22.11.1956
Efri deild: 16. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (713)

57. mál, atvinnuleysistryggingar

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Þetta mál þarf ekki langra útskýringa við. Í þessu frv. felst aðeins ein breyting á lögunum um atvinnuleysistryggingar, og sú breyting er í því fólgin, að í stjórn atvinnuleysistrygginganna skuli Alþýðusamband Íslands skipa tvo menn af sjö, í stað þess að nú hefur Alþýðusambandið rétt til þess að kjósa eða skipa einn mann af sjö, sem stjórnina skipa. Tala stjórnarmanna er því óbreytt skv. þessu frv. Af þessari breytingu leiðir svo það, að Alþ. skal kjósa fjóra menn hlutfallskosningu á Alþingi í stjórn trygginganna í stað þess, að skv. lögunum, eins og þau eru nú, kýs Alþ. fimm.

Á það má benda, að lögin um atvinnuleysistryggingar voru sett með þeim hætti, að fulltrúar verkamanna felldu niður allverulegan hluta af kaupkröfum sínum við lausn vinnudeilu gegn því, að myndaðir yrðu með iðgjaldagreiðslum atvinnuleysistryggingasjóðir, sem kæmu verkamönnum til öryggis, ef atvinnuleysi bæri að höndum. Þegar menn líta á þetta, munu flestir fallast á, að það væri raunar sanngjarnt, að verkalýðssamtökin ættu fleiri en tvo af sjö stjórnarmönnum atvinnuleysistrygginganna, en þó ekki farið fram á meira í þessu frumvarpi.

Ég legg til, að þetta frv. fari að lokinni umr. til hv. heilbr.- og félmn.