28.05.1957
Sameinað þing: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (90)
Almennar stjórnmálaumræður
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Það er viðtekin regla, að í eldhúsumræðum bera þm. fram aðfinningar sínar við gerðir stjórnarinnar, en hún svarar til saka. Nú stendur svo á, að til réttmætrar gagnrýni endast engan veginn þau tvö kvöld, sem ætluð eru til umræðnanna, og verður því að sleppa ýmsu, sem þörf væri á að telja upp, og engan veginn er færi til að ræða um annað, sem freistandi væri, svo sem samanburð á stjórnmálaflokkunum, stefnu þeirra og úrræðum. En með þessari eldhúsumr. gefst ekki tími til þess, þó að ýmislegt athyglisvert hafi nú þegar komið fram í þeim efnum, eins og yfirlýsing hæstv. félmrh., Hannibals Valdimarssonar, í gær um, að kaupmenn, iðnrekendur og verkalýður hefðu, þegar grandskoðað væri, sameiginlega hagsmuni. Einhvern tíma hefði slík yfirlýsing um fánýti stéttabaráttunnar frá fulltrúum kommúnista þótt tíðindum sæta. Við, sem ætíð höfum haldið því fram, að stétt ætti að standa með stétt, höfum vissulega ástæðu til að fagna slíkri yfirlýsingu, ef um hugarfarsbreytingu væri að ræða, en ekki marklausan feluleik.
Þá var sú kenning Hannibals ekki siður íhugunarverð, að ef launþegar hefðu fengið 6 stiga uppbótina, sem þeir áttu rétt til á síðasta hausti, mundu þeir eftir örskamma stund hafa verið beint verr komnir um lífsafkomu sína en áður. En ef þetta er rétt, af hverju gildir þetta ekki alveg eins um allar vísitöluuppbætur? Af hverju hefur Hannibal þá ekki barist á móti vísitöluuppbótum undanfarin ár? Og af hverju lét hann vísitöluskrúfuna í gang aftur um áramótin? Af hverju fagnaði hann beint 4 stiga hækkuninni, sem launþegar fá nú um næstu mánaðamót? Nei, auðvitað eru stigin 6, sem Hannibal svipti launþega, engrar sérstakrar náttúru. Um þau gilda alveg hið sama og aðrar hækkanir, sem hann sjálfur hefur manna skeleggast barizt fyrir.
Þá var býsna fróðlegt að heyra til Braga Sigurjónssonar, sem auðsjáanlega var betur að sér í þjóðsögum en þingmálum. Hann kannast því eflaust við söguna um hann Jón, sem settist á krossgötur um áramótin, hitti þar álfa og stóðst allar freistingar þeirra, þangað til að flotinu kom. Þá varð honum að orði: „Sjaldan hef ég flotinu neitað.“ Á sama veg fór fyrir þessum hv. þm., Braga Sigurjónssyni. Fyrst eftir að hann kom til þings, neitaði hann öllum gýligjöfum stjórnarliðsins og hélt meira að segja rösklega ræðu utan þings um, hversu margt hefði báglega til tekizt í stjórnarsamstarfinu. En þá buðu álfarnir honum flotið, áframhaldandi þingsetu, að vísu með hæpnum rétti og til að bola af þingi dr. Gunnlaugi Þórðarsyni, sem ekki hafði greitt atkv. eins og honum var sagt. Bragi stóðst ekki freistinguna og talaði í gær á allt annan veg en áður en hann þáði flotið. Nú hrósaði hann stjórninni á hvert reipi, en áður gagnrýndi hann hana. Þá viðurkenndi Bragi t.d., að ríkisstj. hafi ekki, eins og hann sagði, framfylgt yfirlýstri stefnu í varnarmálunum. Um svo augljósa staðreynd ætti að vera óþarfi að deila, enda er það versta engan veginn að hætta við að framfylgja yfirlýstri stefnu, þegar hún reynist röng. Slíkt er út af fyrir sig fremur vert lofs en lasts, þó að hæpið sé, að sá, sem hefur fengið völdin á svo fölskum forsendum, eigi að halda þeim eins og ekkert hafi í skorizt. Miklu verra er þó, að nú veit enginn, hvaða stefnu ríkisstj. hefur í þessum efnum, og ekki fræddust menn mikið um það í gær.
