20.12.1956
Neðri deild: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (683)
92. mál, útflutningssjóður o. fl.
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Fjhn. leyfir sér að flytja hér till. um breyt. á 15. gr. frv. Í síðasta málsl. 2. málsgr. þeirrar gr. segir, að ríkisstj. geti undanþegið yfirfærslugjaldi nauðsynleg skipagjöld erlendis að nokkru eða öllu leyti og sett þau skilyrði um það, er þurfa þykir. N. leggur til, að inn í þennan málslið bætist á eftir orðunum „nauðsynleg skipagjöld“ „og flugvélagjöld“, til þess að það gildi sama undanþáguheimild fyrir gjöld af flugvélum erlendis eins og skipum.
N. verður að sjálfsögðu að leggja fram skriflega þessa brtt., og vil ég fara fram á við hæstv. forseta, að afbrigða verði leitað.