28.05.1957
Sameinað þing: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

Almennar stjórnmálaumræður

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þegar núverandi ríkisstj. tók við völdum á s.l. sumri, var hin sívaxandi verðbólga alvarlegasta vandamálið í efnahagsmálum þjóðarinnar. Síðustu 12 mánuðina, áður en ríkisstj. var mynduð, hafði vísitalan hækkað um 20 stig eða rúmlega 12%. Meiri hækkun var fyrirsjáanleg um haustið, ef ekki yrði að gert. Þess vegna varð þegar í stað að gripa til viðtækra ráðstafana til þess að stöðva óheillaþróunina, og það var gert.

Núverandi ríkisstj. tókst það, sem ríkisstj. þeim, sem setið höfðu á undan, aldrei tókst, að fá samkomulag við samtök launþega og bænda um festingu verðlags og kaupgjalds til áramóta. Síðan hefur það verið kjarni stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum að vinna gegn verðhækkunum. Hún hefur forðazt að bæta nýjum álögum á brýnustu nauðsynjavörur almennings, þótt fyrrv. ríkisstj. hafi skilið þannig við útflutningsatvinnuvegina, að afla varð mikilla tekna til þess að koma í veg fyrir stöðvun þeirra.

Ríkisstj. hefur með niðurgreiðslum komið í veg fyrir hækkun nokkurra helztu innlendra landbúnaðarafurða til ótvíræðra hagsbóta bæði fyrir neytendur og bændur. Hún hefur tekið upp strangt eftirlit með álagningu í því skyni að lækka vöruverð og draga úr gróða milliliða. Og síðast en ekki sízt hefur hún leitazt við að hafa sem nánust samráð við samtök vinnandi fólks og reynt að taka, svo sem kostur hefur verið, til greina óskir þeirra varðandi ráðstafanir í efnahagsmálum í því skyni að treysta vinnufriðinn.

Allt þetta hefur borið þann árangur, að vísitalan hefur á s.l. 9 mánuðum aðeins hækkað um rúmlega 2%, en verulegur hluti þeirrar hækkunar stafar af óviðráðanlegum erlendum verðbreytingum.

Enginn, sem skynbragð ber á þau vandamál, sem við er að etja í íslenzku efnahagslífi, og hugsar um þau af ábyrgðartilfinningu, mun draga það í efa, að vinna þurfi gegn áframhaldandi verðlags- og kaupgjaldsskrúfu. Ef verðlagið og krónutala kaupsins heldur áfram að hækka, verða þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til þess að tryggja rekstrargrundvöll útflutningsframleiðslunnar, fljótlega algerlega ófullnægjandi. En þannig hefur einmitt farið hvað eftir annað á undanförnum árum, að tilraunir til þess að rétta hag útvegsins hafa þegar í stað leitt til verðhækkana, sem á skammri stundu hafa étið upp mestan hluta þessara hagsbóta.

Þannig fór t.d. um ráðstafanir þær, sem ríkisstj. Ólafs Thors gerði með framleiðslusjóðsl. 1956. Í kjölfar þeirra sigldu þegar í stað verðhækkanir, er höfðu þær afleiðingar að auka varð styrki til útflutningsframleiðslunnar, er á árið leið, og var afkoma útvegsins þó alls óviðunandi.

Enn verr fór þó, þegar gengið var fellt 1950 og verðlag hækkaði um 50% á hálfu öðru ári, svo að grípa varð til enn annarra ráðstafana, til þess að verðlagshækkunin sligaði ekki útveginn.

Einn af ræðumönnum Sjálfstfl. í gærkvöld, hv. þm. N-Ísf., Sigurður Bjarnason, gerði tekjuöflun ríkisstj. til stuðnings útflutningsatvinnuvegunum um síðustu áramót að sérstöku umtalsefni. Hann taldi hana leggja þungar. allt að því óbærilegar byrðar á almenning. Tilgangur hv. þm. er án efa að vekja óánægju meðal almennings með þessar ráðstafanir. En þm. hefur sézt yfir það, að þegar hann gagnrýnir þessar ráðstafanir, er hann í raun og veru alls ekki að gagnrýna núverandi ríkisstj., heldur ríkisstjórn Ólafs Thors. Þessar ráðstafanir voru nefnilega alls ekki nauðsynlegar vegna nokkurra aðgerða núverandi ríkisstj., heldur vegna þess, hvernig fyrrv. ríkisstj. skildi við útflutningsatvinnuvegina. Hv. þm. var því í raun og veru að deila á foringja sinn, Ólaf Thors, fyrir að hafa haldið þannig á málum í stjórnartíð sinni, að slíkar ráðstafanir væru óhjákvæmilegar.