Hæstv. utanrrh. minntist ekki einu orði á utanríkismál í ræðu sinni í gærkvöld. Hann hafði raunar haldið ágæta ræðu um varnarmálin suður í Bonn, og hún fékkst lesin hér í útvarpið á einni kvöldstund. En það er ekki nóg að tala fagurlega suður í Þýzkalandi undir handarjaðri þeirra Adenauers og Dulles, allra sízt þegar það er gert í sömu svifum og stjórnarflokkarnir eru að ryðja kommúnistum braut inn í banka þjóðarinnar til að geta þaðan haldið áfram árás sinni á lýðfrelsi og sjálfstæði þjóðarinnar. Og ekkert stjórnarblaðið birti Bonn-ræðu utanrrh. né vék að henni einu orði lengi vel. Fyrst eftir heimkomu ráðh. skaut eitt stuðningsblaða hans því að honum, eins og blaðið sagði, að „hann virðist stundum með öllu gleyma, að hann situr ekki í ríkisstj. með íhaldsmönnum, heldur í stjórn, sem setti í stjórnarsamning sinn m.a. ákvæði um framkvæmd till. frá 28. marz 1956 um brottflutning bandarísks hers af Íslandi“.
Þetta voru ummæli stuðningsblaðs ráðh., og þau eru vissulega réttmæt.
Guðmundur Í. Guðmundsson greiddi að vísu atkv. með ályktuninni frá 28. marz og fól ríkisstj. til að framkvæma hana. Stundum virðist hæstv. ráðh. eindreginn í að koma í veg fyrir framkvæmd þeirrar till.
En hverja afleiðingu taka stjórnarliðar af þeirri staðreynd? Sýna þeir í framkvæmd, að þeir séu utanrrh. og íhaldsmönnum, sem þeir svo nefna, ósammála um nauðsyn dvalar erlends varnarliðs á Íslandi? Í því efni stoðar ekki, eins og gert hefur verið, að hóta ráðh. með því, að gera verði honum „skiljanlegt, áður en mjög langt um líður, að vinsældir hans meðal Morgunblaðsmanna eru í öfugu hlutfalli við vinsældir hans meðal fylgjenda núverandi ríkisstj.,“ eins og stjórnarblað sagði á dögunum. Sú hótun hefur raunar auðsjáanlega ýtt undir ráðh. til að tala eins og hann gerði í gær, enda er von, að hann vilji sýna, að hann sé ekki ætíð þjónn Bjarna Benediktssonar, eins og eitt stuðningsblað hans sakaði hann um. En það mátti ráðh. þó eiga, að ekkert öfugt orð sagði hann um varnarmálin í ræðu sinni í gær, vegna þess að hann minntist alls ekki á þau. En hér er ekki spurning um vinsældir, heldur framkvæmd ákveðinnar stjórnmálastefnu, stuðning við hana og ábyrgð á henni, og óumdeilanlega bera fylgjendur núverandi ríkisstj. ábyrgð á gerðum hennar, hvort sem þær eru vinsælar meðal þeirra eða ekki. Hinn raunverulegi stuðningur og ábyrgð verður aðeins gleggri við það, þegar safnað er áskorunum ýmissa aðila um, að þessari stefnu skuli breyta. Allur sá málatilbúnaður skapar að vísu fullkomna óvissu um, hvað verða muni í framtíðinni, ef þessir flokkar ráða, en haggar ekki hætishót ábyrgð þeirra á því, sem gerzt hefur og er að gerast.
Ríkisstj. hefur ekki látið sér nægja að framfylgja ekki yfirlýstri stefnu um þetta, heldur hefur hún tengt þá stefnubreytingu öðrum málum á ósæmilegan hátt. Við sjálfstæðismenn höfum ætíð haldíð því fram, að varnarmálin verði að meta eftir nauðsyn þeirra sjálfra, verja verði Ísland, ef þess sé þörf vegna íslenzku þjóðarinnar, annars ekki. Stjórnarliðið hefur aftur á móti gert þetta mál að verzlunarvöru. 4 millj. dollara lánveiting Bandaríkjamanna í des. úr öryggissjóði þeirra var bein forsenda stjórnarliðsins fyrir varnarsamningnum við Bandaríkin rétt áður, þegar horfið var frá að framfylgja hinni yfirlýstu stefnu, enda var stjórninni þá lífsnauðsyn að fá þessa skildinga handa á milli, svo var þá illa fyrir henni komið.
