28.01.1957
Efri deild: 46. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
3. mál, húsnæðismálastjórn
Fram. minni hl. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Ég þarf nú ef til vill ekki að hafa mörg orð um þetta. En það, sem kemur fram hjá hæstv. ráðh., er, eins og hv. þm. V-Sk. minntist á, að von væri á nýrri löggjöf um þessi mál og að þetta kerfi sem sett var 1955, hið almenna veðlánakerfi, hafi bókstaflega komizt í þrot. Ja, að hverju leyti er það? Er það vegna þess, að fé hafi brostið, fé, sem gert var ráð fyrir að bankar lánuðu í þetta? Neituðu þeir að lána í þetta kerfi, eða vilja þeir heldur lána til íbúðabygginga, ef forsendurnar verða einhverjar aðrar en þessi lög fjalla um.
Þetta er töluvert atriði, því að ég hygg, að mörgum lítist ekki blómlega á framtíðina, mörgum af þeim, sem eiga þessi á þriðja þús. hús í byggingu úti um allt land og hafa einmitt vænzt sérstaks stuðnings af þessu lánakerfi. Nú fá þeir að heyra það allt í einu frá hæstv. félmrh., að þetta kerfi hafi komizt í þrot, og verður ekki annað skilið en að það verði lagt niður og gert upp eins og hvert annað gjaldþrota fyrirtæki.
En við skulum vona, ef svo fer, að eitthvað annað betra komi í staðinn. Eftir því verðum við að bíða, — bíða þangað til frv. það, sem hæstv. ráðh. boðaði, kemur í dagsins ljós, og þá lagast það, sem fundið hefur verið að áður í þessu máli, að ekkert hafi komið fram í þessu frv. annað en að fjölga í stjórninni. Þá trúlega hefur það verið komið á stað hjá hæstv. ríkisstj., að það yrði að taka þetta kerfi allt saman í gegn og koma því á betri rekspöl en nú var komið. En eitt er það, sem mér þykir einnig undarlegt í þessu sambandi og hæstv. ráðh. talaði um, og það er það, að strax eftir stjórnarskiptin lendir úthlutun eða starf húsnæðismálastjórnar í tómum vandræðum. Þá koma þeir engu máli fram, koma sér ekki saman um neitt og verða að fá úrskurði hæstv. ráðh. um allt, sem þeir áttu sjálfir að ráða fram úr.
Þetta kemur manni nokkuð undarlega fyrir sjónir, og væri gott að geta fengið upplýsingar um það, hvernig á því stendur.