01.02.1957
Neðri deild: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (966)

105. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þegar gengið var frá frv. til l. um útflutningssjóð o.fl. í vetur, voru teknar ákvarðanir um nokkrar fleiri ráðstafanir, þ. á m. þá, að ríkisstj. beitti sér fyrir að lækka skatt á lágtekjum. Nú liggur hér fyrir frv., sem er till. frá ríkisstj. um að lækka skatt á lágtekjum, þannig að lækkaður sé um þriðjung skattur á 47500.00 kr. hreinar tekjur hjá hjónum og allur skattur jafnhár og lægri með sömu hundraðstölu.

Ég sé ekki ástæðu til þess að skýra þetta mál nánar en þetta og vísa til grg. Málið er afar einfalt. Ég leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.