlega sanna. En það hefði nú verið mannalegra af hæstv. olíumálaráðh. (LJós) að vera ekki að klína þessu á Hannibal, nóg hvílir nú á honum áður. Þessum milljónagjöfum til Olíufélagsins mótmæli ég í umboði íslenzkra útgerðarmanna og í umboði íslenzkra skattþegna, sem nú þurfa að borga milljónatug eða tugi meira úr sinni buddu, til þess að þetta félag fái að taka þennan gróða umfram það, sem það heimtaði sér til handa, þegar verið var að kaupa skipið. Ég mótmæli þessu fyrir hönd íslenzkra útgerðarmanna og íslenzkra skattþegna. Hitt skal ég svo játa, að sem einum af hluthöfum í þessu vel stjórnaða og ágæta fyrirtæki, einum af hluthöfunum, sem græða á þessu öllu, bæri mér að nurla mér saman í jólagjöf handa Lúðvík Jósefssyni. Nú verð ég að gefa Hannibal hana, úr því að á að þakka honum fyrir þetta. Gjöfin átti að vera af litlum karli, sem var að gleypa voðalega stóran bita. Það voru skoðanirnar, sem þeir höfðu haft fyrir kosningarnar og fram á þennan dag. Hæstv. félmrh. má búast við því á aðfangadag að fá einhvern svoleiðis karl til að minna hann á, hvernig hann hefur komið fram í þessum efnum og fleirum.

Ég endurtek svo það, sem ég talaði um hér í dag, að í blaði verðlagsmálaráðherrans og útvegsmálaráðherrans stendur:

„Allir vita, hvernig olíufélögin hafa haft af þjóðinni og ekki sízt útgerðinni fjölmarga milljónatugi á ári, og verður nú þegar í stað að afnema það fyrirkomulag, að ríkið annist öll olíukaup og afhendi þau síðan olíuhringunum til að græða á.“

Er nokkuð um það í þessum nýju tillögum hugsjónamannanna vinstri? Ég spyr um það enn. Og ég vil minna á það, að ég spurði margra spurninga hér og enginn hæstv. ráðh. hefur svarað neinni af þeim, nema ef á að kalla svar þá tilburði, sem hæstv. atvmrh. sýndi til að snúa út úr fyrir mér eða sýna, hvað hann er óglöggur á mælt mál. Hann gat þó a. m. k. svarað 18. spurningunni minni. Ég vona, að hann muni, hvernig hún var. Hún var um það, hvað hann héti, þessi nýi Gregorybróðir, sem fjmrh. hefði eignazt og ætlaði nú að fara að leggja nýja skatta á þjóðina með kveðju frá Gregorybræðrum? Hann gat sagt það. Hann gat dregið upp skírnarvottorðið sitt, þessi hæstv. ráðh., og hefði hann þá svarað einni spurningu rétt af þeim, sem fyrir hann voru lagðar.

Ég ber engan kvíðboga fyrir neinu í sambandi við þetta frv. öðru en því, að það verði ekki neinum að neinu liði. Hér er verið að tala um, að það sé búið að búa örugglega um hnútana, svo að nú væri allt í föstum skorðum. Ég minnti á áðan og minni á enn, að vísitalan leikur lausum hala, og hefur þó að hún verði fölsuð, eins og til stendur, þá mun hún hækka. Ég minni á enn, að blað stærsta stjórnarflokksins hefur beinlínis hótað, að ef þeim ekki falli vistin, ef kommúnistar þori úr stjórn, af því að blóðið sé farið að þorna í Ungverjalandi, þá muni þeir beita sínu gamla vopni, nefnilega kauphækkunum, grunnkaupshækkunum. Hvar er öryggið? Hvað er nýtt í þessu? Hvar eru vonirnar, sem eiga að vera tengdar við þetta? Eru þær að nokkru leyti meiri en þær hafa áður verið? Er hægt, eins og hæstv. menntmrh. sagði áðan, að koma hér og segja: Þetta er í fyrsta skipti, sem hefur verið talað við alþýðuna? — þó að hann viti, að allar stjórnir, frá því að lýðveldið var stofnað, hafa reynt að ná sambandi við alþýðuna og aðra, sem hér eiga hlut að máli, hinar svokölluðu vinnandi stéttir til lands og sjávar, því að þær eru nú fleiri en þeir, sem vinna á eyrinni, og þeir, sem vinna á sjónum. Það hafa allar stjórnir reynt. Það hefur ekki tekizt nógu vel, ég játa það. En er nokkur trygging fyrir, að það takist betur nú?

Nei, ég óttast ekkert annað, segi ég, heldur en að þetta fari út um þúfur, ekkert annað meira í þessum efnum. Og þá er það náttúrlega raunalegt fyrir þá, sem réðust fastast og harðast á fyrrverandi stjórn fyrir að leggja nýja skatta á, að bera nú sjálfir fram stærstu skattafrumvörp ofan á gömlu frumvörpin og þykjast með því vera að skapa varanlegan frið í þjóðfélaginu. Ef þeir hefðu haft skattana svo þunga, að þeir hefðu drepið hvern einasta mann, þá hefði væntanlega orðið friður, nema þeir dauðu hefðu farið að hvísla einhverju að þeim. En þeir skulu ekki búast við því, að fólkið sé eins lipurt að kingja og gleypa eins og stjórnin er. Fólkið hefur fengið nóg af sköttum og segir: Ef við fáum þessa skatta í viðbót, þá verðum við að sjá einhvern árangur af því. En ég sé ekki, að það séu neinar meiri vonir nú um árangur heldur en áður hafa verið. Og ég hef fullan rétt til að ámæla þeim mönnum, sem réðust á ráðstafanir fyrrv. stjórnar og lofuðu nýjum úrræðum, fyrir að koma með engin úrræði önnur en þau, sem þeir nú hafa borið á borð. Og það er náttúrlega, eins og ég áðan sagði, grómtækur misskilningur og beinar missagnir, og þær hljóta að vera af ásettu ráði, ef menn eru að halda því fram hér, að það sé búið að ná samkomulagi við alla aðila, því að eins og ég sagði í fyrri ræðunni, þá stendur í þessari vesölu grg., að framleiðsluráð landbúnaðarins sé fullkomlega klofið um málið, að Alþýðusambandið og 19 manna nefndin séu mjög óánægð með þetta allt saman. Þessir aðilar segja bara, að þeir vilji ekki fella stjórnina í bili, þar til úr því fæst skorið, hvernig framkvæmdin tekst. Þetta er allt samkomulagið. Og útvegsmenn hafa leyft sér að byggja á því, að það sé eitthvað að marka eitthvað af því, sem hæstv. atvmrh. hefur sagt, og í fullu trausti þess, að það sé, muni þeir samþykkja tilboðið hans, sem hann segir þeim að sé miklu hærra en aðrir ráðherrar vilji bjóða.

Ég læt þessi fáu orð nægja með tilvísun til þess, sem ég sagði í minni frumræðu og mínir flokksbræður hafa síðan í ræðum sínum áréttað með viðbótarrökum í mörgum veigamiklum atriðum.