19.02.1957
Sameinað þing: 35. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (916)

1. mál, fjárlög 1957

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það er að vísu ekki mitt að svara því, sem hæstv. menntmrh. beindi hér til minni hl. fjvn. Ég vil aðeins að gefnu tilefni láta það uppi, að mér hefur skilizt, að minni hl. hafi tekið upp beiðni eða till. frá hæstv. ráðh. við fjvn. um þetta framlag. En ég vík að þessu máli vegna þess, að ég er meðflm. með hv. 2. þm. Eyf. að frv. um hækkað framlag til iðnlánasjóðs og þó reyndar tveimur, annað er minna, en hitt meira, þar sem við leggjum til, að helmingurinn af gjaldi af innlendum tollvörutegundum gangi einmitt til iðnlánasjóðs. Nú vildi ég minna á þetta frv. Það hefur verið til umr. í fjhn., og á síðasta fundi fjhn. var ráð fyrir gert, að þetta ásamt fleiri frv. okkar sjálfstæðismanna yrði nánar athugað. Þætti mér mjög mikils um vert, ef einmitt þau sjónarmið, sem þar eru fram sett, hlytu einhverja náð fyrir augum hæstv. ríkisstj., sem nú er upplýst að muni leggja fyrir þingið innan mjög fárra daga tillögur í sambandi við iðnlánasjóðinn. Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta.

Þá vil ég víkja að till. á þskj. 265, sem ég hef leyft mér að flytja ásamt hv. 1. landsk. Það er brtt. við fjárlagafrumvarpið, 14. gr., að þar komi inn nýr liður á eftir XVIII. 2, svo hljóðandi:

„Til íþróttasjóðs til greiðslu upp í hluta hans af kostnaði við íþróttaleikvanginn í Laugardal í Reykjavík, 2000000.“

Skal ég nú rökstyðja nánar, hvers vegna þessi till. er flutt.

Í s.l. mánuði ritaði ég fyrir hönd Laugardalsnefndar hér í Reykjavík fjvn. bréf, þar sem ég gerði grein fyrir aðstæðum og fjárhagsafkomu hinnar miklu íþróttamannvirkjagerðar í Laugardalnum hér í Reykjavík, en þar er, eins og kunnugt er, verið að reisa aðalíþróttaleikvang landsins. Með hliðsjón af því, hvað lagt hefur verið til þessarar mannvirkjagerðar á undanförnum árum af hálfu Reykjavíkurbæjar, og í öðru lagi vegna þess, hversu mikil skuld íþróttasjóðs ríkisins er við þetta mannvirki, mæltist ég til þess, að annaðhvort yrði stórlega hækkað framlag til íþróttasjóðs, sem þá yrði ætlað að rynni í eitt skipti til þessara framkvæmda til þess að jafna nokkuð metin, eða þá að tekinn yrði upp sérstakur liður um aukafjárveitingu til Laugardalsframkvæmdanna.

Nú sé ég, að meiri hl. fjvn. hefur lagt til að hækka framlag til íþróttasjóðs úr 1.2 millj. kr. upp í 1.6, eða um 400 þús. kr., og minni hl. upp í 2 millj. kr., eða um 800 þús. kr. Samt sem áður höfum við flutt þessa till. og m.a. vegna þess, að það eru ekki aðeins þessar íþróttaframkvæmdir í Laugardalnum, sem íþróttasjóðurinn stendur í óbættum sökum við, heldur um gervallt land, og er það mín skoðun, að öðrum íþróttamannvirkjum muni ekki af því veita, að hækkað yrði framlagið til íþróttasjóðs frá því, sem ráðgert er í fjárlagafrv., þannig að bróðurparturinn af því færi þá ekki til hinna miklu íþróttaframkvæmda í Laugardal. En ég á erfitt með að gera mér í hugarlund aðra skiptingu, eins og nú háttar til, á fjárveitingu íþróttasjóðs árið 1957, ef ekki verður veitt sérstök fjárveiting til Laugardalsframkvæmdanna, en að verulegur hluti af framlagi íþróttasjóðs þetta ár mundi þá vera talið eðlilegt og rétt að færi til þessara framkvæmda. Til þess liggja m.a. þær ástæður, að hér er um að ræða aðalíþróttaleikvang landsins og hér er um svo stórvægilegt mannvirki að ræða, að fram til þessa er búið að verja nær 11 millj. kr. til þessa íþróttaleikvangs og þó einnig til byrjunarframkvæmda við byggingu nýrra sundlauga í Laugardalnum, en gert er ráð fyrir, að þarna verði aðalíþróttaleikvangur landsins ásamt sundlaugum til almenningsnota, sem eiga að koma í stað hinna gömlu og mjög svo vinsælu sundlauga Reykvíkinga í Laugardalnum, og jafnframt verði þarna í þriðja lagi útivistarsvæði Reykvíkinga.

