20.12.1956
Efri deild: 40. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (690)
92. mál, útflutningssjóður o. fl.
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Eins og hv. þd. er kunnugt, er þetta mál nú komið frá hv. Nd. og hefur verið rætt þar allýtarlega og jafnframt athugað á sameiginlegum fundum fjárhagsnefnda beggja deilda. Það hefur tekið nokkrum breytingum í meðförunum, og er það ekki nema eðlilegt, þar sem þetta mál er allyfirgripsmikið og þarf því mikillar athugunar, en eins og að undanförnu kemur þetta mál fremur seint fram. Það hefur verið fundið að því og koma sjálfsagt þær raddir fram hér í þessari hv. þd., að málið sé raunverulega of seint fram komið, en við það er það að athuga, að þeir erfiðleikar, sem við hefur verið að fást núna, eru áreiðanlega stórfelldari en verið hafa áður, vegna þess að fjárhagur atvinnuveganna hefur aldrei verið verri en á þessu ári, og þeir erfiðleikar, sem þar er við að fást, eru því miklu meiri en verið hefur áður. Enn fremur hefur vegna vaxandi dýrtíðar farið svo, að tekjuþörf ríkissjóðs hefur farið vaxandi, svo sem grein er gerð fyrir í þessu frv. En undanfarið hefur það verið svo stundum, að þessi mál hafa ekki verið leyst fyrr en hefur verið komið fram í janúarmánuð, og hefur það orðið að verulegu tjóni fyrir fjármál þjóðarinnar, sem hafa liðið við það stórkostlega. En sú er þó bót í þessu máli, að jafnhliða því sem málið hefur verið undirbúið af ríkisstj. og þeim sérfræðingum, sem unnið hafa að samningu þessa frv., hefur verið lögð í það mikil vinna og mikill tími að semja við þá aðila, sem hér eiga helzt hlut að máli. Þetta hefur kostað geysilega mikla vinnu og mikinn tíma. Það hefur verið samið við Alþýðusamband Íslands og nefnd, sem síðasta Alþýðusambandsþing skipaði til þess að semja um þessi mál. Það hefur verið samið við Stéttarsamband bænda um þetta mál. Það hefur verið samið við sjómenn á bátunum, sjómenn á togurunum, togaraeigendur, bátaeigendur og, að ég hygg, við frystihúsin eða vinnslustöðvarnar. Þetta tryggir það, að framleiðslan á að geta gengið eftir áramótin óhindrað, en það hafa stundum orðið afleiðingarnar af aðgerðum í fjárhagsmálunum, að framleiðslan hefur stöðvazt vegna ágreinings, sem út af þeim aðgerðum hefur orðið.
Það er líka með mál eins og þetta, að það getur ekki verið lengi í meðförum, og þarf ekki að skýra fyrir hv. þdm., af hvaða ástæðum það er. Ég vil því þegar í upphafi máls míns óska eftir því, að þetta mál geti fengið sem skjótasta afgreiðslu hér í þessari hv. þd.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, kemur sjálfsagt engum á óvart. Þegar ráðstafanirnar voru gerðar í byrjun þessa árs, lá ljóst fyrir, að það voru aðeins bráðabirgðaráðstafanir. Það mun hafa verið tekið fram í álitsgerð þeirra hagfræðinga, sem fjölluðu um það mál, að þær ráðstafanir gætu ekki orðið nema til bráðabirgða, grípa yrði til annarra ráðstafana um næstu áramót, þ. e. a. s. þau áramót, sem við nú erum að nálgast. Og það sýndi sig þegar, að þær ráðstafanir, sem þá voru gerðar, áttu ekki vinsældum að fagna hjá þeim stéttum, sem miklu ráða um það, hvernig þessi mál fara úr hendi. Dýrtíðin hélt áfram að vaxa, eins og hún hafði vaxið áður, og það olli vitanlega óánægju hjá þessum stéttum, auk þess sem þær höfðu það í för með sér eðlilega, að vísitalan fór hækkandi. Dýrtíðin óx, og afleiðingarnar urðu þær, að ofan á það, að of lítið hafði verið ætlað til framleiðslusjóðs til þess að standa undir þeim útgjöldum, sem þurfti til þess að halda framleiðslunni á floti, bættust við vegna vaxandi dýrtíðar á árinu geysilegar fjárhæðir, geysileg aukning á þeim framlögum, sem þurfti til framleiðslunnar, til þess að hún gæti haldið áfram.