Gegn þessum staðreyndum duga engar neitanir. Þær eru örugg sannindi, og ráðherrarnir gera einungis veg sinn enn minni með því að neita þeim. Þvílík synjun sannleikans stoðar þá ekki heldur um Sogslánið. Jafnvel Þjóðviljinn gat ekki orða bundizt í fyrstu um þá forsmán að tengja það góða og nytsama mál varnarsamningnum á þann veg, sem gert var. Hinn 8. des. sagði Þjóðviljinn: „Í sambandi við hernámssamningana hefur Bandaríkjastjórn boðið Íslendingum 160 millj. kr. lán til Sogsvirkjunarinnar.“ Og hinn 9. des. endurtók Þjóðviljinn, að lánstilboðið til Sogsvirkjunarinnar væri í „beinu framhaldi af nýju hernámssamningunum“, og bætti við: „Og það liggur í augum uppi, að hér er náið samband milli þess, sem gerzt hefur í hernámsmálunum, og þessa óvænta lánstilboðs.“ Þetta sagði Þjóðviljinn þá, og þá taldi hann lánstilboðið enn ískyggilegra en hina nýju hernámssamninga, sem blaðið nefndi svo. Nú eru bágindi blaðsins slík, að það hælist um yfir, að ríkisstj. hafi tekizt að fá Sogslánið með þeim hætti, sem gert var.
Lánin í Bandaríkjunum urðu raunar minni en í fyrstu var ætlað. Þá birti Þjóðviljinn fregn um 30 millj. dollara efnahagsaðstoð að vestan og bætti við: „Alltaf eru silfurpeningarnir þrjátíu.“ Þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni hafa milljónirnar ekki enn orðið nema ellefu. Þjóðviljinn er þeim mun lítilþægari en sá, sem tók á móti silfurpeningunum þrjátíu og hengdi sig síðan, að blaðið hælist um yfir þeim ellefu, sem ríkisstj. hefur nú hlotið. Ráðherrarnir Hermann og Hannibal brigzluðu í gær stjórn Ólafs Thors um, að henni hafi ekki heppnazt að fá Sogslán. Með þeirri ásökun er enginn fremur fyrir hittur en núverandi starfsbróðir þessara manna, Eysteinn Jónsson. Á honum hvíldi lögum samkv. forusta um lántökur þá eins og nú, og eiga því öll óvirðingarorð þeirra um þetta fyrst og fremst við Eystein. En Ólafur Thors fékk frá Þjóðverjum tilboð um 400 millj. kr. lán, og er óskiljanlegt, að núverandi ríkisstj. skuli ekki hafa fylgt því tilboði eftir, ef traust hennar út á við er jafngrunnmúrað og hún heldur fram.
Sogslán var vissulega einnig fáanlegt fyrir kosningar hjá Bandaríkjamönnum, og lá ákveðið tilboð fyrir um það, ef við þá voru gerðir margra ára samningar um orkusölu til Keflavíkurflugvallar. Það þótti þá ekki rétt.
Nú horfir öðruvísi við. Bragi Sigurjónsson hefur kveðið upp úr með það, sem hluti stjórnarliðsins er nú að brugga. Alþýðublaðið 16. maí hefur eftir honum: „Sjálfur kvaðst hann ekki leyna þeirri skoðun, að sér þættu ýmsir ófýsilegir agnúar á þeirri stefnu að láta herinn vera ýmist að koma eða fara eftir veðrum heimsmálanna. Verður erlendur her okkur ekki enn hættulegri bólguhnútur í efnahagslífinu með slíkum hætti og sem þjóðernislegt og þjóðfélagslegt vandamál heldur en stöðugri seta í smáum stíl og afmörkuð.“
Þetta voru orð Braga Sigurjónssonar, og verður þá mælt mál ekki lengur skilið, ef ekki felst í þeim till. um varanlega, stöðuga hersetu í landinu. Er þá bilið orðið býsna mikið frá því, þegar hæstv. forsrh., Hermann Jónasson, sagði fyrir kosningar, að betra væri að vanta brauð en þola vist erlends varnarliðs í landinu.
