14.12.1956
Neðri deild: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum

Forseti (EOl):

Út af þeim ummælum, sem fram hafa komið viðvíkjandi forseta í þessum umr., vil ég taka það fram, að ég skoða það verkefni forseta að sjá um, að hv. d. fái tækifæri til þess að afgreiða mál. Það er auðvitað hv. deildar að ákveða, á hvern hátt hún afgreiðir þau mál. Þetta mál, sem hér um ræðir, var sent til hv. heilbr.- og félmn. 23. okt. og er 2. mál þingsins. Ég ætla, að það sé nokkur tími.

Út af þeirri umhyggju, sem fram kom frá hv. formanni stjórnarandstöðunnar, að eigi sé beitt þrákelkni af hálfu forseta við að fá mál úr nefndum, þá mun þeirrar umhyggju minnzt.

Út af því, sem hér hefur komið fram, að hv. 1. þm. Skagf. væri næstum meinað að taka hér til máls, skal þess getið, að hann hefur hvorki tilkynnt veikindaforföll né hefur fjarvistarleyfi. Umr. um málið er lokið. Hv. 1. þm. Reykv. gerir stutta athugasemd.