28.05.1957
Sameinað þing: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

Almennar stjórnmálaumræður

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Það er um Bjarna Benediktsson þannig ástatt, að hann má ekki heyra Hamrafellið nefnt, af því að hann var neyddur til þess að samþ. leyfi fyrir skipið. En ætlun hans og sjálfstæðismanna var að koma í veg fyrir, að skipið kæmi til landsins. Í fragtmálinu gerðist það, að S.Í.S. samdi um að flytja olíu hingað fyrir lægri fragtir en gilda á frjálsum markaði. Það var því hægt að hafa lægra olíuverð, af því að Sambandið hafði eignazt skipið og samdi um lægri fragtir en þá var hægt að fá annars staðar. En ofstæki Bjarna Benediktssonar má helzt sjá á því, að hann sér svart yfir framförum, ef þær eru ekki á vegum íhaldsmanna. Það er ekki vænlegt einkenni á manni, sem vill vera leiðtogi.

Menn voru að tala um lántökur í gærkvöld og aftur nú. Þegar núverandi ríkisstj. tók við völdum, voru opinberar skuldir Íslands um 334 millj. Síðan ríkisstj. tók við í sumar sem leið, hafa samningar verið gerðir um opinberar lántökur, sem nema um 304 millj. Með opinberum lánum er átt við lán ríkisins, Framkvæmdabankans og lán með ríkisábyrgð. Á þremur æviárum þeirrar ríkisstj., sem næst á undan sat, námu opinberar lántökur samtals 151 millj. Einhvern tíma mundi það hafa verið talið allvel að verið að semja um 304 millj. kr. lántökur á 10 mán., eftir að hafa orðið að láta sér nægja 151 millj. á þremur árum og mikið af því til stutts tíma. En form. Sjálfstfl. finnst ekki mikið til um þetta. Það er rétt eins og hann sé því vanastur, að erlend lán séu gripin upp, eftir því, sem hver óskar. En menn brosa bara í kampinn að þessum mannalátum form. Sjálfstfl.

Svo fréttum við núna, að fyrrv. ríkisstj. hafi átt kost á láni í Sogið og ekki tekið það. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt, og langt er nú gengið. Eins og ég skýrði þjóðinni frá í útvarpsávarpi fyrir skömmu og hef greint frá áður, var reynt missirum saman að útvega lán í Sogið án þess að það tækist. Og Sogsstj. reyndi einnig árangurslaust. Það er því tilbúningur einn, að legið hafi fyrir ríkisstj. tilboð um lán í Sogið. Það má líka svo sem nærri geta, hvort legið hafi verið á því fyrir síðustu kosningar, ef tryggt hefði verið lánsfé til Sogsins.

Þá er það um þýzka tilboðið, sem sjálfstæðismenn hafa svo oft talað um, en ég hef ekki gert að umtalsefni fyrr. En ég ætla að gera það með örfáum orðum núna. Hingað kom einn af aðstoðarmönnum dr. Adenauers í orlofsferð, að ég hygg, s.l. vor. Utanrrh. og forsrh. hittu hann að máli. Þar barst í tal, að Ísland þyrfti á erlendum lánum að halda. Kvaðst hann mundu vekja athygli dr. Adenauers á því sérstaklega. Út af þessu kom síðar orðsending frá dr. Adenauer til forsrh. þáverandi, þar sem segir, að lánbeiðni frá Íslandi skyldi verða rannsökuð af vandvirkni og vinsemd, eins og það er þýtt af löggiltum skjalaþýðanda. Að sjálfsögðu var þessu fylgt eftir af núverandi ríkisstj., og hefur verið unnið í málinu síðan. En ég mun ekki á þessu stigi málanna gefa frekari skýrslu, þar eð það er ekki tímabært, eins og þau mál standa. Annars minna þessar sögur um það, hvernig lánatilboðin áttu að hafa drifið að úr öllum áttum, þegar Ólafur Thors var að fara eða jafnvel kominn út úr dyrunum, helzt á sögu laxveiðimannanna um laxana sem þeir misstu. Þeir voru alltaf stærstir.