Það var þegar á miðju ári svo, að það þurfti að greiða með norðanlandssíldinni, án þess að hefði verið gert ráð fyrir því eða ætlað fyrir því, þegar lögin voru sett í byrjun þessa árs, lögin um framleiðslusjóð. Og það komu ýmsar fleiri greiðslur til, sem oft hafa verið taldar, auk þess sem bátaflotinn og togaraflotinn fengu allt of litlar uppbætur, til þess að þeir gætu verið reknir með sæmilegu móti. Sérstaklega gilti þetta um togarana, sem voru reknir með geysilegum taprekstri allt þetta ár.
Vegna vaxandi dýrtíðar jukust útgjöld ríkissjóðs einnig, svo sem gerð er grein fyrir í grg., sem fylgir þessu frv., og meðal þeirra greiðslna eru á næsta ári 24 milljónir, sem eru niðurgreiðsla á landbúnaðarvörum vegna stöðvunar í haust. Sá kostur var valinn að greiða þá upphæð niður heldur en að láta dýrtíðina halda áfram, en eins og kunnugt er, áttu bændur skv. lögum þá þegar heimtingu á því að fá hækkað verð, sem þessum upphæðum hefur verið varið og verður varið til að greiða niður.
Þegar þessi mál voru athuguð á s. l. hausti af innlendum sérfræðingum, bar þeim ekkert á milli um, að svo væri komið framleiðslunni þrátt fyrir þessa stöðvun, sem gerð var s. l. haust, að það þyrfti að færa yfir til framleiðslunnar um 500 millj. kr. Um það er enginn ágreiningur milli erlendra og innlendra sérfræðinga. Það þarf að færa yfir til framleiðslunnar um 500 millj. kr., til þess að hún geti haldið áfram.
Þær leiðir, sem hugsanlegt er að velja til þess að framkvæma þessa yfirfærslu, eru að vísu fleiri en ein. Það hefur verið talað um svokallaða niðurfærsluleið eða verðhjöðnunarleið. Það hefur verið lítið eða ekkert talað um þá leið í þessum umræðum. Það eru margir, sem telja, að það sé sú leið, sem hefði átt að fara og væri hagkvæmast að fara, og hefur verið talsvert um það skrifað og talað. Sú skoðun virðist þess vegna vera talsvert útbreidd meðal þjóðarinnar, að eðlilegt væri og bezt væri að fara þá leið. Það er rétt að segja það strax, að það er langt síðan okkar dýrtíðar- og verðbólgumálum var þannig komið, að ég veit ekki betur en að hver einasti hagfræðingur og sérfræðingur í fjármálum telji, að verðhjöðnunarleiðin sé fyrir löngu útilokuð fyrir okkur. Geta menn séð það á því, að svo er komið, að ríkið greiðir um það bil allt kaupgjald áhafnarinnar á togurum. Við erum komnir svo langt í verðbólgunni, að þessi leið er að áliti sérfræðinga gersamlega útilokuð. Um það virðist ekki vera neinn ágreiningur, enda sjá menn það í hendi sér, þegar menn hugsa um dæmi eins og þetta, að það er meira en lítil niðurfærsla á kaupgjaldi og öðru, sem þarf, að öðru ónefndu, til þess að fara þessa leið. Þess vegna hefur niðurstaðan orðið sú, að hún sé ófær.
