28.02.1957
Efri deild: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
9. mál, réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Síðast þegar gerðir voru samningar um kaup og kjör verkamanna í landinu, var samið um að lengja orlof frá því, sem verið hafði. Ríkisstj. hefur ákveðið að beita sér fyrir því, að sams konar lenging eigi sér stað á orlofi opinberra starfsmanna. Að vísu hafði ríkisstj. ekki lagt til, að orlof þeirra, sem lengst orlof hafa, hækkaði alveg eins og annarra, en í hv. Nd. hefur því verið bætt inn í að lengja einnig þeirra orlof, og hefur ríkisstj. ekki haft á móti því. Það má því skoða þetta frv., eins og það hér liggur fyrir, sem till. ríkisstj. í þessu máli, og fjallar þá frv. um að lengja orlof um þrjá daga hjá öllum starfsmönnum. Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.