Tal þeirra sjálfstæðismanna um lánamálin er alveg ótrúlega ábyrgðarlaust um þessar mundir og síðan þeir fóru úr stjórninni. Þeir byggðu alla sína valdadrauma fyrst framan af í stjórnarandstöðunni á því, að ríkisstj. mundi hvergi geta fengið lán erlendis, og gerðu allt, sem þeir gátu með áróðri sínum, til þess að koma í veg fyrir það, að lán fengist, til þess að spilla fyrir Íslandi. Það er hart að þurfa að segja þetta, en það er ekki hægt að komast hjá því. Þetta átti að sýna m.a., að enginn vildi lána Íslandi, nema forkólfar sjálfstæðismanna væru við völdin, þeir hefðu einhverja töfralykla í höndunum, sem opnuðu fjárhirzlur annarra landa fyrir Íslendingum að vild. En ég er a.m.k. búinn að vera nógu lengi í stjórn með forkólfum sjálfstæðismanna til þess að vita, hvað hæft er í þessu.

Ég hygg það raunar hollast öllum oss, sem við þjóðmálastarfsemi fáumst á þessu landi, að falla ekki fyrir þeirri freistingu að þykjast eiga ráð á slíkum töfralyklum, láta alveg vera að reyna að telja fólki trú um, að þjóðin eigi fjáröflun sína utanlands undir því, að henni takist að þekkja gullhænuna í okkar hópi.

Okkur mun bezt að gera okkur grein fyrir því, að þegar til lengdar lætur, fer lánstraust landsins eftir því, hvernig þjóðarbúskapurinn tekst, og þá fyrst og fremst eftir því, hvort það tekst vel að halda uppi öflugri framleiðslustarfsemi og halda jafnvægi í efnahagsmálum og standa í fullum skilum út á við, og svo auðvitað eftir því, hvernig ástatt er um framboð á fé erlendis til lána í önnur lönd.

Bjarni Benediktsson segir það hér í umr. og hefur sagt það í blaði sínu, að lántökurnar fyrir vestan hafi verið bundnar við varnarsamninginn, það sé þýðingarlaust að mótmæla þessu. Þetta eru sams konar ósannindi og sögð voru um Bjarna Benediktsson og okkur hina, að við hefðum verzlað með varnarmálin fyrir gjafa- og lánsfé frá Bandaríkjunum. En svo djúpt sekkur nú Bjarni Benediktsson, að hann segir sams konar lygasögur um okkur og sagðar voru um hann og okkur, þegar við vorum saman í stjórn. Og svo segir þessi hv. þm. hér: Það þarf ekki frekar vitnanna við. — Og hvert er vitnið. Jú, það er Þjóðviljinn. Vitnið er Þjóðviljinn. Hann les þetta úr Þjóðviljanum, og þá þarf ekki frekar um það að efast. Er þetta viðurkenning þess, að það skuli nota Þjóðviljann sem heimildarrit um það, sem Íslandi og vestrænu þjóðunum hefur farið á milli, m.a. sem heimildarrit um framkomu Bjarna Benediktssonar í utanríkismálum? Er hægt að kaghýða sjálfan sig freklegar en Bjarni Benediktsson hefur gert með þessum málflutningi hér í kvöld?

Hv. þm. A-Húnv., Jón Pálmason, tileinkaði mér nokkurn kafla ræðu sinnar í gærkvöld. Hneykslaðist hann mjög á því, að ég skyldi geta verið í samsteypustjórn með Sjálfstfl. og síðan annarri með Alþb. Er ekki von, að maðurinn hneykslist? Hann er eins konar pólitískur herbergisþjónn hjá hv. þm. G-K., Ólafi Thors, sem hefur haft það helzt til þess að gorta af, að hann hafi staðið að stjórn með kommúnistum fyrstur manna hér á landi og þar á eftir annarri með framsóknarmönnum. Það er ekki að furða, þó að þessi hv. þm., þessi dyggi þjónn, sé hissa á því, að þetta skuli vera hægt.

