27.05.1957
Sameinað þing: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
Almennar stjórnmálaumræður
Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Um mörg undanfarin ár hafa allir Íslendingar átt kost nægrar atvinnu og ekki sjálfir getað annað þeim störfum öllum, sem leysa hefur þurft af hendi. Þær ríkisstj., sem hér hafa verið seinustu 16 árin, hafa því ekki átt við erfiðleika atvinnuleysisins að stríða. Hér hefur hins vegar verið stöðugt vaxandi verðbólga öll þessi ár, að vísu mismunandi ört vaxandi, en ætið vaxandi, sífellt kapphlaup á milli verðlags og kaupgjalds. Síðan á styrjaldarárunum hefur engin ríkisstj. verið mynduð í landinu, án þess að meginverkefni hennar hafi verið að leitast við að stöðva verðbólguna og gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir, að framleiðslutæki þjóðarinnar stöðvuðust vegna ósamræmis á milli framleiðslukostnaðar og afurðaverðs. Til ýmissa aðgerða hefur verið gripið. Sumar hafa dregið úr vaxandi verðbólgu um skeið, aðrar hafa beinlínis aukið verðbólguna. En allar eiga þessar aðgerðir það sameiginlegt, að engin þeirra hafði megnað að koma á jafnvægi og stöðvun verðbólgunnar, þegar núv. ríkisstj. var mynduð.
Róttækustu ráðstafanirnar voru gerðar, er gengi krónunnar var fellt í ársbyrjun 1950. Glæfraleg fjármálastjórn og algert hirðuleysi um nauðsynlegar hliðarráðstafanir urðu hins vegar meðverkandi orsök þess, að gengislækkunin kallaði yfir þjóðina ægilegri verðbólgu en nokkru sinni fyrr. Þegar stjórn Ólafs Thors fór frá völdum í s.l. júlímánuði, var svo komið, að engum heilskyggnum manni duldist, að alger stöðvun framleiðsluatvinnuveganna var yfirvofandi og að þjóðarskútan sogaðist fram og aftur stjórnlaus í brimgarðinum. Seinustu 12 mánuðina sem Sjálfstfl. fór með stjórnarforustuna hafði vísitalan hækkað um 20 stig, og frá því að Ólafur Thors gerði seinustu svokölluðu dýrtíðarráðstafanir sínar í ársbyrjun 1956 og þar til hann fór frá 6 mánuðum síðar jókst dýrtíðin um tæp 13 stig.
Fyrirsjáanlegt var, að ef ekkert væri að gert, mundi vísitalan komast yfir 200 stig við lok ársins 1956. Enginn þarf að efast um, hvað slík gífurleg hækkun vísitölunnar hefði þýtt. En við þessum arfi tók núverandi ríkisstj., er hún var mynduð í s.l. júlímánuði. Það hlaut að sjálfsögðu að verða fyrsta verkefni núv. ríkisstj. að koma í veg fyrir yfirvofandi stöðvun framleiðsluatvinnuveganna, og í stefnuyfirlýsingu sinni tók ríkisstj. fram, að hún liti á stöðvun verðbólgunnar sem eitt af höfuðverkefnum sínum.
En hvaða leiðir átti að fara til að ná þessu marki, og hvað bar að forðast? Hver var höfuðástæðan fyrir því, að jafnan hafði tekizt svo ógiftusamlega til, þegar Sjálfstfl. hafði farið með stjórnarforustu? Hver var t.d. ástæðan til þess, að Sjálfstfl. tókst að hækka vísitöluna um 89 stig á 1/2 ári, er hann fór einn með stjórn árið 1942, og innleiddi þar með verðbólguna í íslenzkt efnahagslíf? Hver var ástæðan fyrir því, að Sjálfstfl. tókst að hækka vísitöluna um 20 stig seinustu 12 mánuðina, áður en hann hrökklaðist frá völdum á s.l. ári?
Þessum spurningum er öllum auðsvarað. Stjórnarforusta Sjálfstfl. hafði vanrækt að leita eftir og koma á nauðsynlegu samstarfi ríkisvaldsins, launþegasamtakanna og framleiðenda. Stefna og aðgerðir Sjálfstfl. í efnahagsmálum hafa verið með þeim hætti, að launþegasamtökin hafa ekki getað sætt sig við þær. Afleiðingin hefur verið, að hvert verkfallið eftir annað hefur skollið á. Sama er að segja um framleiðendur. Útvegsmenn áttu í styrjöld við ríkið á stjórnarárum Sjálfstfl. og beinlínis stöðvuðu útflutningsframleiðsluna til stórkostlegs tjóns fyrir þjóðina. Er það nægilega alvarlegt fyrir þjóðfélagið, þegar til stórdeilna dregur á milli launþega og atvinnurekenda, þó að ekki bætist við, að báðir þessir aðilar eigi einnig í styrjöld við ríkisvaldið. Þegar svo er komið er vá fyrir dyrum.