Af þessum nærri 11 millj. kr. hefur Reykjavíkurbær lagt fram langsamlega mestan hluta, og standa sakirnar þannig um s.l. áramót, að þá er búið að verja um 10.7 millj. kr. í íþróttamannvirkin og sundlaugarnar. Íþróttanefnd ríkisins hefur fyrir sitt leyti lofað að styrkja þessar framkvæmdir með 40% af kostnaðarverði, eins og lög heimila henni að gera, og samkv. því ætti íþróttasjóður að styrkja þessar framkvæmdir, sem þegar er lokið við, með rúml. 4 millj. kr., eða 4.2 millj. kr. Hins vegar eru framlög íþróttasjóðs um s.l. áramót tæplega 1.3 millj. kr., og er þá skuld íþróttasjóðs við bæjarsjóð Reykjavíkur nærri 3 millj. kr. En á það er enn fremur að lita, að í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 1957 hefur áætlað framlag verið hækkað úr því, sem var á s.l. ári, 1 millj. kr., upp í 2 millj. kr. og 40% af því frá íþróttasjóði mundi nema um 800 þús. kr. Eins gæti farið, að þetta framlag kynni að fara eitthvað fram úr áætlun, og sést þá, að ef ekki kemur veruleg fjárveiting frá íþróttasjóðnum á þessu ári, verður skuld hans við Reykjavíkurbæ vegna þessara framkvæmda einna um 4 millj. kr.

Nú veit ég, að svo er ástatt um fleiri staði en þessa framkvæmd hér í Reykjavík, eins og ég sagði áðan. En á það er að líta, að komið hefur verið á því skipulagi, t.d. í sambandi við skólamálin, að stefnt er nú frá s.l. ári að því, að áfallnar skuldir ríkissjóðs greiðist upp á tilteknu árabili, það eru fjögur eða fimm ár eða eitthvað því um líkt, og enda þótt nú yrði veitt aukaframlag til Laugardalsframkvæmdanna, eins og hér er lagt til, 2 millj. kr., þá er álíka löng leið enn í land til þess að greiða að fullu þessa skuld. Og þar sem framkvæmdir mundu halda áfram og viðbótarframlög koma frá ríkissjóði, sjá auðvitað allir, að engu að síður yrði mjög langt í land og mörg ár þar til íþróttasjóður hefði uppfyllt skyldur sínar við þessar íþróttaframkvæmdir og mundi vafalaust ekki hafa lokið þeim að fullu fyrr en mörgum árum eftir að íþróttaleikvangurinn yrði fullgerður.

En það er m.a. og ekki aðeins af fjárhagsástæðum, heldur einnig af öðrum ástæðum, sem sérstök áherzla er lögð á að fá nú aukaframlag til þessara miklu framkvæmda. Á s.l. ári lét Laugardalsnefndin gera áætlun um það, hvað kosta mundi að koma þessum íþróttaframkvæmdum í það horf, að hægt væri að taka íþróttaleikvanginn til afnota á árinu 1957, og sú áætlun var þá um 5.2 millj. kr. Það var unnið mjög kappsamlega að framkvæmd þessarar áætlunar á s.l. ári, og ef nú fengist verulegt aukaframlag, eins og hér er farið fram á, frá ríkissjóði til þessa aðalleikvangs landsmanna, þá eru möguleikar til þess að ljúka þessari áætlun og taka leikvanginn til afnota á sumri komanda, en annars sé ég ekki, hvernig það mætti verða. Það, sem gert er ráð fyrir að lokið verði á sumrinu, er leikvangur, sem rúmar um 2000 manns í sæti og 10 þús. manns í stæði, en hins vegar er gert ráð fyrir því, að sæti verði þarna, þegar leikvanginum er fulllokið, fyrir um 4000 manns og pláss allt í allt fyrir upp undir 30 þús. manns.