Þá hellti þessi hv. þm. úr skálum reiði sinnar að mér út af þróun íslenzkra efnahagsmála síðasta áratuginn og sagði, að ég bæri ábyrgð á henni. Eitthvað skýtur þetta nú skökku við það, sem húsbóndi hans, hv. þm. G-K., segir. Hann segir nefnilega, að Sjálfstfl. hafi hér öllu ráðið að undanförnu og haft forustu um þróttmikla, farsæla umbótastefnu. Hverju á svo að trúa? Jóni Pálmasyni um, að ég hafi öllu ráðið og stefnt öllu norður og niður, eða Ólafi Thors, sem segist öllu hafa ráðið, enda allt á farsælli leið.

Áheyrendur munu finna, að á hvorugum þeirra ber að taka nokkurt mark. Á hinn bóginn er furðulegt, að menn skuli bjóða upp á svona fleipur svo að segja í sömu ræðunni eða a.m.k. í sama ræðutímanum.

Ég tel mig ætíð hafa reynt að vinna eftir málefnum og viljað vinna með þeim flokkum, sem á hverjum tíma hafa virzt vilja reyna að vinna að jafnvægi í efnahagsmálum og almennum framförum og taka á sig ábyrgð. Ég hef deilt á þá, sem á móti þessu hafa staðið, hvað sem þeir hafa nefnt sig. Ég tel, að í minni framkomu hafi ekkert ósamræmi verið. Ég hef aldrei viljað vinna það fyrir völd Framsfl. til handa að sleppa verðbólgunni lausri, og ég hef ekki í stjórnarandstöðu fallið fyrir þeirri freistingu, eins og forkólfar sjálfstæðismanna gera nú, að grafa undan atvinnulífinu og verðgildi peninganna.

Þá er ekki sérlega ósmekklegt eða hitt þó heldur, þegar hv. þm. A-Húnv. er að kenna hina miklu aukningu ríkisútgjaldanna við mig sérstaklega. Hér er svo rækilega snúið við sannleikanum, að höfuðstarf mitt í 7 ár hefur verið látlaus stórorusta við ráðh. Sjálfstfl. út af gífurlegum kröfum þeirra um stórfellt aukin ríkisútgjöld. Og í hópi sjálfstæðismanna eru þeir menn, sem ég af langri reynslu þekkti ófyrirleitnasta í því að setja upp ný störf og embætti og þenja út ríkisbáknið. Svo senda þessir menn Jón Pálmason út af örkinni til þess að tala um há ríkisútgjöld og kenna mér um þau.

Ég læt mér í léttu rúmi liggja fúkyrði þeirra sjálfstæðismanna. Þeir gera sig bara broslega með þessu. Allir vita, að ég hefði verið mjög merkur og gegn í þeirra augum, ef ég hefði léð máls á að halda stjórnarsamstarfi áfram með þeim.

Hv. þm. G-K., Ólafur Thors, var að tala hér 1 gærkvöld um dýrtíð og verðbólgu. Hann og hans menn áttu ekki nógu sterk orð til þess að lýsa því, hve dýrtíðin ylti ört áfram, að vísitalan hefði hækkað um 4 stig á 10 mánuðum. Það er ekki að furða, þótt þeir séu hissa, enda geta þeir djarft úr flokki talað með sína fortíð í þessum málum.

1942 brugðust þeir í samstarfi og efndu til pólitískra átaka, sem eingöngu voru miðuð við það að auka pólitísk völd sjálfstæðismanna. Í þeim sviptingum óx dýrtíðin um 89 stig á einu sumri, á meðan þeir sátu við völdin. Þeir höfðu forustuna 1944–46, og þá óx dýrtíðin um 44 stig, samtals jókst því dýrtíðin um 133 vísitölustig í þessi tvö skipti, sem Ólafur Thors sat að völdum. Það er ekki að furða, þótt þeim þyki það tíðindi, að vísitala hækkar nú um 4 stig á nærri heilu ári.