Á þessu ástandi varð að verða breyting, ef ekki átti illa að fara. Minnugir ófara Sjálfstfl. og stefnu sinni trúir lýstu stjórnarflokkarnir því yfir, er núv. ríkisstj. hóf störf sín, að hún mundi taka upp samstarf við samtök verkalýðs og launþega, bænda og útgerðarmanna og annarra framleiðenda til að finna sem heppilegasta lausn á vandamálum atvinnuveganna. Ég hef engan sanngjarnan mann hitt, sem ekki skilur og viðurkennir, að hér er tekin upp sú eina stefna, sem gat verið þess megnug að leiða þjóðina út úr þeim ógöngum, sem í var komið. Spurningin er, hversu til hefur tekizt um framkvæmdina.
Eitt af fyrstu verkum ríkisstj. var að ná samkomulagi til bráðabirgða við verkalýðssamtökin um að falla frá þeirri vísitöluhækkun, sem launamenn áttu kröfu á, gegn því, að landbúnaðarvörur hækkuðu ekki, og ríkisstj. setti lög, sem bönnuðu verðhækkanir til áramóta. Afleiðingin af þessu varð sú, að vísitalan hélzt óbreytt í 184 stigum í stað þess að hækka upp í a.m.k. 200 stig. Næsta sporið var að hefja samninga að nýju við stéttasamtökin um, hvað gera skyldi, til þess að framleiðslan, sem öll var að stöðvast við sjávarsiðuna, gæti haldið áfram. Þær samningaumleitanir leiddu til þess, að bátagjaldeyriskerfið var lagt niður og millifærsluleiðin tekin upp. Ég ætla ekki að rekja hér þá löggjöf, sem sett var á þessum grundvelli, en legg áherzlu á. að það, sem þarna var gert, byggðist í einu og öllu á algeru samkomulagi við launþegasamtökin og framleiðendur. Þessir aðilar féllust á aðgerðir ríkisstj. í efnahagsmálunum og tóku upp samvinnu við hana um framkvæmd þeirra. Með þessu tókst ríkisstj. að ráða fram úr vandamálum framleiðsluatvinnuveganna í samstarfi við vinnustéttirnar og framleiðendur og tryggja sér samvinnu við þessa aðila um framkvæmd úrræðanna.
Allir þjóðhollir og sanngjarnir Íslendingar, hvar í flokki sem þeir stóðu, fögnuðu því, að nú hafði tekizt að ráða fram úr vandanum með samkomulagi við þessa aðila, og menn sáu fram á, að nú var að skapast sá grundvöllur, sem nauðsynlegur var til að koma jafnvægi á í efnahagslífinu og stöðva kapphlaupið milli verðlags og launahækkana.