Hermann Jónasson fáraðist í gær mjög yfir fréttaflutningi héðan til annarra landa. Ótrúlegur barnaskapur er, að sjálfstæðismenn ráði því, hvað um þjóðina er sagt erlendis. Sú staðreynd, sem hvarvetna þótti tíðindum sæta, en Hermann vildi umfram allt að þagað væri um, var sú, að hann myndaði ríkisstj. með kommúnistum í því skyni að gera landið varnarlaust. Hinar frjálsu lýðræðisþjóðir óttuðust að vonum þann fleyg, sem þannig átti að reka í varnarkerfið, og hafa því sjálfar sent fleiri fréttamenn til landsins síðasta árið en nokkru sinni áður.
Hermann sagði sjálfur í útvarpinu í fyrra fyrir kosningar, að þær færu fram í ásýnd alls heimsins. En hann varð manna fyrstur til að kveinka sér, þegar hann heyrði undirtektir umheimsins. Ef til vill hefur órói þeirra, sem yfir mestum peningunum ráða, nokkuð minnkað, eftir að þeir sáu, að hér var ekki um að ræða kæruatriði hjá hæstv. ríkisstj., heldur peningaspursmál. Hvort álit okkar hefur aukizt að sama skapi, er annað mál, og öryggið er auðsjáanlega valt, því að ekki eru Rússar alveg peningalausir heldur.
Vegna frammistöðu forsrh. í þessu máli og öðru sagði greindur og gegn maður nýlega: Hermanni fer eins og barnakennaranum, sem réð ekkert við börnin, er lúta áttu stjórn hans. Eitt sinn, þegar allt ætlaði um koll að keyra í bekknum, sagði hann: „Þið megið láta eins og þið viljið, krakkar mínir, bara ef þið lofið mér að vera inni í stofunni hjá ykkur.“ Á sama veg fer um Hermann Jónasson. Hann skeytir engu um málefni né háarifrildi stuðningsmanna sinna, aðeins ef hann fær að sitja með inni í forsætisráðherraherberginu. — Þetta sagði lífsreyndur maður.
En málgagn forsrh., Tíminn, sem raunar hefur nýlega verið látinn á erlendum vettvangi afneita ábyrgð á skrifum ritstjóra síns, er alveg hissa á því, af hverju menn séu að deila um varnarmálin, þar sé galdur sá einn að hafa orðalagið slíkt, að það segi í rauninni ekki neitt, svo að hver geti túlkað það eins og honum sjálfum líkar. Vera kann, að þetta stefnuleysi haldi stjórninni saman við völd um sinn. En hvernig stjórnarsinnar sjálfir líta á þetta í raun og veru, sést af því, að þegar ferðalangur á dögunum sagði erlendis, að forsrh. okkar væri ákaflega vinsæll, prentaði málgagn stærsta stjórnarflokksins þá frásögn upp sem eins konar „kuriosum“ — skrýtilegt fyrirbæri — og hafði þann formála, að grein mannsins bæri þess „nokkur merki“, eins og blaðið sagði, að höfundur hefði haft lítinn tíma til annars en „veizluhalda með háttsettu fólki“, og hefði hann ,.þurft að eiga hér lengri dvöl til að kynnast íslenzkri alþýðu“. Þetta sagði stuðningsblað forsrh.
Þá varð forsrh. ekki síður lítið um það gefið í gær, að sagt væri frá staðreyndum efnahagslífsins. Þar er hann sammála Eysteini Jónssyni, sem raunar allt aðrar og meiri málefnakröfur verður að gera til en Hermanns Jónassonar. En að sögn Tímans spurði Eysteinn nýlega svo á Alþ.: En hvers vegna er Sjálfstfl. að telja upp þessar og fleiri kauphækkanir? — Örvæntingin í spurningunni, þar sem hún er prentuð í Tímanum, stafar af prentsvertunni, með sama hætti og hún hljómaði fyrir eyrum okkar, sem heyrðum hana á Alþ. Já, af hverju er verið að tala um hækkanir á kaupi og verðlagi og meiri skort á vinnufriði nú en oftast áður?
Ef ekkert af þessu væri fyrir hendi, eins og lesendum Tímans er ætlað að halda, því að þar er vandlega þagað um flesta þýðingarmestu atburðina í þessum efnum, mundum við sjálfstæðismenn þá ekki baka okkur sjálfum tjón með að segja frá slíkum ósannindum? Nei; það er einmitt vegna þess, að allt, sem við segjum um þetta, er satt, sem stjórnarliðið með Eystein Jónsson í broddi fylkingar bregzt svo við sem raun ber vitni um. Það er vegna þess, að Eysteinn Jónsson verður að viðurkenna sína eigin sök, að hann bregzt reiður við, þegar sagt er frá staðreyndunum. Hann þolir ekki að vera minntur á eigin misgerðir. Sannleikurinn verkar á hann eins og salt í opið sár.