Það er ekki langt síðan þeir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson áttu sæti í ríkisstj. Íslands og það ekki allskamma hríð. Þeir töldu sig vilja vinna að jafnvægi í efnahagsmálum og voru ósjaldan að segja þjóðinni sína skoðun á því, hvað mætti ekki gera, ef vel ætti að fara. Eitt af því, sem þeir þreyttust aldrei á að taka fram, var það, að almennar kauphækkanir, sem ekki byggðust á því, að framleiðslan væri aflögufær, væru engum til gagns, en hlytu að leiða af sér verðbólgu, verðrýrnun peninga, framleiðslustöðvun og að lokum gengisfall.

Þeir létu blað sitt segja um þetta 30. apríl 1955: „Allir hugsandi menn vissu það fyrir fram, að kauphækkun, sem ekki er byggð á auknum möguleikum framleiðslunnar til þess að greiða hærra kaupgjald, getur aldrei leitt af sér kjarabót. Af því leiðir þvert á móti beina bölvun og erfiðleika fyrir launþega.“

Þeir voru ekki myrkir í máli um þessi efni. Þetta er aðeins örlítið sýnishorn, en það væri hægt að halda áfram að lesa svona í allt kvöld og alla nótt.

En svo skeði það, að þessir menn og flokkur þeirra lenti í minni hluta og missti völdin, en ekki ábyrgðina, því að ábyrgð fylgir því að stýra stjórnarandstöðu, ekki síður en að vera í stjórn. En hvernig hefur farið fyrir þessum mönnum í stjórnarandstöðunni? Þeir hafa fallið og fallið djúpt. Þeir hafa engin ráð til þess að halda uppi málefnalegri stjórnarandstöðu. Þeir hafa fallið í þá gröf, sem þeir einir lenda í, sem stefnulausir eru og hafa ekkert markmið annað en völdin. Í stað þess að byggja upp málefnalega stjórnarandstöðu, hafa þeir engin önnur úrræði séð en að reyna að grafa undan afkomu framleiðslunnar, ef með því mætti takast að skapa vandamál og umrót, sem kynni að geta skolað þeim til valda á ný.

Þau úrræði í efnahagsmálunum, sem núverandi stjórn beitti sér fyrir, voru byggð á samkomulagi við þýðingarmestu heildarsamtök stéttanna í landinu. Einn þáttur í þeirri stefnu, sem tekin var, var sá, að heildarsamtökin ákváðu að vinna gegn verðhækkunum og almennum kauphækkunum fyrst um sinn og reyna þannig að stöðva þá óheillaþróun í þessum efnum, sem við höfum búið við. Fullyrða má, að þjóðin fagnaði þessu samkomulagi. Þessi samtök urðu á hinn bóginn eins konar prófsteinn á forustu Sjálfstfl. Hér fengu sjálfstæðismenn stórfellt tækifæri til þess að sýna manndóm sinn og styðja þessa stefnu með ráðum og dáð og sýna það i verki, að þeir voru málefnalega trúir, þótt þeir væru ekki við völd.

Enginn hefði átt að fagna því meira en þeir skv. því, sem þeir höfðu áður haldið fram, að alþýðusamtökin voru ráðin í því að vinna gegn því, að ný verðbólguskriða færi af stað. En því miður hefur Ísland orðið fyrir því áfalli, að forusta Sjálfstfl. hefur gersamlega fallið á þessu prófi. Forusta flokksins hefur reynzt ábyrgðarlausari og ófyrirleitnari en verstu óvinir þeirra hafa haldið fram.

Það ótrúlega skeði, að forusta Sjálfstfl. hóf þegar í stað heiftarbaráttu gegn stöðvunarstefnunni. Þeir sneru svo gersamlega við blaðinu og ómerktu sig svo rækilega, að þeir hafa æ síðan núverandi ríkisstj. náði samkomulagi við forustu alþýðusamtakanna um stöðvunarstefnuna gert allt, sem í þeirra valdi hefur staðið, til þess að koma á skæruhernaði í kaupgjaldsmálum og koma á kauphækkunum, sem gætu orðið upphaf að almennum kauphækkunum í landinu. Þeir hafa látið alla þjóna flokksins vinna að þessu alls staðar, þar sem þeir hafa talið, að þeir gætu haft áhrif. Þeir hafa látið þá atvinnurekendur, sem þeir ráða yfir, bjóða fram kauphækkanir, til þess á þann hátt að reyna að sprengja stöðvunina í framkvæmd og til þess með því að reyna að gera þeim forustumönnum verkalýðsins, sem vilja vinna að stöðvunarstefnunni, óbærilegt að halda þeirri stefnu í framkvæmd. Eitt gleggsta dæmið er úr Iðju. Þeir hafa látið handlangara sína í verkalýðsfélögunum ráðast á þá menn í félögunum, sem staðið hafa gegn því að koma af stað nýrri hækkunaröldu. Þeir hafa í blöðum sínum storkað þessum leiðtogum og skorað á fólk að yfirgefa þá, þar sem þeir hafi svikizt um í kjarabaráttunni, því að nú heitir það á máli Mbl. og þessara pilta kjarabarátta, sem áður var sagt, að leiða hlyti bölvun yfir þjóðina og launamenn þó alveg sérstaklega.