En hvað hafði Sjálfstfl., stjórnarandstaðan, til þessara mála að leggja? Hverjar voru till. Sjálfstfl. til úrlausnar vandamála framleiðsluatvinnuveganna og efnahagsmálanna? Sjálfstfl. gerði sér það áreiðanlega ljóst, að aðgerða var þörf, til þess að atvinnurekstur landsmanna stöðvaðist ekki algerlega. Og það er vissulega rétt, sem segir einhvers staðar í Morgunblaðinu, að sumir af leiðtogum Sjálfstfl. hafa varið mörgum árum af ævi sinni til að vara við hættu verðbólgunnar. En hver voru úrræði flokksins? Það vakti athygli. að þegar till. ríkisstj. um lausn efnahagsmálanna voru til meðferðar í þinginu á s.l. hausti, hafði Sjálfstfl. ekkert til málanna að leggja. Þessi flokkur, sem sífellt gumar af því að vera stærsti flokkur þjóðarinnar, hafa á bak við sig 41% kjósenda, vissi ekkert, hvað hann vildi í efnahagsmálunum, kunni á engar leiðir að benda sem líklegar til að ráða fram úr þeim vanda, sem Sjálfstfl. þó hafði haft forustuna um að koma þjóðinni í. Sjálfstæðismenn færðu sér það til afsökunar, að þeir hefðu ekki átt þess kost að kynnast athugunum erlends hagfræðings, er hér dvaldi í nokkra daga á s.l. hausti, og því ekki getað gert neinar till. í efnahagsmálunum. Hafa menn heyrt aumari fyrirslátt? Flokkurinn, sem sífellt gumar af mikilhæfu forustuliði, djúptækri þekkingu á efnahagslífi þjóðarinnar, flokkurinn, sem telur sig öllum öðrum hæfari til forustu í þjóðmálum, veit ekkert hvað hann vill, veit engin úrræði í efnahagsmálunum, vegna þess að erlendur maður, sem hér dvelur í nokkra daga, leiðbeinir flokknum ekki í þessum efnum. Þetta er risið á forustu Sjálfstfl. eftir allt skrumið. En Sjálfstfl. gerði annað. Hann bar fram till. um þingrof og nýjar kosningar, væntanlega í þeim tilgangi, að þjóðin fengi honum ráðin f landinu. Till. var þó ekki rökstudd með því, að ríkisstj. réði ekki við vandamálin né að Sjálfstfl. kynni á þeim betri skil. Rökin voru þau og þau ein, að úrræði ríkisstj. væru eiginlega stolin frá Sjálfstfl. Ég efast um, að nokkru sinni hafi verið aumari og vesælli stjórnarandstaða á Íslandi. Fyrst lýsir Sjálfstfl. því yfir, að forustumenn hans viti engin ráð í efnahagsmálunum, og síðar, þegar ríkisstj. er búin að leysa vandann, gerir flokkurinn sig að því viðundri að heimta þingrof og nýjar kosningar með þeim yfirlýstu rökum, að ríkisstj. hafi ekki gert annað en það, sem Sjálfstfl. vildi sjálfur gert hafa.
Ég þykist ekki þurfa að eyða að því orðum, hversu fjarri því fer, að úrræði ríkisstj. í efnahagsmálum eigi nokkuð skylt við úrræði Sjálfstfl. Það hefur aldrei verið stefna Sjálfstfl. að leysa vandamál efnahagslífsins í fullu samráði við stéttasamtökin, eins og núv. ríkisstj. gerir, ekki aðeins að því er varðar val leiða út úr erfiðleikunum, heldur einnig að því er varðar hliðarráðstafanir og sjálfa framkvæmd þess, sem gert er.
Það má segja, að fyrstu viðbrögð stjórnarandstöðunnar við till. ríkisstj. til lausnar efnahagsmálanna hafi verið meinlaus. Það kom ekki að sök, og þess var ekki einu sinni saknað, þó að Sjálfstfl. hefði engar till. að gera til lausnar efnahagsmálunum. Og flokkurinn gerði sig bara hlægilegan, þegar hann bar fram till. um þingrof. En hitt var alvarlegra, þegar Sjálfstfl., eftir að efnahagsráðstafanirnar komu til framkvæmda, neytti allra bragða til þess að grafa undan efnahagslífi þjóðarinnar og koma af stað nýrri verðbólgu. Það er að sjálfsögðu bæði réttur og skylda stjórnarandstöðunnar að gagnrýna það, sem hún telur miður fara hjá ríkisstjórninni. Sú stjórnarandstaða, sem ekki gerir það, er ekki vanda sínum vaxin. En þegar stjórnarandstaðan grípur til þess örþrifaráðs að leitast við að eyðileggja efnahagskerfi þjóðarinnar, þá er lengra gengið en svo, að þjóðin megi láta bjóða sér slíkt. En það er einmitt þetta, sem forusta Sjálfstfl. er nú að leitast við að gera.
