28.05.1957
Sameinað þing: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

Almennar stjórnmálaumræður

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Þá mánuði, sem núverandi ríkisstj. hefur farið með völd í landinu, hefur Sjálfstfl. í engu sparað ásakanir og áfellisdóma um stjórnarstefnuna né heldur hrakyrði um einstök atriði í framkvæmd hennar. Engum mun heldur hafa komið það á óvart, þótt sá flokkur léti í sér heyra í stjórnarandstöðu. Flokkur, sem gerþekkir stjórnarkerfi landsins af áratuga setu í ríkisstj., flokkur, sem á nær tvo tugi fulltrúa á Alþ., flokkur, sem ræður meiri blaðakosti en nokkur annar, gat auðvitað ekki dregið feld yfir höfuð sér og lagzt í dvala, þótt stjórnarstólar gengju undan honum, og hann átti að hafa möguleika til þess að benda á leiðir og rækja hlutverk stjórnarandstöðunnar með nokkrum sóma. Hitt hefur komið mönnum meira á óvart, hversu lágreist stjórnarandstaða hans er málefnalega og hvílíkt tómahljóð í hávaða hans, sem hér á þingi er helzt bundið við málefnalaus upphlaup hv. þm. Reykv., Bjarna Benediktssonar, utan dagskrár. En það, sem þó alveg sérstaklega og að vonum hefur lækkað mat hugsandi kjósenda Sjálfstfl. á ágæti stefnunnar og foringjanna, er það, hve óraunhæf og áberandi fölsk stjórnarandstaða flokksins er.

Í þessum umr. hefur raunar á þetta verið bent svo rækilega, að ekki verður um villzt, en fáein dæmi skulu þó nefnd til viðbótar.

Seint og snemma hefur Sjálfstfl. farið hamförum í áróðri gegn þeim efnahagsráðstöfunum, sem ríkisstj. gerði með setningu laganna um útflutningssjóð. Þar var um óbærilegar álögur á alþýðu landsmanna að ræða, segir íhaldið, og það er ekki laust við, að sumir ræðumanna þess, einkum þeir, sem mesta þjálfunina hafa í því að mæta jafnan verkalýðshreyfingunni og baráttu hennar á umliðnum árum eins og þar væru á ferðinni glæpamenn, sem færu með landráð, það er ekki laust við, að ásjónur þeirra verði eins og á dýrlingum, þegar þeir minnast á hag alþýðunnar. Þó töldu þeir hinir sömu menn tekjurnar af álögum þeirrar löggjafar of litlar. Einnig mótmæltu þeir því algerlega, að réttur kaupmanna til álagningar yrði takmarkaður. Og í sömu andránni átöldu þeir stjórnina fyrir að gera allt of lítið til þess að halda dýrtíðinni í skefjum. Við afgreiðslu þessara mála, sem þeir snerust algerlega gegn, voru þeir að sjálfsögðu margspurðir um það, hver væru þeirra úrræði, en engin svör fengust. Þeirra úrræði voru ekki þess eðlis, að þeir kærðu sig um að sýna þau í dagsbirtu. Öðru hverju hefur Sjálfstfl. svo í ofanálag við allt þetta lýst því yfir, að sú leið, sem þarna var farin og þeir voru á móti, væri einmitt þeirra gamla góða leið. En um þetta grátbroslega fálm í haldsins hefur áður verið rætt í útvarpi hér frá þinginu, og ef íhaldið hefði lagt sig fram um að læra eitthvað af þeim umr., þá hefðu þeir góðu menn átt að sjá, að betra samræmis var þörf í vinnubrögðum og að öllu samanlögðu mundi ekki miklu verra fyrir þá að segja bara það, sem þeir meintu. Með því var þó hægt að forðast ósamræmið, sem augljóst var í tilraunum til þess að ná fótfestu í lýðskruminu. En það spáir engu góðu um afstöðu hv. Sjálfstfl. til hinna raunhæfu viðfangsefna þings og stjórnar, að flokkurinn skuli enn í þessum umr. kjósa það hlutskipti, sem áður hafði þó illa reynzt honum, að svífa í kringum málefnin afstöðulaust með nuddi og narti, fremjandi í sífellu sömu flónskupörin og hamast gegn öllum stjórnaraðgerðum án tillits til þess, hvort nokkur rök voru fyrir mótmælunum eða ekki.