Auðvitað veit Eysteinn Jónsson, að hann — hann sjálfur — opnaði verðhækkunar- og kauphækkunarflóðgáttina á ný með tvenns konar verknaði, sem hann öðrum fremur ber ábyrgð á og framinn var, meðan kaupbindingar- og verðfestingarlögin voru í gildi frá ágústlokum til áramóta.
Lúðvík Jósefsson og Hannibal Valdimarsson bera raunar fyrst og fremst hina formlegu ábyrgð á Hamrafellsokrinu, þegar teknar voru 15 millj. kr. af neytendum gersamlega að ástæðulausu. En það var Eysteinn Jónsson, sem með harðfylgi sínu neyddi Lúðvík til samninga um þá verðlagningu, sem verðlagsyfirvöldin höfðu einhliða ákvörðunarvald um. Ríkisstj. Íslands settist þarna á bekk með okrurunum og samdi við þá um hið geipilegasta okur, sem með einni ákvörðun hefur verið framið í Íslandssögu. Lúðvík Jósefsson var að vísu lítt stjórnvanur, þegar þetta gerðist, en hann hefði átt að kunna skil á viðsemjendum sínum.
Forráðamenn Olíufélagsins höfðu áður verið dæmdir af sjálfum hæstarétti þjóðarinnar fyrir fáheyrt okur, og voru þá nær 1200 þús. kr. af okurgróða þeirra gerðar upptækar til ríkissjóðs og hinn sekasti sakborninga var dæmdur í 100 þús. kr. sekt eða til vara í 9 mánaða varðhald. Fjmrh., Eysteinn Jónsson, launaði þessum okurherra með því að gera hann skömmu síðar að forstjóra Tóbakseinkasölu ríkisins. Þau spor áttu sannarlega að hræða skyni borna menn. En Lúðvík Jósefsson gekk í gildruna.
Vegna samninganna við Lúðvík verður því að þessu sinni ekki komið við að endurheimta okurálagninguna með dómi. En ofurþungi almenningsálitsins hefur nú þegar neytt þá kumpána til að skila aftur svipaðri upphæð og áður var af þeim dæmd. Nú er raunar sagt, að þeirri endurgreiðslu eigi að fylgja nýir forréttindasamningar Hamrafellinu til handa og það eigi að fá tryggð farmgjöld til áramóta langt yfir heimsmarkaðsverð.
En Eysteinn Jónsson lét ekki við þetta sitja. Á meðan launabindingarlögin voru í gildi, átti hann einnig hlut að því sem varaformaður Sambands ísl. samvinnufélaga, að fast starfsfólk þess fyrirtækis fékk launahækkun, sem nam 8% af grunnkaupi. Aðferðin átti að vera sú í fyrstu að halda þessari miklu kauphækkun leyndri. En upp koma svik um síðir, og nú hafa forustumenn S.Í.S. neyðzt til þess að játa þessa staðreynd, þ. á m. Eysteinn Jónsson hér á Alþ., þó að synd væri að segja, að hann hafi gert það með glöðu geði. Hann reyndi að færa þá afsökun fram, að aðrir hefðu löngu áður verið búnir að fá launahækkanir. Samanburðartilvitnunin í þessum efnum er engin nýlunda. Hún er einmitt hin sífellda afsökun allra kauphækkana. En hér játar sjálfur sökudólgurinn, að langt hafi liðið í milli, og það, sem úr sker: kaupbindingarlögin voru sett í millitíðinni og voru í fullu gildi, þegar Eysteinn framdi verknað sinn.
Að vísu var þess gætt að haga öllu svo, að beinn lagabókstafur væri ekki brotinn, svo að réttvisin getur ekki haft hendur í hári þessara herra. En hvernig getur sá, sem svo fer að sem Eysteinn Jónsson í þessu, komið til annarra og sagt: Alger stöðvun á verðlagi og kaupgjaldi er óhjákvæmileg? Boðorðið gamla um að ætlast ekki til meira af öðrum en sjálfum sér er enn í fullu gildi. Svo greindur maður sem Eysteinn Jónsson finnur þetta glöggt, og þess vegna vill hann láta myrkrið, þögnina skýla sér. Þess vegna eiga það nú nánast að vera landráð að segja frá því, sem oftast ber við nú hér á landi, sem sé nýrri og nýrri hækkun á verðlagi, nýrri og nýrri kaupsamningauppsögn, nýrri og nýrri verkfallshótun og nýrri og nýrri kauphækkun, oftast fyrir forustu eða atbeina sjálfrar ríkisstj. Þá sögu yrði of langt upp að telja, enda bætast þar nýir kaflar við, allir á sömu leið, svo að segja hvern einasta dag.