Þá er vitanlega hugsanlegt að fara aðrar leiðir: gengisfellingarleið til þess að flytja þannig þá fjármuni, sem þarf, yfir til framleiðslunnar, og enn fremur þá leið að greiða uppbætur á útflutning og taka þau gjöld af innflutningnum í höfuðatriðum, en leita eftir þeim að öðru leyti í þjóðfélaginu, þar sem helzt er um gróða að ræða; enn fremur að taka gjöldin af innlendri framleiðslu og þjónustu.
Um gengisfellinguna ætla ég ekki að vera margorður. Það er ýmissa skoðun, að gengisfellingu megi framkvæma með mismunandi móti, það sé raunverulega hægt að framkvæma gengisfellingu þannig, að hún komi ákaflega hart niður á tekjulágu fólki og sé þess vegna tilfinnanleg, ef ekki eru gerðar jafnhliða gengisfellingunni stórfelldar ráðstafanir til þess að draga úr þessari kjaraskerðingu fyrir láglaunafólk. Það er ýmissa skoðun, að það sé raunverulega hægt að framkvæma gengisfellinguna líka þannig, að kjaraskerðingin verði lítil, en til þess þarf geysilega sterkar ráðstafanir auk gengisfellingarinnar. Og það er nú ýmissa skoðun, að þær hafi ekki verið nægilega gerðar stundum, þegar gengisfellingarleiðin hefur verið farin.
Ég ætla ekki að ræða um þetta frekar. Sú leið, sem valin hefur verið, er sú, sem hér liggur fyrir, og hún er í höfuðatriðum sú að færa þessa upphæð á milli á þann veg, sem ég sagði áðan, að taka þær tekjur, sem þarf að færa yfir til framleiðslunnar, af innflutningi, innlendri þjónustu, innlendri framleiðslu og með ýmsu öðru móti, svo sem talið er hér í grg. og óþarft er að lesa upp. En þessari tekjuöflun er í höfuðdráttum hagað þannig og var unnið að henni þannig að taka fyrst þær vörur, sem teljast minnst nauðsynlegar, og leggja á þær vörur innflutningsgjöld, eins há og álitið er að þær vörutegundir þoli. Þetta gjald er lagt á þær vörur, sem eru allra minnst nauðsynlegar. Síðan var tekinn út úr flokkur af vörum, rekstrarvörur útflutningsframleiðslunnar og nauðsynjar almennings, þær eru teknar út úr og ekki hækkuð gjöld á þeim. Síðan er lagt á milliflokkinn milli þessa tvenns mismunandi mikið, og er vitanlega ákaflega vandasamt að jafna þessu niður, þannig að ekki verði um deilt, og áreiðanlega ekki hægt að gera það þannig, að það sé ekki hægt að deila um, að það hafi mátt gera það á annan veg en gert er, hver sem jafnaði því öllu saman niður. En menn verða að hafa það í huga, að þegar á að taka 500 milljónir til þess að flytja yfir til framleiðslunnar, þá er vitanlega útilokað, að það séu til einhverjar þær galdraaðferðir, að það sé hægt að gera þetta án þess, að það komi við hag margra manna. Það er t. d. talað um það ákaflega mikið, það var talað um það í hv. Nd., það var talað um það hvað eftir annað í gær, hvort ekki væru nauðsynjar t. d. sokkar, kvensokkar og þess háttar, hvort þetta eða hitt væru ekki nauðsynjar. Jú, vitanlega er orðið nauðsynjar ákaflega teygjanlegt orð, og nauðsynjar eru mismunandi fyrir fólk, eru orðnar mismunandi eftir því, úr hverju fólk hefur að spila. Ef maður tekur þessi dæmi, þá getur maður jafnframt hugsað sem svo: Það er talað um landbúnaðarvélar, það eigi að nema alla tolla af þeim, það er talað um vélar í báta, að það eigi að gera það sama o. s. frv. En