Þegar ríkisstj. gerði samkomulagið við stéttarfélögin og framleiðendur landbúnaðarvara á s.l. sumri um, að vísitöluhækkun við greiðslu kaupgjalds og hækkun landbúnaðarvara skyldi ekki koma til framkvæmda, ráku blöð Sjálfstfl. upp óp mikið. Þessi blöð, sem alla tíð höfðu verið málsvarar andstæðinga verkalýðsins í öllum kaupdeilum og alltaf barizt á móti kjarabótum verkafólks, urðu nú skyndilega málsvarar verkamanna og töldu, að ríkisstj. væri að rýra kjör launþega og bænda með því að koma í veg fyrir, að verðlag og kaupgjald hækkaði á víxl. Með málflutningi sínum leituðust blöð Sjálfstfl. á allan hátt við að skapa óánægju hjá verkafólki og bændum með þetta samkomulag í því skyni að koma í veg fyrir áframhaldandi samstarf þessara aðila við ríkisstj. um efnahagsmálin. Létu forustumenn Sjálfstfl. sér ekki segjast, þó að mikill hluti óbreyttra flokksmanna þeirra varaði þá alvarlega við slíkum málflutningi. Ekki tók þó betra við, eftir að Alþ. hafði samþ. efnahagsráðstafanirnar í s.l. desembermánuði. Sjálfstfl. gerir sér það ljóst, að samstarfið við stéttasamtökin eru grundvöllurinn að góðum árangri aðgerða ríkisstj. í efnahagsmálum. Þess vegna gerir flokkurinn allt, sem í hans valdi stendur, til þess að eyðileggja þetta samstarf og koma af stað nýrri verðbólguöldu. Í verkalýðsfélögunum reyna forustumenn Sjálfstfl. að beita sér fyrir kröfum um hækkun launa, uppsögn samninga og vinnustöðvanir. Þær leiðréttingar, sem nokkur stéttarfélög hafa fengið á kaupi og kjarasamningum sínum við atvinnurekendur, eru blásnar út og ýktar, svo að undrun sætir, í. þeim tilgangi einum að koma öðrum stéttarfélögum út í vinnudeilur. Sjálfstfl. minnist ekki svo á þessi mál, og það gerir hann oft, að hann haldi því ekki á lofti, að samstarf ríkisstj. við verkalýðsfélögin sé ekki traustara en svo, að stéttarfélagið Iðja í Reykjavík, sjómannafélagið í Grindavík, farmannadeild Sjómannafélags Reykjavikur, blaðamenn og flugmenn hafa fengið launahækkun fyrir skömmu með samningum við atvinnurekendur.
Ég ætla ekki að fara að rekja þessi tilfelli hér, en vil aðeins benda á nokkur atriði, sem sýna, hvernig þessi málflutningur er.
Launahækkun sú, sem Sjálfstfl. er að þrástagast á hjá sjómönnum í Grindavík, er í reyndinni sú, að með samningum sjómanna og útgerðarmanna þar var hlutur lækkaður, en ekki hækkaður, en trygging sjómanna á bátum með undir lágmarksafla hækkuð. Kröfur Sjómannafélags Reykjavíkur um kjarabætur til farmanna eru til orðnar, áður en ríkisstj. var mynduð, og stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur fór ekkert dult með það snemma á seinasta ári, að farmenn teldu óhjákvæmilegt að taka um næstu áramót upp baráttu fyrir vissum leiðréttingum á samningi sinum. Þetta var gert án þess, að til almennra grunnkaupshækkana kæmi hjá farmönnum. Iðjufélagarnir voru komnir svo langt aftur úr öðrum með launagreiðslur sínar, að iðnrekendur munu nokkuð almennt hafa greitt starfsfólki hærri laun en samningar sögðu fyrir um til þess að geta haldið starfsfólki sínu.
En hvað sem öllum áróðri Sjálfstfl. líður, verður ekki annað sagt en að stéttasamtökin hafi sýnt á því fullan skilning, að stöðvun verðbólgunnar og dýrtíðarinnar er fyrst og fremst hagsmunamál launþeganna í landinu og að farsælasta kjarabótin er að tryggja og leitast við að auka kaupmátt launanna. Hin miskunnarlausa barátta og áróður Sjálfstfl. fyrir því að eyðileggja tilraunir ríkisstj. Til að stöðva verðbólguna, er því ósvífin og hatrömm árás á afkomu vinnandi fólks.
En barátta Sjálfstfl. gegn hagsmunum almennings hefur komið fram á fleiri sviðum en því einu að reyna að koma hér á stað nýrri verðbólgu. Í stefnuyfirlýsingu sinni hét ríkisstj. því að beita sér fyrir, að hafizt yrði handa um framhaldsvirkjun Sogsins, smíði 15 togara og að leita eftir erlendum lánum til framkvæmda í landbúnaði, iðnaði og hafnargerðum. Fráfarandi ríkisstj. hafði á árunum 1954–55 og fram til stjórnarskiptanna 1956 leitað eftir lánum erlendis án árangurs, nema hvað nokkurt lán fékkst til sementsverksmiðjunnar, en þó hvergi nærri fullnægjandi. Engin lán höfðu reynzt fáanleg til Sogsvirkjunarinnar, raforkuframkvæmda í dreifbýlinu, ræktunarsjóðs, fiskveiðasjóðs og annarra framkvæmda. Allar voru þessar framkvæmdir mjög aðkallandi og erlend lán til þeirra nauðsynleg.