Annars var málflutningur hv. þm. um þessi efni með þeim hætti, að mjög vítavert verður að teljast. Hann beindi máli sínu til húsmæðra og fjölyrti um þau feiknarlegu gjöld, sem þeim hefði verið gert að greiða, og það tók hann sárt, að þessu skyldi vera bætt við öll þau ósköp, sem ríkisstjórnir Sjálfstfl. hefðu lagt á herðar þeirra. Hann beitti reikningslistinni óspart og komst að þeirri niðurstöðu, að hver fimm manna fjölskylda þyrfti nú að greiða 9400 kr. á þessu ári ofan á allt annað og það væri álíka og gert væri ráð fyrir í vísitölugrundvellinum að hún notaði fyrir kjöti og kjötvörum og mjólkurvörum á heilu ári. Það var helzt á ræðumanni að heyra, að á þessu ári mundu fimm manna fjölskyldur varla geta keypt nokkurn kjötbita eða nokkurn mjólkursopa.

Þessi meðferð tölulegra staðreynda er svo furðuleg, hún er svo fáránleg, að menn hlýtur að reka í rogastanz. Annaðhvort er hér um að ræða algert skilningsleysi á undirstöðuatriðum þess efnahagskerfis, sem þjóðin hefur nú um langt skeið búið við, eða fullkomið skeytingarleysi um, að hann fari með rétt mál.

Í fyrsta lagi er það fjarstæða að jafna þessum svokölluðu álögum jafnt niður á allar fimm manna fjölskyldur. Allir, nema þá ef til vill einn af þm. Sjálfstfl., vita, að gjöldin voru einmitt ekki lögð hlutfallslega jafnt á allar innfluttar vörur, heldur var ýmsum nauðsynjavörum hlíft algerlega, en þeim mun hærri gjöld lögð á þær vörur, sem frekar mátti telja til óhófs. Þetta er þó ekki aðalatriðið. Þegar gjöldum þeim, sem aflað er til stuðnings útflutningsatvinnuvegunum, er jafnað niður á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu sem útgjaldaaukningu, sem byrði, eins og málsvarar og blöð Sjálfstfl. eru allajafna að leika sér að, þá er talað eins og þessar millj. verði að engu, eftir að þær hafa verið innheimtar. Vita þessir málsvarar Sjálfstfl. í raun og veru ekki, hvað við þær er gert? Þarf að segja þeim, að þær eru notaðar til þess að hækka fiskverð og kjötverð? Hverjir fá þessar uppbætur? Ef taka ætti orð þessara málsvara sjálfstæðismanna alvarlega, þá er engu líkara en þeir haldi, að fiskaflinn éti þetta fé eða þá að lömbunum séu gefnir peningaseðlar og allar milljónirnar fari þess vegna forgörðum.

Hið vinnandi fólk til sjávar og sveita veit hins vegar betur. Það veit, að vegna þessara ráðstafana hækkar verðið, sem það fær fyrir fiskinn og kjötið. Þessar millj. lenda m.ö.o. fyrst og fremst í vasa þess. Það er tekjuauki fyrir sjómenn, útvegsmenn, bændur, verkamenn, iðnaðarmenn og alla þá, sem vinna við útflutningsframleiðsluna. En þessum tekjuauka sleppa sjálf. stæðismenn úr dæminu, og þess vegna er útkoma þeirra alröng og algerlega út í bláinn. Einu raunverulegu byrðarnar fyrir þjóðarheildina, sem felast í slíkum ráðstöfunum sem þeim, sem gerðar voru um síðustu áramót, eru fólgnar í þeim hluta gjaldanna, sem notaður er til fjárfestingar. En svo skemmtilega vill til, að yfirleitt þau útgjöld vildi Sjálfstfl. auka.

Málflutningur sjálfstæðismanna er því svo botnlaus, að allan almenning hlýtur að reka í rogastanz. Og þegar tekið er tillit til þess, að ráðstafanir um síðustu áramót voru alls ekki nauðsynlegar vegna neinna stjórnarathafna núverandi ríkisstj., heldur eingöngu vegna þess taprekstrar, sem myndazt hafði í útflutningsatvinnuvegunum á valdaskeiði ríkisstj. Ólafs Thors, þegar tekið er tillit til þess, að hér var m.ö.o. um að ræða reikning, sem sú stjórn skildi eftir í stjórnarráðinu og núverandi ríkisstj. varð að greiða, þá verður allur bægslagangur Sjálfstfl. út af þessum ráðstöfunum beinlínis hlægilegur.

