14.12.1956
Neðri deild: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (837)
2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Hv. 9. landsk. sagði núna í seinustu ræðu sinni, að hann héldi, að það væri afar erfitt að framfylgja þessum lögum, bar aðallega kvíðboga fyrir því, — því að þetta blandaðist nú saman, — að menn mættu ekki hafa atvinnurekstur í íbúðarhúsnæði sínu. Ég held, að þetta fari nú afar sjaldan saman. Það er venjulega þannig, að annaðhvort heil hús eða hluti af húsi er tekinn úr íbúðarnotkun og til verzlunarrekstrar eða skrifstofuhalds eða einhverrar iðngreinar, og venjulega fer þetta illa saman í einu og sama húsi, en slík breyting væri óheimil. Að það sé vafi á því, hvort það sé notað til atvinnurekstrar eða íbúðar, það held ég að komi afar sjaldan fyrir.
Þá kom 8. þm. Reykv. inn á þetta sama og nefndi það sem dæmi til skýringar máli sínu, að skósmiður hefði t.d. ekki heimild til þess að hafa skósmíðaverkstæði sitt í íbúð sinni. Ég held nú, að í fyrsta lagi skósmíðavinnustofa og íbúð fari illa saman. En það væri ekki heimilt að taka íbúð til iðnrekstrar samkv. þessu. Það er alveg greinilegt. En hvernig á þá að bæta úr því? Ég gat þess einmitt, þegar ég lagði þetta frv. hér fyrir í byrjun þings, að ég teldi það hafa verið ranga stefnu að neita undir öllum kringumstæðum um fjárfestingarleyfi til verzlunarhúsnæðis og skrifstofuhúsnæðis og til atvinnurekstrar. Þegar þetta bann væri komið á, þýddi það, að taka yrði upp breytta stefnu í þeim efnum, það yrði að veita fjárfestingarleyfi til atvinnuhúsnæðis, þegar fjárfestingaryfirvöldunum sýndist, að nauðsyn krefði, algert bann á því sviði eða mjög mikil tregða á að afgr. slík fjárfestingarleyfi hefði einmitt leitt til þess, að íbúðarhúsnæði hefði umvörpum verið tekið til þessara nota. En þegar löggjöfin var sett, var ástandið þannig, að það var vitað um, að það voru ekki aðeins teknar einstakar íbúðir og húshæðir, heldur voru byggð stórhýsi, ekki eitt, heldur mörg í bænum með það beint fyrir augum að taka hverja hæðina á fætur annarri til annarra nota en íbúðarhúsnæðis. Þetta var ekki hægt að láta ganga. Það var á miðju sumri, sem ég sá þetta, og þá var ekki hægt að gera þetta öðruvísi en með brbl., og þessi brbl. hafa mér vitanlega ekki orðið fyrir árásum úr neinni átt. En það er mín afstaða, að slíku banni fylgi það, að fjárfestingaryfirvöldin verði að veita fjárfestingarleyfi til atvinnuhúsnæðis, þegar þau meta það, að nauðsyn beri til, að slíks húsnæðis sé aflað. Þeir, sem ætla sér að byggja húsnæði til atvinnurekstrar, fara þá ekkert í kringum það, af því að þeir búist við neitun, heldur sækja um slík leyfi, fá sér fullar heimildir til þess að byggja atvinnuhúsnæði og þurfa þannig ekki að taka ófrjálsri hendi af íbúðarhúsnæði bæjarbúa. Þetta er auðvitað — það verða allir að viðurkenna — til bóta og í raun og veru alveg sjálfsagður hlutur. En ef við förum inn á undanþágurnar, sem hér hefur verið líka minnzt á, þá er þetta komið úr böndunum. Um það skal ég segja þetta, að það er í frv. heimild fyrir bæjarfélög, þar sem ekki ríkir íbúðarhúsnæðisskortur, að sækja um það að vera undanþegin þessum lögum. En ekki eitt einasta bæjarfélag hefur enn þá sótt um það. Og undanþágubeiðnunum, sem dundu á mér, fyrst eftir að lögin voru sett, frá þeim mörgu aðilum, sem voru annaðhvort byrjaðir eða langt komnir með að breyta íbúðarhúsnæði í húsnæði til annarra nota, var neitað strax, og síðan hefur ekki örlað á neinum slíkum undanþágum. Ef nú yrði samþ. till. um að leyfa undanþágur, þá veit ég, að það yrði regn af slíkum undanþágubeiðnum og það yrði stormað á félmrn. til þess að fá að breyta hverri húshæðinni og hverju stórhýsinu á fætur öðru úr því að vera íbúðarhúsnæði og til þess að vera tekið til atvinnurekstrar í einhverri mynd, verzlunar eða annarra hluta. Það væri ekki hægt að leyfa sér slíkt núna, þegar slíkt ástand er í húsnæðismálum Reykvíkinga eins og er nú. Heimildirnar yrðu því að engu, það yrði að neita þeim öllum. Ef einhver væri veitt, þá væri skriðan komin af stað, og þess vegna er alveg tilgangslaust að bera slíkar undanþágubeiðnir fram, og það þjónar illum málstað frá mínu sjónarmiði séð að gera tilraun til þess að fá slíkar undanþáguheimildir samþykktar inn í lögin.