Þegar Súezstríðið hófst í vetur, hafði það í för með sér allmikla röskun á verðlagi margs konar varnings í ýmsum viðskiptalöndum okkar og einnig mikla hækkun farmgjalda. Bylgja úr þessu umróti hlaut að koma fram í íslenzku verðlagi, þótt af hálfu stjórnarvaldanna hér væri af fremsta megni reynt að láta það sem minnstri röskun valda. Þær verðbreytingar, sem af þessu urðu, reyndi Sjálfstfl. af fullkomnu purkunarleysi að skrá á syndalista íslenzku ríkisstj., enda þótt hann vissi ofur vel, að með engri sanngirni er hægt að krefjast þess af neinni ríkisstj., að hún verndi íslenzkt verðlag að fullu frá áhrifum stórátaka úti í heimi, sem teppa alþjóðlegar siglingaleiðir, enda lætur Sjálfstfl. nú ríkisstj. algerlega óþakkað, þótt verðlag sé tekið að síga aftur til eðlilegra horfs. Þvert á móti ganga enn ásakanirnar fjöllunum hærra um það, að stjórnin espi dýrtíðina upp úr öllum veðrum. Og í þessu sambandi rifjast það upp, að hv. þm. N-Ísf., Sigurður Bjarnason, þuldi hér í gær raunatölur úr fjölskyldubúreikningum og bar sig hið aumkunarlegasta yfir vaxandi dýrtíð. Það mun hvort um sig, að sá hv. þm. mun hafa skamma reynslu af slíkum plöggum, enda minnist ég þess ekki, að hann hafi haft neinar áhyggjur af því á sinni tíð, hver áhrif álögur fyrri ríkisstj. hlytu að hafa á búreikninga manna, og ekki þætti mér ólíklegt eftir tölum hans að dæma, að hluti af hernaðarkostnaði brezka í haldsins hefði slæðzt saman við grautarreikninginn hjá Sigurði mínum Bjarnasyni og að honum hafi láðst að færa bókhaldið með þeirri nákvæmni, að hann geti glöggvað sig á því, hvort hann á sökóttara við Anthony Eden eða íslenzk stjórnarvöld.

En hvað hefði Sjálfstfl. gert, ef hann hefði haft aðstöðu til þess að láta sínar hugmyndir ráða í dýrtíðar- og efnahagsmálunum? Hefði hann ráðið niðurlögum dýrtíðarinnar? Eða hver voru hans töfrabrögð? Það er augljóst mál, þótt ekki segi hann frá þeim beint: Hann hefði lækkað gengið, og að því vinnur hann eftir megni. Þeir geta að sjálfsögðu trúað því, sem það þykir trúlegt, að slíkar ráðstafanir hefðu unnið bug á dýrtíðinni. Talsmenn í haldsins hér á þingi segja gjarnan með mesta sakleysissvip, svip, sem nálgast uppgerðina í andlitsdráttunum, þegar þeir tala um kúgun alþýðunnar, að það sé erfitt að ræða um gengisfellingu, slíkt geti haft hin alvarlegustu áhrif, og samtímis birta þeir svo með stærsta letrinu, sem þeir eiga til, þvert yfir forsíðuna í málgagni sínu rakalausar getgátur um, að stjórnin hafi ákveðið gengisfellingu. Er þetta raunar ekki í fyrsta sinn, sem Sjálfstfl. fer þannig að. Á s.l. hausti, þegar efnahagsráðstafanirnar voru í undirbúningi, hafði íhaldið stöðugt uppi skraf um það í blöðum sínum, að gengisfelling væri fyrirhuguð. Það væri svo sem í samræmi við önnur heilindi og þjóðhollustu Sjálfstfl., að hann teldi nauðsynlegt að spá þjóðinni að staðaldri svo sem tvisvar á ári stórkostlegri gengisfellingu í blöðum sínum til þess að auka sparifjármyndunina og til þess að tryggja verðgildi peninga.

Sagt er, að mönnum sé gjarnast til þess að spá því helzt, sem þeir óska sér, og þótt Sjálfstfl. neiti því vafalaust í orði, að hann óski gengisfellingar, þá er hreint ekki laust við, að við, sem Sjálfstfl. hefur að undanförnu talið koma fram í ábyrgðarlausara lagi gagnvart þjóðfélaginu, höfum grun um, að ef hlutverkin horfðu nú öfugt við því, sem raun er á, þannig að Sjálfstfl. færi með stjórn landsins, en við hinir hefðum beitt áhrifum okkar til þess að fá ýmsar af hæst launuðu stéttum landsins, t.d. stéttir, sem hafa á annað hundrað þús. kr. í árskaup á einstakling, til að boða verkföll og krefjast kjarabóta, og ef það værum við, en ekki þeir, sem neituðu að taka hið minnsta tillit til árferðis hjá þjóðarbúinu, svo sem aflabrests og annarra slíkra hluta, þá á ég þess siður von, að okkar framkoma yrði í þeirra túlkun talin miða að því að tryggja gengi krónunnar. Hið rétta um gengismálið er það, að stjórnin miðar að því að forðast gengisfellingu, og þótt það komi augsýnilega þvert á vilja og viðleitni íhaldsins, þá eru, sem betur fer, mestar vonir til þess, að þetta megi samt takast.

