15.02.1957
Neðri deild: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (953)
9. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Samkvæmt ákvæðum núgildandi laga um orlof opinberra starfsmanna eru þau ákveðin 15 dagar skemmst, 18 dagar og 24 dagar, og eru lengstu orlofin fyrir þá, sem hafa verið í þjónustu ríkisins lengur en 15 ár. Frv. það, sem hér liggur fyrir, gengur út á það, að stytztu orlofin, eða 15 daga orlofin, séu lengd í 18 virka daga og þau orlof, sem nú eru 18 virkir dagar, séu lengd upp í 21 virkan dag. Hins vegar er gert ráð fyrir því í frv. eins og það liggur fyrir, að lengstu orlofin, eða 24 daga orlofin, séu óbreytt.
Fjhn. hefur athugað þetta frv. og leggur til, að sú breyt. verði á því gerð, að heimilt verði að lengja einnig lengstu orlofin um 3 daga, eða úr 24 virkum dögum í 27 virka daga. Ef slíkt væri ekki gert, væri um að ræða óeðlilega röskun á þeim hlutföllum, sem ákveðin voru í þessum efnum með l. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Eins og þskj. 249 ber með sér, er þessi breyt. gerð í samráði við hæstv. ríkisstj.