Strax í sambandi við vísitölubindinguna s.l. sumar var byrjað á þessu. Þá sagði Mbl. t.d.: „Járnsmiðir, kjósið gegn vísitölubindingunni.“ 10. jan. lét Bjarni Benediktsson blað sitt hælast um yfir því, að ólíklegt hefði verið, að nokkru sinni hefði komið til samningauppsagnar á verzlunarflotanum, ef stjórnarsinnar hefðu haft úrslitaráð í félögunum. Menn áttu svo sem að skilja, að það var af því, að einhverjir aðrir vaskir menn réðu, að sagt var upp samningum sjómannafélaganna. Og sína menn létu þeir vinna að því, að ekki yrði samið, nema veruleg grunnkaupshækkun kæmi til, þótt þeir fengju því ekki ráðið.

Þegar Bjarni Benediktsson segir frá því í blaði sínu 28. apríl mjög fagnandi, að iðnrekendur hafi hækkað kaupið, gleymir hann ekki að minna mjög ýtarlega á, að skv. þessum nýja Iðjutaxta hafi karlmenn nú hærri laun en fastráðnir Dagsbrúnarmenn, til þess að minna á, að röðin sé nú komin að þeim. Þegar prentarar ákváðu að segja upp samningum, verzlunarmannafélagið og verkfræðingarnir, var sagt frá þessu öllu undir sigurfyrirsögnum í Morgunblaðinu, og um prentarafélagið er það sérstaklega tekið fram í sjálfri fyrirsögninni með stóru letri, að þeir hafi virt vilja Alþýðusambandsins að vettugi. En vilji Alþýðusambandsins var sá, að menn skyldu ekki stofna til almennra kauphækkana, heldur bíða og sjá, hvað setur.

Að sjálfsögðu þýðir þetta ekki, að engar lagfæringar á kjörum, sem væru í algeru ósamræmi við annað, gætu komið til mála. En það er einn liður í moldvörpustarf Morgunblaðsmanna í launamálum að túlka slíkar leiðréttingar sem tilefni að almennum kauphækkunum. Þeim er sem sé ljóst, að almenn hækkun leiðir í strandið.

Einn liður í baráttu sjálfstæðismanna fyrir almennum kauphækkunum og nýrri verðbólgu er sá að halda því á loft, að fiskimenn hafi fengið kauphækkun nærri fyrstir manna á s.l. vetri, og svo er ályktunin þessi: Þarna sjáið þið. Fiskimenn fengu hækkun, og þá verða allir í landinu að sjálfsögðu að krefjast hækkunar.

Fiskverðið var hækkað í vetur, og auðvitað áttu hlutarmenn að fá þá um leið hækkun á fiskverðinu til sín. Allir vissu, að þetta var bara leiðrétting til fiskimanna eftir á út af kauphækkunum, sem urðu í fyrra. En þetta þykjast sjálfstæðismenn ekki sjá. Óheilindi þeirra sjást ef til vill ekki betur á neinu öðru en einmitt þessu og svo það, hvert þeir eru að fara. Þessi sjálfsagða leiðrétting á kjörum fiskimanna á sem sé að vera grundvöllur að nýjum kaupkröfum allra annarra manna í landinu.