Ræðumenn Sjálfstfl. í gærkvöld fjölyrtu um, að allt hefði snúizt á verra veg í efnahagsmálum þjóðarinnar við valdatöku núverandi ríkisstj. Hér er sannleikanum algerlega snúið við. Ég skal nú nefna nokkrar staðreyndir um þróunina síðustu níu mánuði eða frá því er ríkisstj. tók við störfum og geta svo til samanburðar sams konar staðreynda frá síðasta hálfu öðru árinu, þegar ríkisstj. Ólafs Thors sat að völdum.

Á starfstíma núverandi ríkisstj. hefur verðlag aðeins hækkað um rúm 2%, en það hækkaði um 16% á síðustu 18 mánuðum þar á undan. Gjaldeyrisástandið er enn erfitt, en gjaldeyrisstaða bankanna hefur þó batnað um 40 millj. kr. síðan í júlílok í fyrra, en á síðasta hálfu öðru árinu þar á undan versnaði hún um hvorki meira né minna en 113 millj. kr. Einnig hefur dregið úr lánsfjárþenslunni, því að heildarútlán bankanna hafa aukizt um 76 millj. síðustu 9 mánuði, en á síðustu 18 mánuðum þar á undan jukust þau hvorki meira né minna en um 546 millj. kr.

Sömuleiðis má á það benda, að ríkissjóður og stofnanir hins opinbera hafa bætt stöðu sína gagnvart seðlabankanum um 38 millj. í tíð núverandi ríkisstj. Að síðustu má geta þess, að á síðustu 18 mánuðum í stjórnartíð Ólafs Thors jókst seðlaveltan um hvorki meira né minna en 58 millj. eða um 21%, og er þetta ótvírætt verðbólgueinkenni. Undanfarna 9 mánuði hefur seðlaveitan hins vegar lækkað um 20 millj., eða um 6%. Þetta er eitt af mörgum merkjum þess, að dregið hefur úr hinni óheilbrigðu verðbólguþenslu, sem þjáð hefur efnahagslíf Íslendinga mörg undanfarin ár.

Allar þessar staðreyndir hafa vakið óskipta athygli þeirra erlendu fjármálastofnana og samtaka, sem Íslendingar eru aðilar að, og lagt grundvöll að auknu lánstrausti Íslendinga erlendis. Erlendir fjármálasérfræðingar, sem fást við málefni Íslands í alþjóðlegum stofnunum, hafa látið þess getið, að ráðstafanir núverandi ríkisstj. í efnahagsmálum hafi verið mjög til bóta frá því, sem áður var. Hér innanlands viðurkenna þetta og allir nema hinir ábyrgðarlausu leiðtogar Sjálfstfl. og blindustu og ofstækisfyllstu fylgismenn þeirra.

S.l. ár hefur verið tími mikils mótlætis og mikilla rauna fyrir Sjálfstfl. Fyrstu vonbrigðin urðu þau, er Framsókn rauf stjórnarsamstarfið við hann á s.l. vori, af því að hann sá það alveg réttilega, að vandamál efnahagslífsins urðu alls ekki leyst í samvinnu við hann. Þá settist uggur að forustumönnum Sjálfstfl. Þess vegna spöruðu þeir hvorki fé né fyrirhöfn í kosningabardaganum. En kosningaúrslitin urðu ný vonbrigði. Sjálfstfl. tapaði þingsætum í Hafnarfirði, á Akureyri, á Siglufirði, á Seyðisfirði og í Barðastrandarsýslu. Hann vann hins vegar þingsæti í Reykjavík og fékk uppbótarsæti, en þingflokkurinn minnkaði um tvo þm. Samt urðu foringjar Sjálfstfl. ekki verulega hræddir. Þeir trúðu því ekki, að andstæðingarnir gætu komið sér saman. S.l. 2 áratugi höfðu sjálfstæðismenn verið aðilar að öllum ríkisstj. og unnið með öllum hinum flokkunum á víxl. Þó að þeir hafi allir verið mjög andvígir Sjálfstfl., höfðu þeir aldrei getað orðið á eitt sáttir um að vinna saman. í skjóli þess hafði Sjálfstfl. fengið lykilaðstöðu í íslenzkum stjórnmálum og setið í öllum ríkisstj. Þrátt fyrir minnkandi þingflokk treystu foringjar Sjálfstfl. því, að enn mundi svo fara, að ógerningur væri að komast fram hjá sér við stjórnarmyndun. Þeir töldu sig enn ómissandi í ríkisstj. og þeir leyndu því ekki, að þeir vildu mikið til vinna að fá að halda völdum. Það var t.d. sérstaklega athyglisvert, að fyrst eftir kosningarnar sást tæpast styggðaryrði í Morgunblaðinu um Alþb. eða íslenzka kommúnista. En svo kom fregnin um, að Hermanni Jónassyni hefði tekizt að mynda ríkisstj., sem studd væri af andstæðingum Sjálfstfl. á Alþ. Hún kom eins og reiðarslag yfir leiðtoga Sjálfstfl. Var þetta mögulegt, að þeir, sem átt höfðu sæti í ríkisstj. í næstum tvo áratugi og voru búnir að telja sjálfum sér og fylgismönnum sinum trú um, að þeir væru ómissandi í stjórnarráðinu, væru nú allt í einu lentir utan garðs, orðnir áhrifalausir, einskis megnugir á löggjafarþingi þjóðarinnar?