Síðast í gær var fundur, þar sem þeir Eðvarð Sigurðsson og Guðmundur J. Guðmundsson, kommúnistar, mættu fyrir hönd aðstoðarbifreiðarstjóra og verkamanna í Dagsbrún, sem sagt höfðu upp samningum við Mjólkursamsöluna, og kröfðust 18–20% kauphækkana.
Vörn stjórnarliðsins er sú að kenna okkur sjálfstæðismönnum um þetta, af því að við þegjum ekki um það, sem er að gerast, og rauf Guðmundur Í. Guðmundsson þó töluvert skarð í þann varnarmúr í gær, þegar hann skýrði Iðjuhækkunina á allt annan veg en félagar hans, þeir Hermann og Hannibal, höfðu gert. En regla stjórnarliðsins er sú, að ekki á að vera aðfinningarvert að gera það, sem miður fer, heldur hitt að segja frá því.
Við sjálfstæðismenn munum ekki láta slíkt orðaskak hræða okkur af réttri braut. Undirstaða allra lækninga er að greina sjúkdóminn rétt, átta sig á staðreyndum, orsökum þeirra og afleiðingum.
Á undanförnum árum, þegar við sjálfir vorum við völd, hikuðum við ekki við að benda almenningi á, hverjar afleiðingarnar yrðu, ef kauphækkunar- og verðbólguskrúfunni yrði haldið áfram. Þessari viðleitni hverfum við ekki frá, þó að við séum ekki lengur í ríkisstj. og þó að það sé nú ríkisstj. sjálf, sem höfuðsökina ber, en þar eru raunar að verki hin sömu upplausnaröfl kommúnismans, sem áður báru höfuðsökina og nú hafa slegizt í fylgd með eigingirni, einsýni og ofstæki Framsóknar.
Ríkisstj. hælir sér af þeim framkvæmdum, sem hún hefur fyrirhugað. Allt, sem þar er af viti gert, er byggt á gömlum grunni. Flest af þeim frv., sem talin voru upp í gær og þinginu var hælt fyrir að afgreiða, voru undirbúin að tilhlutan fyrrv. stjórnar. En undir framkvæmdinni verður nú sem fyrr mest komið. Er þar sízt breytt til batnaðar, eins og þegar hæstv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, vill ekki skattleggja brennivínið til menningarmála, eins og nefnd, skipuð af fyrrv. ríkisstj., hafði lagt til, heldur vill hann níðast á kvikmyndahúsamiðum og hækka þannig verð heilbrigðustu almenningsskemmtunarinnar í þéttbýlinu. Hinu versta er hlíft, hitt er skattlagt. Slík er aðferðin, og er þá ekki von, að vel fari. Og broslegt var, þegar hinir nýkosnu þingmenn voru að hælast um yfir afrekum þessa langa og lítilvirka þings. Það er svo sem þeir haldi, að ekkert hafi gerzt á Íslandi, þangað til þeirra atkvæði kom til. Svo var t.d. um skýrslu Björns Jónssonar um hrörnun sjávarútvegsins, en á síðasta ári lánaði þó t.d. fiskveiðasjóður til kaupa og smíða á nýjum skipum að smálestatölu í heild mjög svipað og nemur heildarmagni hinna nýju tólf 200 tonna skipa, sem mest er nú gumað af.
Lítill vandi er að gagnrýna gerðir annarra. Meiri vandi er að gera rétt sjálfur, þegar færi gefst til. Við sjálfstæðismenn óskum ekki að vera dæmdir eftir innantómum loforðum, heldur verkum okkar nú og fyrr. Auðvitað hefur okkur skjátlazt og missýnzt eins og öðrum, en við eigum meiri þátt en aðrir í mesta framfaratímabili íslenzku þjóðarinnar, af því að við erum málsvarar gróandans í þjóðlífinu, lífskraftarins, hagkvæmninnar, framkvæmdarinnar og frelsisins. — Góða nótt.