Ég vil geta þess hér, að það eru nú fimm ár síðan fyrst var sáð í grasvöllinn í Laugardalnum, og hefur sú framkvæmd gengið það vel, að það er allra álit, að hægt sé að taka íþróttaleikvanginn hæglega sjálfan til afnota á sumri komanda, ef aðrar aðstæður, eins og áhorfendasvæði, búningsklefar og annað slíkt, eru fyrir hendi. Ástæðan m.a. til þess, að sérstaklega hefur verið gerð áætlun um að koma þessum fyrsta áfanga í framkvæmd á yfirstandandi ári, er sú, að forustumenn íþróttahreyfingarinnar hafa lagt megináherzlu á það við Laugardalsnefndina, að leikvangurinn mætti takast til afnota á sumri komanda, m.a. af ýmsum sérstökum ástæðum, eins og þeim, að fyrirhugaðir eru hér í sumar tveir landsleikir í knattspyrnu við Norðmenu og Dani, og er það jafnan svo, að þegar þessar Norðurlandaþjóðir leikast á, þá er hvað mestur áhugi meðal Reykvíkinga og annarra Íslendinga fyrir þeim. Einnig vil ég geta þess, að Frjálsíþróttasambandið hefur ritað Laugardalsnefndinni og lagt mjög mikla áherzlu á, að hægt væri að láta leikvanginn í té í tilefni 10 ára afmælis Frjálsíþróttasambandsins og millilandakeppni, sem fyrirhuguð er af þeim slíkum. Íþróttafélag Reykjavíkur, eitt elzta hér í bænum, á 50 ára afmæli á þessu ári og mundi verða einn af aðalþátttakendunum í þessari frjálsíþróttakeppni. Einnig hefur Íþróttasamband Íslands fyrirhugað hátíðahöld ÍSÍ á 45 ára afmæli sínu, sem það á einnig á þessu ári. Það berast sem sagt mjög böndin að Laugardalsnefndinni og fyrirsvarsmönnum þessara mála hér í Rvík frá forgöngumönnum íþróttahreyfingarinnar að reyna að koma þessu máli í framkvæmd, og við þurfum miklu oftar að hlusta á það, að þessum áhugamönnum um íþróttir þyki verkin ganga seint, enda þótt svo hafi jafnan verið, að Reykjavíkurbær hefur hraðað þessum framkvæmdum langt fram um áætlun og varið til þess miklu meira fé á hverju ári en ákveðið hefur þó verið í fjárhagsáætlun, og hefur það leitt af vanefnum íþróttasjóðs til að uppfylla sínar skyldur. Var það svo, að um s.l. áramót voru um 4 millj. kr., sem Reykjavíkurbær hafði til þessara framkvæmda lagt umfram áætlanir á undanförnum árum, en í heild milli 9 og 10 millj. kr.

Í sambandi við þessar framkvæmdir og fjárframlög til þeirra heyrir maður raddir venjulega, og hef ég heyrt á undanförnum árum úr báðum áttum, eins og ég sagði áðan. Íþróttamönnunum og forgöngumönnum íþróttaæskunnar finnst málin sækjast seint. Aftur á móti eru aðrir, sem telja þessar framkvæmdir óþarfar og allt of miklu fé varið til þeirra. Ég fyrir mitt leyti hef aldrei talið ástæðu til þess að sjá eftir því fé, sem af opinherri hálfu hefur verið lagt til íþróttaframkvæmda, hvorki hér í Rvík né annars staðar. Ég hef sjálfur haft nokkur kynni af því, ekki aðeins hvað íþróttahreyfing, sem er byggð á traustum og eðlilegum grundveili, hefur góð og holl líkamsáhrif, heldur alls ekki síður uppeldisáhrif á hina ungu æsku.

Það er því sannmæli, að það er ekki aðeins óskadraumur unga fólksins hér í Reykjavík að sjá þessa miklu framkvæmd rísa upp í Laugardalnum, heldur mun það vera sameiginlegt áhugamál íþróttaæskunnar í landinu, sem leita mun hingað til keppni víð Reykjavikuræskuna og innbyrðis sín á milli á þessum aðalíþróttaleikvangi landsins.

Ég geri mér nokkuð góðar vonir um stuðning við þessa till., m.a. vegna þess, að ég veit, að henni er fylgt fast eftir af hálfu minna flokksbræðra hér í þinginn, en einnig vegna þess, að hér eiga nú sæti á þingbekkjum nokkrir nýir þm., ungir þingmenn, sem sótt hafa fylgi sitt til æsku landsins og mér er kunnugt um að hafa einmitt áhuga á íþróttamálunum. Íþróttafólkið væntir sér einnig nokkurs af þeim, þegar þeir í fyrsta skipti á þingbekkjum eiga að taka afstöðu til mála, sem það hefur jafnmikinn áhuga fyrir og hér um ræðir.

Einnig tel ég það mikils virði, að tveir þm. Reykv., þ.e.a.s. hæstv. menntmrh., sem er að vísu landskjörinn, en á framboðslista hér í Rvík, og hæstv. félmrh., eiga nú sæti í ráðherrastólum, og vil ég m.a. af þeim sökum vænta stuðnings í þessu efni. Tel ég, að það sé mjög veigamikið að leiðrétta það, sem fram hefur komið í till., annars vegar í frv. og hins vegar frá minni hl. og meiri hl. í þessu máli, enda þótt menn kannske kysu að hafa það í öðru formi en hér er lagt til. Það reynir fyrst á þetta nú við 2. umr. málsins, en að sjálfsögðu er aðalatriðið að ná efni málsins fram, þó að menn vildu hafa það í öðru formi, ef það mætti takast við 3. umr., að svo miklu leyti sem menn óska, að málið sé í öðru formi flutt en hér er. Meiri og minni hl. fjvn. eru aðeins með till. um hækkun framlags til íþróttasjóðs, en hér er till. um sérstakt aukaframlag til íþróttaleikvangsins í Laugardal. Ég leyfi mér að vænta bæði skilnings og stuðnings hv. þm. með þessari till.