01.02.1957
Neðri deild: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (973)

105. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Það er nú auðheyrt, að hæstv. fjmrh. líður dálítið illa, og það er að vonum. Það væri freistandi að fara út í ýmis atriði, sem eru raunar það nátengd þessu málí, að það væri vel verjandi að gera það, án þess að það væri talið að fara of langt frá málinu, en það eru umr. þær, sem farið hafa fram á undanförnum mánuðum allmörgum um fjármál þjóðarinnar og hvernig þau hafa úr hendifarið. Ég skal ekki gera það að þessu sinni, það yrði of langt mál, og gefst vafalaust kostur á því seinna. En það er dálítið gaman að heyra það, þegar hæstv. fjmrh. stendur hér upp með mikilli vanþóknun og hvessir sig og segir, að það líklega viti nú allir, hver hafi farið með fjármálin undanfarin ár.

Það er satt, að það ættu allir þetta að vita. En það lítur nú oft þannig út, að a.m.k. flokksbræður þessa hæstv. ráðh. viti ákaflega lítið um það, hver hafi farið með fjármálin, þegar þeir eru að finna að einhverju, sem aflaga hefur farið í fjármálapólitík þjóðarinnar, en allir vita, eins og hæstv. ráðh. einnig sagði, að fjmrh. hefur vitanlega á það mest áhrif. Þá hefur því verið haldið fram, að hans flokkur hafi þar hvergi nærri komið og eigi því engan hlut að máli um það, hvað gerzt hafi hér síðustu árin. Þetta er sá söngur, sem hljómað hefur nú undanfarna mánuði í blaði þessa hæstv. ráðh. Allir, sem vita, hver hefur farið með fjármál landsins undanfarin ár eða allt frá 1950, hljóta að fyllast nokkurri undrun, að slíkum árásum skuli vera haldið uppi eins og er í hlaði þessa hæstv. ráðh. um fjármálastjórn ríkisins og það öngþveiti, sem þar væri ríkjandi á öllum sviðum, þegar þess er gætt, að það er hæstv. núverandi fjmrh., sem hefur, eins og hann sagði, haft mesta og bezta aðstöðu til þess að hafa áhrif á og móta þá fjármálastefnu, sem fylgt hefur verið, og vitanlega er rétt, því að það er fyrst og fremst fjmrh., sem á hverjum tíma hlýtur að móta fjármálastefnuna. Það er ósköp skiljanlegt, að þegar farið er að víkja að þessum málum, verði hann næsta önugur og bregðist illa við því. Ég get vel hugsað mér, að honum hafi ekki að undanförnu alltaf verið rótt, þó að hann hafi kosið að þegja og jafnvel að taka undir fordæminguna á fjármálastefnu undanfarinna ára, þegar því hefur verið á lofti haldið í hans málgögnum og af talsmönnum hans flokks, — þá hygg ég samt, að honum muni æði oft hafa sárnað, þó að hann hafi af pólitískum ástæðum talið nauðsynlegt að taka heldur á sig óþægindin en að rísa upp til andmæla.

Hæstv. ráðh. segir, að það sé alveg ný stefna hjá Sjálfstfl. að vilja beita sér fyrir skattalækkunum og Sjálfstfl. hafi staðið að hinum ósvífnustu skattaálögum, sem á þjóðina hafi verið lagðar. Ég held nú sannast sagna, að þetta sé nokkuð málum blandað hjá hæstv. ráðh. Sjálfstfl. hefur ætíð haldið frá þeirri skoðun, að skattar ættu að vera hóflegir. Hins vegar hefur hann ekki nema að nokkru leyti haft aðstöðu til þess að marka þá stefnu, því að hann hefur verið í samvinnu við flokka, sem hafa haft allt önnur sjónarmið, og þá fyrst og fremst flokk hæstv. núverandi fjmrh., sem ætíð hefur viljað ganga á yztu nöf með skattlagningu. Hins vegar varð sú breyting á nú á síðustu árum, að það var horfið frá þessari stefnu. Hæstv. fjmrh. mun þá vissulega hafa séð, að of langt var gengið, og ég skal ekki á nokkurn hátt draga úr hans hlut að þessu máli. En þegar hann heldur því fram, að það hafi verið fyrst og fremst hann, sem beitti sér fyrir því, að skattar voru lækkaðir, þá náttúrlega þarf hann ekki að búast við öðru en að því verði svarað af alþjóð, eins og hér kom fram í þingsölum, að menn brosa að slíku og jafnvel hlæja að því, vegna þess að allir vita, hvaða flokkur það hefur verið, sem fyrst og fremst hefur beitt sér fyrir slíku, með allri virðingu fyrir hæstv. ráðh. Og við, sem í þeim málum höfum starfað hér á undanförnum árum, vitum allt of vel, hvaða erfiðleikar hafa verið að fást við flokk hæstv. ráðh., — ég skal ekki segja um hans persónulegu afstöðu í því, — varðandi skattamálin, til þess að geta tekið það sem góða og gilda vöru, að það eigi aðallega að þakka þeim fyrir að hafa framkvæmt nokkrar skattalækkanir á síðustu árum, sem var auðið að framkvæma vegna skynsamlegrar stefnu, sem tekin var upp og fylgt í fjármálum þjóðarinnar þá.