Þá fataðist íhaldinu ekki í endemum sínum, þegar frv. um stóreignaskattinn var hér til umr. á þinginu. Sá skattur leggst, sem kunnugt er, eingöngu á þá aðila, sem eiga meira en 1 millj. kr. umfram skuldir, og á að renna til útlánastarfsemi í húsbyggingar og búnaðarframkvæmdir. Íhaldið gerði þar þrennt í senn. Það taldi skattinn koma harðast niður á fátækum verkamönnum, það taldi skattinn vera of lítinn, og í framhaldi af því minnti það á, að þörfin til byggingarlána og lána til jarðræktar væri svo mikil, að skatturinn hossaði harla stuttu þar upp í, og þess vegna lögðu þeir til, að frv. yrði fellt.

Ég get vel skilið, að menn, sem ekki hlýða sjálfir á svona málflutning, eigi erfitt með að trúa, að hér sé rétt frá hermt. En allt þetta og raunar ýmislegt fleira skrýtilegt kom fram í einni og sömu ræðunni um milljóneraskattinn hjá einum aðaltalsmanni Sjálfstfl. fyrir fáum dögum hér á þingi. Þótti víst fleirum en mér órökvísi þessa mæta manns gegna nokkurri furðu og ólíklegt í meira lagi, að ályktanir hans væru dregnar eftir nákvæma í hugun, þar sem virðingin fyrir sannleikanum skipaði öndvegi. Síðar varð ég þess var, að einmitt þessi sami þm. hafði flutt erindi um þetta mál á Varðarfundi um svipað leyti og að því er blöð Sjálfstfl. hermdu við góðar undirtektir. Það er því næsta líklegt, að í málþrasi því, sem Sjálfstfl. hefur lagt nokkra áherzlu á að halda hér uppi á síðkvöldum og nóttum að undanförnu, hafi yfir okkur hér verið dengt einum húslestri íhaldsins, upphaflega ætluðum hinum sauðtryggu einum saman, og verður þá allt skiljanlegra, þótt rökrænt samhengi skorti, enda ekkert óskiljanlegt við það, þótt flokkur, sem leiðzt hefur út í það að verða einkafyrirtæki fárra auðmannafjölskyldna í Reykjavík og miðar gerðir sínar og afstöðu til mála við hag eigendanna, víki sér undan því að segja það eitt, sem er rétt og satt, þegar mæla þarf eigendur fyrirtækisins, sem ber nafnið Sjálfstfl., undan skyldu við þjóðfélagið.

Þó finnst mér Sjálfstfl. ná hæst í hræsni sinni, þegar hann tekur til að álasa okkur Alþb.-mönnum fyrir svik í hernámsmálunum, vegna þess að við höfum enn ekki komið hernum burt úr landinu. En eins og alþjóð veit, hafa á okkur dunið skammir og brigzl einmitt frá íhaldinu fyrir að hafa ekki sagt slitið stjórnarsamstarfinu í haust, þegar frestað var að krefjast brottfarar hersins, eins og ráðgert hafði verið. Rétt er það, að okkur eru það vonbrigði að hafa enn ekki náð því marki, að Ísland verði með öllu frjálst land og laust við hersetu. En hvaða tilgangi hefði það þjónað að slíta stjórnarsamvinnunni vegna þess ágreinings, sem var og er milli stjórnarflokkanna um það, hvenær skuli óskað eftir brottför Bandaríkjahers af Íslandi? Þá hefði Sjálfstfl. náð því þráða marki sínu að komast inn í ríkisstj. Trúi því hver sem vill, að með því hefði þjóðin færzt nær stefnumiði Alþb. að hreinsa landið af erlendri hersetu. Og það hefði fleira skeð en það eitt, að samið hefði verið um langa hersetu. Auðmannastéttinni hefði verið forðað frá stóreignaskattinum, verzlunarbröskurunum hefði veríð forðað frá því að þurfa að hafa hóf á verðlagi söluvarnings síns, einokunarhringum íhaldsforkólfanna í útflutningsframleiðslunni hefði verið forðað frá því að þurfa að óttast samkeppni um að skila góðu verði til framleiðenda, bankarnir hefðu áfram fengið að búa við alræðisstjórn Sjálfstfl. eða útvalinnar fjölskyldu úr þeim flokki, en auðvitað hefðu launþegar landsins orðið að borga það, sem íhaldið sparaði þannig gæðingum sinum.