Jú, þetta var staðreynd, að vísu óþægileg, en staðreynd engu að síður.

Foringjar Sjálfstfl. reyndu samt að herða upp hugann og telja kjark í fylgismenn sína, sem höfðu treyst því, að til slíks kæmi aldrei. Þeir sögðu við sjálfa sig og aðra: Þetta getur ekki staðið lengi. Þessi ríkisstj. er svo ósamstæð, að hún springur eftir nokkrar vikur. Hún hlýtur að mæta svo mikilli andspyrnu hjá bandamönnum okkar í Atlantshafsbandalaginu, að hún hlýtur að segja af sér von bráðar.

Sjálfstfl. fór sér því hægt hér innanlands, en lét þjóna sína vera þeim mun athafnasamari erlendis. Tugir skeyta voru send út um allan heim og þó einkum til blaða meðal vestrænna vinaþjóða Íslendinga til þess að ófrægja ríkisstj. og gera henni sem erfiðast fyrir. En þetta bar engan árangur. Ríkisstj. tókst að ná vinsamlegu samstarfi við allar þjóðir, sem Íslendingar hafa haft samskipti við. Henni tókst jafnvel að fá erlend lán, sem ríkisstj. Ólafs Thors hafði árangurslaust leitað eftir árum saman. Þá fauk alvarlega í foringja Sjálfstfl., og þeir sneru reiði sinni ekki síður að erlendum ríkisstj. — og þá fyrst og fremst ríkisstj. Bandaríkjanna — en að íslenzku ríkisstj. Þeir töluðu jafnvel um, að bandaríska stjórnin hefði reynt að múta Íslendingum. En með slíku tali er hinni erlendu ríkisstj. auðvitað fyrst og fremst óvirðing gerð, en ekki þeirri íslenzku.

En þótt ekki tækist að spilla sambúð Íslands og helztu vinaþjóða Íslendinga, sögðu leiðtogar sjálfstæðismanna við sjálfa sig: Þetta stjórnarsamstarf verður engu að síður stutt. Þeir komast ekki einu sinni yfir byrjunarörðugleikana í efnahagsmálunum. — Sjálfstæðismennirnir vissu nefnilega gerla, hvernig þeir skildu við. Erfiðleikarnir voru gífurlegir. Verðhækkun landbúnaðarafurða var yfirvofandi og kauphækkun þá sömuleiðis. Verðbólguhjólið var í fullum gangi. En hvað skeði? Skömmu eftir að núverandi ríkisstj. tók við störfum, tókst henni að koma á samkomulagi milli samtaka launþega og bænda um, að hvorki afurðaverð né kaup skyldi hækkað, enda skuldbatt ríkisstj. sig til þess að sjá svo um, að verðlag hækkaði ekki til áramóta, og efndi það loforð.

Ná fór að fara alvarlega um leiðtoga Sjálfstfl. Þeir höfðu gert það, sem þeir gátu, til þess að koma í veg fyrir þetta samkomulag. En allt hafði komið fyrir ekki. Vonbrigðin voru því mikil og sár. Er hugsanlegt, að þeir geti fundið lausn á efnahagsvandanum um áramótin? spurðu þeir sjálfa sig, fullir af áhyggjum og kvíða.