Jafnframt eru svo þessir menn að tala um, að það þurfi að gera betur við fiskimenn, samanborið við aðra, en nú er gert. Er hægt að hugsa sér meiri tvöfeldni og flærð en fram kemur í þessu?

Þá hafa sjálfstæðismenn tuggið þau ósannindi, og hefur það einnig átt að vera líður í því að koma á stað nýrri kauphækkunaröldu og var eitt atriðið í ræðu Bjarna Benediktssonar áðan, að Sambandið hafi komið af stað nýrri kauphækkunarskriðu með því að hækka kaup starfsmanna sinna um 8%. Þó er það staðreynd, að hér var hreinlega um að ræða launabreytingu til samræmis við það, sem opinberir starfsmenn höfðu fengið, verzlunarmenn annars staðar og skrifstofufólk. Hvaða málstað er verið að þjóna með því að falsa svo gersamlega staðreyndir, með því að endurtaka slíkar blekkingar án afláts?

Allir vita, til hvers þessir refir eru skornir allir saman. Forusta sjálfstæðismanna hefur tekið ákvörðun um að efna til upplausnar, ef slíkt kynni að geta rofið samtök alþýðustéttanna. Nú þessa dagana er Sjálfstfl. að senda sérstaka menn út um land til þess að reyna að fá verkalýðsfélög úti á landi til þess að segja upp samningum og krefjast hækkana.

Og ofan á allar þessar ráðstafanir til þess að grafa undan afkomu framleiðslunnar og verðgildi peninganna, sem gerðar eru fyrir allra augum og ómögulegt væri að leyna, þótt þeir vildu, bættist svo sú óskammfeilni nú undanfarið að ætla sér að snúa öllum staðreyndum við beint fyrir augunum á mönnum og þykjast hvergi við koma, en til þess gera þeir nú tilraunir, sem heyra má hér í umr.

Fyrir utan tvöfeldnina, sem þetta sýnir, gefur það til kynna, að þeir eru orðnir hræddir, og mun það ekki ófyrirsynju, enda mætti það fyrr vera, ef þessi framkoma öll vekti ekki undrun og eyðilegði álit þeirra og traust.

Þótt leitað væri vandlega um alla Vestur-Evrópu, mundi þar enginn stjórnmálaforusta finnast, önnur en forusta Sjálfstfl. á Íslandi, sem léti sér sæma annað eins og menn hafa nú orðið áheyrendur og áhorfendur að síðustu mánuðina. Hver getur trúað eða treyst þessum mönnum, sem reynast málefnalega þannig og viðhafa slíkar starfsaðferðir?

Þessi framkoma flokksforustunnar er hnefahögg í andlit allra skyni borinna manna, sem fylgt hafa Sjálfstfl. að málum. Áratugum saman hafa sjálfstæðismenn bent á þá staðreynd ásamt öðrum, að almennar kauphækkanir koma að engu gagni, nema hagur framleiðs]unnar leyfi slíkt. Þeir vita vel, að hagur framleiðslunnar er nú þannig, að almennar kauphækkanir geta ekki gert nokkurt gagn. Vertíðin, sem nú er nýlokið, hefur verið hin lélegasta um langa hríð og orðið stórkostlegt áfall meginþorra framleiðendanna við sjóinn.

Aldrei hefur Sjálfstfl. sýnt það betur en nú, að hann er ekki í neinum skilningi flokkur framleiðenda á Íslandi, því síður allra stétta, heldur flokkur milliliða og braskara fyrst og fremst, eins og við andstæðingar hans höfum haldið fram. Það eru þessir aðilar, sem hafa fitað sig á verðbólgunni á kostnað almennings og framleiðslunnar, sem hafa lifað á því margir hverjir að hafa aðgang að bönkum landsins og geta fengið þar lán, sem þeir þurftu svo í raun réttri ekki að borga til baka nema að sáralitlu leyti vegna verðbólguþróunarinnar. Það eru þessir aðilar, sem ráða þessum starfsaðferðum. Þeir telja sig ekki geta þrifizt nema eiga ítök í landsstjórninni og ráða miklu í bönkunum. Það eru þessi öfl, sem krefjast þess, að flokkurinn skirrist ekkí við að grafa undan þjóðarbúskapnum og framleiðslunni til þess með því að reyna að skapa ástand, sem kynni að geta sundrað samtökum stjórnarflokkanna og orðið til þess, að Sjálfstfl. fengi ítök á ný. Það eru þessi öfl í Sjálfstfl., sem hafa krafizt þess af leiðtogum flokksins, að þeir gerðu sig ómerka að öllu því, sem þeir hafa sagt síðustu 10–20 árin. En getur nokkur maður, sem horfir upp á þetta, haldið áfram að treysta þessu liði, aðrir en þá þeir, sem standa fyrir þessum ósköpum, en það vitum við að er tiltölulega fámennur hópur, en óneitanlega sterkur af fjármagni og áróðurstækjum.

