20.12.1956
Efri deild: 37. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (732)
57. mál, atvinnuleysistryggingar
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Mér þykir nú leitt, að hv. þm. N-Ísf. (SB) skuli hafa talað sig dauðan í Ungverjalandsreisunni og Vestfjarðaförinni, því að mér fannst hann nú vera eiginlega kominn mjög nálægt því að ljá máls á því að fylgja frv. En mér fannst honum farast mjög óhöndulega með frásögnina af því, að við hefðum ekki aðeins selt gamlan togara, heldur líka sjóð með honum, og þó að við hefðum talið skipið gamalt, þá hefðum við samt ráðstafað ísfirzkum sjómönnum á skipið í heilt ár. Þetta sjá nú allir hv. þdm. að getur ekki staðizt, því að ein bæjarstjórn getur auðvitað engar samþykktir um það gert, hvort menn skuli vera á einhverju ákveðnu skipi eða ekki.
Það sanna er, að þetta skip var nýlega klassað vel og vandlega, á meðan það var í eign Ísafjarðarkaupstaðar, og þá spurði fulltrúi bæjarstjórnarinnar skipaskoðunarmanninn: Verður nú ekki skipið traust og gott og vandað skip eftir þessa miklu og dýru klössun? Þá sagði skipaskoðunarmaðurinn: Ég tel viðgerðina vera góða og vandaða, en það er aldrei hægt að vita með þessi gömlu járnskip, hvenær dettur á þau gatið. — Ég játa það, að eftir þessar upplýsingar minnkaði áhugi bæjarstj. Ísafjarðar mjög mikið fyrir að eiga skipið og vildi heldur stefna að því að eignast nýtt skip í ísfirzka flotann.
En það vantar einn þátt í þessu máli, og hann skal ég nú segja. Auðvitað voru bæði sjálfstæðismenn og Alþfl.-menn í bæjarstj. Ísafjarðar, þegar þetta gerðist. Og hófu nú ekki sjálfstæðismennirnir baráttu á móti togarasölunni? Börðust þeir ekki mikið á móti togarasölunni? Voru það bara ólukku Alþfl.-mennirnir, sem börðust fyrir að selja gamla skipið? Nei, einn ágætur maður var þá í bæjarstj. Ísafjarðar fyrir Sjálfstfl., heitir Torfi Hjartarson, núverandi tollstjóri í Reykjavík, hann greiddi atkv. með skipssölunni. Annar bæjarfulltrúi Sjálfstfl., sem þá átti sæti í bæjarstj., sat hjá; það var hans frammistaða. Skipið var þannig selt með öllum greiddum atkv., en annar íhaldsfulltrúinn sat hjá. Er þetta ekki frækileg barátta á móti skipssölunni, eitthvað fyrir forseta bæjarstj. að státa af? Nei, skipið var selt af báðum bæjarstjórnarflokkunum, og getur hvorugur við hinn sakazt út af því.
Svona er sannleikurinn, þegar meðreiðarmaður sannleikans nr. 1 ber hann fram.