14.12.1956
Neðri deild: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (827)

2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Samkv. því, sem nú er komið, virðist það ljóst, að frsm. hafi einnig meint stuðning sínu með frv. með fyrirvara, þannig að þá áritun vanti einungis á þskj., en hún liggi fyrir að efni til.

Mér virðist það ljóst, að þetta mál sé ekki tímabært til afgreiðslu úr deildinni, enda er það kunnugt, að þingnefnd ætlaði sér ekki að afgreiða málið að svo stöddu, heldur var það einungis fyrir þrákelknislegar hótanir hæstv. forseta d., sem hún loksins nú hefur látið þetta mjög svo einkennilega nál. frá sér fara. Mér virðist því augljóst, að málinu beri að vísa aftur til hv. nefndar og hún fái tíma til þess að athuga málið gaumgæfilega og skila frá sér efnislegu nál. Eins væri það mjög óviðeigandi að afgreiða málið nú, þegar hæstv. fyrrverandi félmrh., 1. þm. Skagf., er fjarstaddur, og gefa honum ekki færi á því að gera deildinni grein fyrir efni síns fyrirvara.

Frá sjónarmiði hæstv. ríkisstj. getur ekki heldur verið neitt því til fyrirstöðu, að málið verði látið vera til áframhaldandi meðferðar í þingnefndinni, því að brbl. halda gildi sínu, meðan Alþ. stendur, ef frv. er ekki fellt. Þess vegna er eina rökrétta afleiðingin af því, sem hv. 5 landsk. þm. sagði, að geyma þetta frv., þangað til sýnt er, hvort aðalfrumvarpið er þess efnis, að hann eða aðrir geti fellt sig við frambúðarskipan málsins. Nú er það ekki mitt áð leiðbeina honum eða öðrum hér um atkvgr., en þetta er sú afleiðing, sem opið liggur fyrir að draga af hans ummælum. Málið er jafntryggt í gildi, ef þessi aðferð er höfð, eins og þótt frv. sé nú með öllum þeim fyrirvörum, sem gerðir hafa verið, afgreitt áfram til 3. umr. og síðan út úr deildinni. En d. hefur í hendi sér að láta ekki mjög gallað frv. fara héðan, fyrr en hún sér, hvað efnislega á að koma í staðinn. Þess vegna leyfi ég mér að leggja til, að þessu máli sé aftur vísað til nefndarinnar.