menn verða að hafa það í huga, og einmitt þeir menn, sem tala þannig og tala á þann veg, að þeir bersýnilega vildu velja gengislækkunarleiðina, að ef það hefði verið framkvæmd hér gengisfelling, 50 eða 60% eða hvað það nú hefði verið, þá hefðu vitanlega allar þessar vörur hækkað í verði sem því svarar, svo að það er í sjálfu sér einkennilegt, — ja, kannske ekkert einkennilegt, menn nota ýmislegt í málfærslu, en þegar það er hægt að taka þrotlaust og endalaust vöruflokka, sem lagt er á, og segja: Hvers vegna er lagt á þetta, hvers vegna er lagt á hitt? — en jafnframt er talað á þann hátt, að það hefði verið eðlilegra að velja gengislækkunarleiðina, þá segja þeir raunverulega í sama orðinu og þeir eru að álasa fyrir það, að þessi gjöld séu lögð á þennan innflutning eða hinn: Ég vil gengisfellingu — og segja þá um leið, að þeir hafi viljað láta leggja á þessa vöru í innflutningi þá prósentu, sem gengisfellingunni hefði numið. Það er það, sem þetta þýðir.
Það, sem hefur verið reynt að gera, er, að það hefur verið reynt að jafna þessum gjöldum niður þannig, að snerti sem minnst lágtekjumenn. Við það eru þessar aðgerðir miðaðar, en eins og ég sagði áðan og þarf reyndar ekki að endurtaka, er vitanlega ekki hægt að taka 500 millj. kr. nema koma við marga.
Í sambandi við þessar ráðstafanir og í þessu frv. er gert ráð fyrir strangara verðlagseftirliti, sem komið verði á nú þegar. Ríkisstj. er sammála um, eins og högum er nú háttað í okkar þjóðfélagi og um leið og þessar ráðstafanir eru gerðar, sem hlutu að valda verulegri hættu á hækkun, hvort sem þessi leið var farin eða gengisbreyting, að ekki yrði hjá því komizt að setja á miklu strangara verðlagseftirlit en verið hefur, og einnig hefur ríkisstj. í undirbúningi, og það má gera ráð fyrir, að árangur af því verki birtist núna næstu daga, að lækka milliliðaálagningu verulega. Það mál hefur, eins og ég sagði áðan, verið undirbúi'ð, og ég veit ekki betur en að þeim undirbúningi sé að verða lokið. Ég lýsti því jafnframt yfir í hv. Nd., að ríkisstj. hefði ákveðið að beita sér fyrir ýmsum ráðstöfunum og eiga frumkvæði að því, að frv. verði lögð fram um ráðstafanir, sem hún telur að sé réttlátt að gera samhliða þessum ráðstöfunum og styðji að því að þær megi takast. Ég gaf yfirlýsingu um þessar ráðstafanir í hv. Nd., og það hefur þegar verið birt í blöðum, hverjar þessar ráðstafanir eru, og ég sé ekki ástæðu til þess að lesa þær, en vísa til grg. á bls. 12. Þar eru þessar ráðstafanir taldar upp. Frv. um þessar ráðstafanir er sumpart næstum fullgerð, en um önnur atriði hefur farið fram athugun, án þess að frv. hafi verið samin. En þessum ráðstöfunum verður reynt að hraða. Því verki verður hraðað að fullgera nú í hléinu frv. um þessi atriði og leggja þau fram, þegar þingið kemur saman eftir þá frestun, sem ráðgerð er til 21. næsta mánaðar.
Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að máli þessu verði vísað til 2. umr. Eins og ég sagði í upphafi máls míns, hafa fjhn. beggja deilda unnið sameiginlega að málinu undanfarið, og þótti eðlilegt að hafa þau vinnubrögð, til þess að fjhn. þessarar hv. d. gæti notað sama tíma til að rannsaka málið eins og fjhn. Nd.