Það er hverju orði sannara, að viðskilnaður fyrrv. ríkisstj. í atvinnumálum og efnahagsmálum var slíkur, að núverandi ríkisstj. hefur neyðzt til þess að leggja nokkrar byrðar á bak alþýðunnar af þeim sökum. Hitt er alrangt, að það hafi nú veríð gert með gömlu íhaldsaðferðinni. Þar er tvennt frábrugðið og raunar það tvennt, sem öllu máli skiptir. Er þá fyrst þar til að nefna, að ráðstafanir núverandi ríkisstj. koma útgerðinni að raunhæfu haldi, þar sem þær hækka afurðaverðið, en hækka ekki verðlag á helztu útgerðarnauðsynjum. En hið síðar nefnda gerðu ráðstafanir fyrrv. stjórnar í svo stórum mæli, að gildi þeirra varð næsta lítið, enda reyndust þær svo haldlausar, að þær bægðu stöðvun frá fiskiflotanum ekki lengur en um eins ársfjórðungs skeið. Þær voru samþ. í febrúarmánuði, en í júní hrukku þær ekki lengur til. Strax fyrir kosningarnar s.l. vor var útgerðin farin að ganga fyrir stjórnartékkum, sem engin innstæða var til fyrir og núverandi ríkisstj. varð að sjá um innlausn á.

En hitt er ekki síður ólíkt íhaldsráðstöfununum, að nú var þunga leiðréttinganna ekki hlaðið á bak launþegastéttanna einna eins og áður. Nú var málum hagað svo, að hinir ríkustu skyldu borga mest. Kaupmenn og aðrir verðleggjendur fengu ekki að hella sínum hluta byrðanna á verðlag vöru sinnar takmarkalaust, eins og áður hafði tíðkazt, heldur urðu þeir að taka á sig sinn hlut.

Í brölti sínu við að koma af stað kjaradeilum hefur meginsókn íhaldsins líka strandað á þeirri ábyrgðartilfinningu, sem jafnan hefur verið ríkur eiginleiki íslenzkrar alþýðu, að skorast ekki undan því að taka á sínar herðar sinn hlut af þjóðfélagsskyldunni, ef með sanngirni var niður deilt byrðunum. Hinu hefur vinnandi fólk og samtök þess, verkalýðshreyfingin, jafnan mótmælt og barizt af eldmóði gegn, að auðmannastéttin léki lausum hala, óbundin af öllum samfélagsskyldum, á meðan kreppt var að kjörum þess fólks, sem bar hitann og þungann af sköpun verðmætanna í þjóðfélaginu.

Þótt tekizt hafi vonum betur að sneiða hjá stóráföllum, er það rétt, að óstjórn liðinna ára hefur bitnað á Íslendingum og ásamt atburðum úti í heimi torveldað framsókn þjóðarinnar til vaxandi hagsældar um skeið. Hitt er jafnaugljóst, að ef um stjórnartaumana hefði haldið sama íhaldsklóin síðustu 10 mánuðina og það gerði áður, þá hefði alþýðu landsins sett stórlega ofan í lífskjörum. Sá bylgjudalur, sem stjórnarvöldin hefðu þá hrundið okkur ofan í, hefði sízt orðið grynnri en sá, sem okkur var búinn 1950 með gengisfellingarlögunum, sem þá voru framkvæmd einhliða á kostnað launþega og sparifjáreigenda og mörkuðu eitt stærsta skrefið, sem stigið hefur verið aftur á bak í þjóðlífi Íslendinga á síðari árum.

Það, sem öllu frekast gerði fyrrv. ríkisstj. óalandi og óferjandi, var sinnuleysi hennar gagnvart sjávarútveginum og óvildin í garð sjómannastéttarinnar, enda tókst íhaldsstjórninni að fæla svo stóran hóp landsmanna burt úr þeirri starfsgrein, að sökum fámennis í sjómannastétt síðan er vá fyrir dyrum þjóðarinnar. En það virðist Sjálfstfl. raunar enn ekki sjá nema í annarlegu ljósi, þegar hann er að reyna að breiða yfir fjandskap sinn við sjómannastéttina með því nú að flytja skrumtillögur hér á þingi til yfirboðs á umsömdum skattfríðindum sjómanna. En í samræmi við annað í vinnubrögðum sínum heyrðu menn ræðumenn Sjálfstfl. segja hér frá því í gærkvöld sem einu af afglöpum og ávirðingum núverandi ríkisstj., að hún hefði bætt kjör sjómanna að mun með stjórnarráðstöfunum í vetur.