Ríkisstj. gerði sér í upphafi ljósa þá erfiðleika, sem henni mundu mæta við útvegun þessara lána erlendis, enda var siður en svo árennilegt að leita eftir lánum erlendis, eftir að fráfarandi ríkisstj. hafði fengið neitun á öllum hugsanlegum stöðum. Stjórnarandstaðan átti heldur ekki þá þjóðhollustu til að bera að vilja a.m.k. láta afskiptalaust á erlendum vettvangi, hvort ríkisstj. tækist að afla nauðsynlegra lána til framdráttar öðrum eins þjóðþrifamálum og rafvæðingu dreifbýlisins, Sogsvirkjuninni, ræktunarsjóði, fiskveiðasjóði og öðru slíku.
Allir landsmenn þekkja nú, hvernig stjórnarandstæðingar símuðu látlausan róg og ósannindi um ríkisstjórnina til erlendra blaða og fréttastofnana þegar eftir myndun ríkisstjórnarinnar. Öll var þessi fréttastarfsemi rekin í þeim tilgangi að koma af stað tortryggni í garð Íslendinga hjá vinum þeirra erlendis, veikja álit okkar og traust, þar með lánstraust, og koma í veg fyrir, að okkur tækist að leysa mál okkar á erlendum vettvangi. Erlendur blaðamaður, sem hér var á ferð nýlega, hefur skýrt frá því í blaðagrein, að einn af forustumönnum stjórnarandstöðunnar hér hafi verið mjög þungorður í garð Bandaríkjamanna fyrir að ljá máls á því að veita ríkisstj. Íslands dollaralán. Svona framkoma gegn hagsmunum þjóðarinnar þekkist ekki í neinu landi. En stjórnarandstaðan hér lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Ef hún telur sig geta valdið stjórninni erfiðleikum, er ekki um það hirt, þó að þjóðinni í heild sé bakað með því tjón.
Sem betur fór, missti áróður stjórnarandstæðinga marks á erlendum vettvangi. Stjórnarandstæðingar gerðu með áróðri sínum erlendis sömu skyssuna og þeir gera hér heima í sambandi við efnahagsmálin. Þeir gengu of langt. Mönnum erlendis varð ljóst, að á bak við áróður stjórnarandstæðinga lágu annarlegar hvatir, en ekki þjóðhollusta, alveg á sama hátt og Íslendingum er ljóst, að á bak við aðgerðir stjórnarandstæðinga í efnahags- og launamálunum liggur ekki þjóðhollusta, heldur valdafíkn. Ríkisstj. hefur því tekizt að fá nokkur lán erlendis, m.a. til virkjunar Sogsins.
Á seinasta landsfundi Sjálfstfl., í apríl 1956, hélt Ólafur Thors mikla yfirlitsræðu. Þar komst hann svo að orði, er hann lýsti eðli og stefnu Sjálfstfl.:
„Við berjumst fyrir hagsmunum okkar sjálfra, flokks okkar og þjóðar.“
Það vakti athygli, hversu hreinskilinn formaður Sjálfstfl. var að viðurkenna svo afdráttarlaust, að sjálfstæðismenn berðust fyrst og fremst fyrir einkahagsmunum, þar á eftir fyrir hagsmunum flokksins, en hagsmunir þjóðarinnar kæmu ekki fyrr en í þriðju og. seinustu röð á eftir þessu hvoru tveggja. Í stjórnarandstöðunni hefur Sjálfstfl. sýnt það, að hann er þessu kjörorði formannsins trúr. Hann berst dyggilega fyrir einkahagsmunum og flokkshagsmunum, en til þessa er flokkurinn ekki komin að baráttunni fyrir þriðja atriðinu, þjóðarhagsmununum, nema síður sé.
Fyrir nokkrum árum lýsti þekktur kommúnisti því yfir, að sig varðaði ekkert um þjóðarhag. Að vonum vöktu þessi ummæli þjóðarhneyksli og voru talin glæpur. Í stjórnarandstöðunni virðist mér Sjálfstfl. hegða sér þannig, að ég sé ekki betur en hann sé búinn að stela glæpnum frá þessum gamla, þekkta kommúnista. — Góða nótt.