En þá gerðist allt í einu atburður, sem vakti nýja von í brjósti hinna aðþrengdu leiðtoga Sjálfstfl., að vísu hörmulegur atburður, en þó þess eðlis, að hann kynni að verða Sjálfstfl. gagnlegur í baráttunni gegn ríkisstj. Sovétríkin beittu hervaldi til þess að bæla niður frelsisbaráttu ungversku þjóðarinnar. Nú hlýtur þó að koma að því, andvörpuðu leiðtogar Sjálfstfl. Nú hlýtur ríkisstj. að springa. — En hvað skeði? Ríkisstj. samþ. einróma að harma og fordæma atburðina í Ungverjalandi, og forsrh. flutti þennan boðskap í útvarpið. Enn urðu foringjar Sjálfstfl. fyrir sárum vonbrigðum.

Eftir var þó endurskoðun varnarsamningsins. Nú settu þeir alla von sína á það, að ósamkomulag yrði um það mál í ríkisstj. En þeir fengu ekki að lifa lengi í þeirri von. Samkomulag náðist um lausn þess máls á skömmum tíma.

Nú vissu sjálfstæðismenn ekki, hvaðan á þá stóð veðrið. Nú fór að fara alvarlega um þá. Mánuðum saman höfðu þeir vænzt þess, að ríkisstj. sundraðist svo að segja þá og þegar. En allt kom fyrir ekki. Hún leysti með samkomulagi hvern þann vanda, sem að höndum bar, bæði innanlands og í utanríkismálum. Gat það verið, að þessi ríkisstj. ætlaði að reynast föst í sessi og Sjálfstfl. ætti að una valdaleysi og áhrifaleysi um langt skeið? Þetta var óhugnanleg tilhugsun fyrir foringja Sjálfstfl.

Enn var þó eftir ein von, kannske aðalvonin. Ríkisstj. átti eftir að leysa vandamál útflutningsatvinnuveganna um áramótin. Forustumenn Sjálfstfl., sem verið höfðu í ríkisstj., meðan það tap var að myndast, sem eftir var að jafna, vissu vel, við hvílíka erfiðleika hér var að etja. Og nú treystu þeir því, að þeir mundu reynast ríkisstj. ofjarl og hún sundrast. Allir vita, hvað gerðist. Um lausn málsins náðist ekki aðeins samkomulag milli stjórnarfl. Slíkt hefði heldur ekki verið nein nýlunda og raunar alls ekki fullnægjandi lausn. Það náðist einnig samkomulag við samtök bæði framleiðenda og launþega. Slíkt hafði aldrei tekizt undanfarin ár. Róðrar hófust á eðlilegum tíma, en ekki eftir langa deilu og mikið vinnu- og gjaldeyristap eins og í stjórnartíð Ólafs Thors.

Þetta munu hafa orðið stærstu vonbrigði leiðtoga Sjálfstfl. Nú þýddi ekki lengur að neita því, hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum, að ríkisstj. væri samhent og stæði völtum fótum, að á milli hennar og samtaka launþega og framleiðenda væri náin samvinna, svo að það væri tálvon ein að vænta þess, að hún sundraðist. Í augum leiðtoga Sjálfstfl. er þetta auðvitað ægileg staðreynd. Það er skiljanlegt, að þeir menn, sem talið hafa sjálfum sér og öðrum trú um, að þeir hefðu þá aðstöðu í landinu, að þeir hljóti að fara með völd, vakni upp við vondan draum, þegar þeir sjá, að þeir hafa misst áhrif sín, þegar þeir finna það, að þeir ráða ekki lengur, heldur eru utangarðsmenn, þegar ákvarðanir eru teknar um málefni alþjóðar. En við þessa staðreynd verða þeir nú smám saman að sætta sig, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Vinnandi fólk í landinu saknar þeirra ekki úr valdastólunum. Meðan þeir sátu þar, var ekki leitað samstarfs við samtök þess um lausn efnahagsmálanna. En núverandi ríkisstj. skoðar sem eina meginskyldu sína að hafa náið samstarf við samtök bæði launamanna og framleiðenda. Hún gerir sér ljóst, að án slíks samstarfs verða vandamál atvinnulífsins aldrei leyst farsællega. Þess vegna er hún staðráðin í því að halda áfram að starfa í nánu samráði við samtök hinna vinnandi stétta til sjávar og sveita, þótt vonbrigði Sjálfstfl. vegna árangurs þessa samstarfs verði æ sárari.