Sjónarmið hermangara og braskara var svo algert hjá í haldinu í fyrri ríkisstj., að undirstaða efnahagslífsins sjálfs og hagsældar á Íslandi hvarf þeim sjónum með öllu. Sem dæmi má nefna, að fiskiskipaflotinn þurfti á stundum að liggja bundinn svo sem mánaðartíma, til þess að forsvarsmenn hans fengju að komast í kallfæri við útvegsmálaráðherra íhaldsins. ef ekki voru kosningar á næsta leiti. Skip, sem ríkið raunverulega átti, urðu að liggja í landi svo sem eitt eða tvö ár, á meðan ráðuneytið var að skipta um nafn á skuldareigandanum í bókhaldi sínu, og má nefna togarana Vilborgu Herjólfsdóttur og Keflvíking í þessu sambandi. Þeir heita nú raunar Norðlendingur og Vöttur. Ætla má eftir aflabrögðum annarra togara á þeim tíma, sem Ólafur Thors lét skip þessi bíða eftir bókun, að seinlæti rn. í málum þessara tveggja skipa hafi kostað þjóðina milli 20 og 30 millj. kr. í töpuðum gjaldeyrismöguleikum. En jafnframt því sem þessu líkt framferði er í senn átakanlegt dæmi um það, hvernig ríkisstj. má ekki haga sér, og að sínu leyti skýring á því, í hvert fen efnahagslífinu var sökkt af fyrrverandi valdhöfum, er það einnig talandi tákn um umskipti þau, sem orðið hafa í samstarfi útvegsmanna og stjórnarvaldanna við stjórnarskiptin, enda er það nú öllum ljóst, að með allt öðrum og betri hætti er snúizt við vandamálum útvegsins af ráðuneytisins hálfu en áður var. Hefur útvegur landsmanna til þessa engan dag stöðvazt í tíð núverandi stjórnar vegna samskipta sinna við rn., og eigendaskipti togara hafa ekki tafið skip frá veiðum svo mikið sem eina dagstund.

Einn af ræðumönnum Sjálfstfl. í þessum umr. taldi heimskulegt þingrof hafa sprottið af því í fyrra, að samstarfsflokkur íhaldsins gefst upp á þeim endemis stjórnarháttum, sem þá ríktu undir þess forustu. Þingrof var samt höfuðtillaga íhaldsins á þessu þingi. Íhaldið vildi sem sagt láta kosningar koma í staðinn fyrir útgerð í vetur. En til þessa hefur nú vafizt fyrir því að sýna fram á, að slíkt hefði verið gáfulegt þingrof. Þingrofsáhugi íhaldsins stafar af því gamalkunna fyrirbrigði eingöngu, að þegar menn heyra óvæntar fréttir, láta þeir gjarnan segja sér tíðindin tvisvar, áður en þeir trúa þeim. Og íhaldið, sem svo lengi hafði ráðið og ríkt, vill enn ekki trúa því, að vinstri öflin í landinu hafi náð samstarfi. Það vill ekki trúa því, að alræðistímabili þess í bönkunum sé lokið. Það vill ekki trúa því, að meinbugir geti orðið á því að nota andvirði íslenzka saltfisksins til þess að byggja áróðurshallir yfir Mbl. í stað þess að gera eigendunum skil á því. Það vill ekki trúa því, að hernámsaðstaðan sé þverrandi. Það vill ekki trúa því, að braskarar megi ekki selja vörur á hvaða verði sem þeim sýnist. Það vill ekki trúa því, að réttur og sléttur almenningur í verkalýðsfélögum og bændasamtökum eigi einhverju um það að ráða, hvernig ríkisstj. hagi störfum sínum. Og það vill ekki trúa því, að eignir milljónera geti verið skattstofn. Það vill láta segja sér þetta tvisvar, og þjóðin mun segja íhaldinn þetta tvisvar og þrisvar, ef það vill. Hún mun segja því það svo oft sem þurfa þykir, að á meðan það hagar sér af sömu fólsku og það nú gerir, á það ekki afturkvæmt til valda.

En til þess að veita þessi svör, er engin þörf á neinu þingrofi. Þótt þjóðin verði að sjálfsögðu þráspurð um álit sitt, mun ekki skorta svör af hennar hálfu. En hún á sér reglur um það í stjórnarskrá sinni að veita slík svör á fjögurra ára fresti, en þess á milli hefur hún enga skyldu til þess að anza hverjum angurgapa, sem hváir af skilningsleysi utan dagskrár. — Góða nótt.