Ég hef rætt nokkuð, upp á hvað Sjálfstfl. hefur að bjóða um þessar mundir framleiðendum og almenningi í landinu. En það er fleira athyglisvert, sem nú kemur fram í fari Sjálfstfl., þ. á m. er barátta hans gegn stóreignaskattinum. Sjálfstfl. vílar ekki fyrir sér að leggja skatta og tolla á. Það þekkjum við. Hann hefur átt þátt í því án þess að taka nærri sér að lögfesta hundruð millj. kr. í sköttum og tollum í einum áfanga. En nú ætla forkólfarnir alveg að rifna út af stóreignaskattinum. Það er ekki hægt að áætla, hvað stóreignaskatturinn muni gefa í tekjur, en menn vonast til þess, að hann gefi um 88 millj., sem ber að greiða á 10 árum, eða 8 millj. á ári að viðbættum vöxtum. Sjálfstæðismenn segja, að þessi skattálagning muni draga saman atvinnurekstur í landinu, valda röskun í þjóðarbúskapnum og koma þungt niður á framleiðslunni.

Því miður hefur ekki orðið sá gróði á framleiðslunni undanfarið, að þar sé að leita stóreignanna. Verðbólgugróðinn hefur runnið í aðra átt. Enginn á að borga stóreignaskatt nema sá, sem á meira en 1 millj., og eignamatið er svo varlega sett, að allar eignir eru metnar undir gangverði og það verulega. Skip og önnur framleiðslutæki verða sérstaklega metin. Þessi skattlagning þykir sjálfstæðismönnum hneyksli. Þeir hafa á hinn bóginn hækkað útsvörin í Reykjavík á undanförnum árum um tæpar 30 millj. að meðaltali á ári. Það þykir ágætt, enda er þar ekki fyrst og fremst um skatta á auðmenn að ræða. Sannleikurinn er sá, að sjálfstæðismönnum blöskrar engin skattálagning önnur en sú, sem kemur niður á þeim ríkustu.

Þá ráðast þeir heiftarlega á Framsfl. fyrir það, að skatturinn skuli lagður á allar eignir hvers einstaklings hjá honum sjálfum, en ekki á félög hvert fyrir sig. Allir vita, að helztu eignamenn landsins hafa dreift eignum sínum í mörg félög til þess að létta á sér skattabyrðinni. Sjálfstæðismenn heimta, að þessar björgunarráðstafanir skuli halda gildi sínu, einnig þegar um stóreignaskatt er að ræða. En framsóknarmenn hafa bæði 1950 og nú haldið fast á því, að eðlilegt væri, að allar eignir hvers um sig væru taldar hjá honum sjálfum, þegar stóreignaskattur er ákveðinn.

Það má mikið vera, ef nokkrum dylst, hvert verið er að fara, þegar athugaðar eru baráttuaðferðir forkólfa sjálfstæðismanna um þessar mundir í kaupgjaldsmálum, verðlagsmálum, gegn stóreignaskattinum og ofsi þeirra út af því, að þeir skuli ekki geta haldið áfram að hafa hreinan meiri hl. í báðum aðalviðskiptabönkum landsins.

Er nokkur vandi að sjá, hvað á spýtunni hangir? Hefur nokkur komið rækilegar upp um sig en Sjálfstfl. hefur gert nú síðustu 10 mánuðina?