14.12.1956
Neðri deild: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (835)
2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af næstseinustu ræðu hæstv. félmrh. Af henni kom fram, að efni þeirrar brtt., sem við fulltrúar Sjálfstfl. í heilbr.- og félmn. höfum lagt hér fram, væri honum ekki fyllilega ljóst, en þessi brtt. felur í sér rýmkun á undanþáguheimild frv. 3. gr. þess óbreytt virðist veita undanþáguheimild til heilla kaupstaða í eitt skipti fyrir öll, þ.e.a.s. kaupstaða, þar sem frv. samkv. eðli sinu getur ekki átt við.
3. gr. veitir undanþáguheimild aðeins kaupstöðum, þar sem ekki er um íbúðarhúsnæðisskort að ræða. Lögin munu vera sett til að reyna að ráða bót á íbúðarhúsnæðisskorti og ættu því ekki að koma til álita, hvort eð er, þar sem hann er ekki fyrir hendi.
Brbl., eins og þau eru nú, leggja í rauninni bann við því, að fólk stundi atvinnu sína í sinni eigin íbúð. T.d. mætti skósmiður ekki setja upp verkstæði í einu herbergi af þremur í íbúð sinni. En við verðum að játa, að í einhverju þarf fólk í þéttbýlum bæjum að mega vinna, og þess vegna flytjum við þessa brtt.
Í brtt. er talað um atvinnuhúsnæði, en hæstv. félmrh. virtist telja, að hér væri aðeins átt við verzlunarhúsnæði eða skrifstofuhúsnæði. Við erum hins vegar þeirrar skoðunar, að fleiri atvinnugreinar þurfi húsaskjól en þessar.
Hæstv. ráðh. lét í ljós, að gildi þessa frv. yrði að engu, ef undanþáguheimild yrði í því. Ekki kvað hann mundi á meðmælum bæjarstjórnar Reykjavíkur standa, en ég leyfi mér að leggja áherzlu á það, að samkv. brtt. okkar hefði hæstv. félmrh. sjálfur lokaorð um undanþágurnar. Annars fylgjum við að sjálfsögðu efni frv., að því leyti sem það kann að koma í veg fyrir íbúðarhúsnæðisskort. En ég þykist þess fullviss, að heilbr.- og félmn. hafi í rauninni öll verið sammála um réttmæti þessarar sanngjörnu brtt., og vænti þess, að ef frv. verður afgreitt núna, verði það með þessari breytingu.