Hæstv. ráðh. virðist telja, að hér sé um algera nýjung að ræða, að nú skuli vera komið til skattalækkana, og það eigi að vera sérstakur sigurpálmi í höndum þessarar ríkisstjórnar að koma fram með það frv., sem hér er um að ræða, — það sannast sagna heldur lítilmótlega frv. En það veit hæstv. ráðh. vel og hefur enda oft talað fyrir því nú á síðustu þingum, hversu hafa verið gerðar miklu víðtækari breytingar og lagfæringar á skattalöggjöfinni á síðustu árum en er hér um að ræða, skattalækkanir, sem hafa veitt borgurunum mjög mikilvæg hlunnindi.

Þegar þessar staðreyndir eru íhugaðar, — og það er allt of skammt liðið síðan hæstv. fjmrh. hefur flutt hólræður um þær aðgerðir, sem gerðar hafa verið á síðustu árum, meðan hann var í fyrrv. ríkisstj., til þess að menn séu búnir að gleyma því, hversu hann taldi þar vera um mjög merkilegar lagfæringar að ræða, og eins og ég sagði, lagfæringar, sem eru stórum mun meiri og betri fyrir þjóðfélagsborgarana en þessi lítilmótlega 300 kr. eftirgjöf, sem hér er um að ræða, fyrir allar þær stórkostlegu álögur, sem nú hafa verið lagðar á, — þá sem sagt verður mönnum það skiljanlegt, hvernig á því stendur, að hæstv. fjmrh. í fyrsta lagi kýs ekki svo mjög að ræða um þetta mál, nema eftir að búið er að gefa honum sérstakt tilefni til þess, og þá með þeim þjósti, sem kom fram í ræðu hans hér áðan.

Það gefur auðvitað auga leið, eins og hv. 1. þm. Rang. benti hér á, að aðstaða bæjarstjórnar Reykjavíkur eða yfirleitt sveitarstjórna er gerólík aðstöðu ríkisstj. ríkisstj. hefur í sinni hendi að nota margvíslegar fjáröflunarleiðir. Nú síðast hefur hún lagt á þjóðfélagsborgarana a.m.k. 250 millj. kr. í nýjum álögum, og af þeirri upphæð skildist mér að hæstv. fjmrh. ætti að fá um 100 millj. kr. í sinn hlut, eftir því sem hann upplýsti hér fyrir jólin. — Þegar þetta er íhugað, kemur í ljós, að vandi hans getur varla verið ákaflega mikill að gefa eftir þessar 5 millj. kr., sem ég vil nú satt að segja stórkostlega efast um að séu 5 millj. kr. Miðað við það, hversu mjög smávægileg eftirgjöf þetta er á hvern skattgreiðanda, þá efast ég stórlega um, að þetta nemi þeirri upphæð, án þess að ég vilji þó vera beinlínis að rengja orð hæstv. ráðh. í því efni. En í sambandi við þessar álögur, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt á þjóðina, vex að sjálfsögðu mjög tilkostnaður bæði Reykjavíkur og annarra bæjar- og sveitarfélaga, og þessir aðilar hafa engar tekjur til að vega upp á móti þessum nýju álögum ríkisins og skattheimtu þess, nema með því einu að leggja útsvör á sína skattgreiðendur og bæjarbúa. Þetta hélt ég að lægi í augum uppi, og það er alveg stórmerkilegt þess vegna, að hæstv. ráðh. skuli ekki, jafnglöggur og sanngjarn maður og hann raunar er, skilja jafneinfaldan hlut og þetta, heldur koma hér og endurtaka þær árásir á bæjarstjórn Reykjavíkur og sveitarstjórnirnar fyrir það, að þær eigi að ganga enn lengra en ríkisstjórnin með því að gefa eftir af útsvörum. Ef hæstv. fjmrh. vildi ganga til móts við sveitarfélögin, eins og oft hefur verið óskað, um að veita þeim einhverja nýja tekjustofna, svipað og hann getur notað sem ráðherra, þá hygg ég að væri auðveldara um vik að lækka útsvörin. Hitt er annað mál, að ég er honum alveg sammála um það, hvort sem er um útsvör að ræða eða skatta, að það á vitanlega ekki að leggja opinber gjöld á nauðþurftartekjur fólks, sem það þarf sér til brýnasta lífsframfæris. Það hlýtur að hefna sín, vegna þess að ef fólkið getur ekki borgað sín opinberu gjöld, þá getur það ekki komið fram í öðru en það verði að safna skuldum eða þá að þrengja að sér meira en góðu hófi gegnir.

En miðað við þann mikla áhuga, sem nú virðist vera hjá hæstv. ráðh. um að framfylgja skattalækkunarstefnu, sem á sennilega að vera til þess að fólk gleymi því, sem gert var nú fyrir mánuði, þá held ég, að það geti varla talizt óhófleg rausn, þó að sú leið væri farin, sem ég minntist á hér áðan, að fella niður skatt þessara skattgreiðenda, sem hér um ræðir. Þá má segja að væri um allmikil hlunnindi að ræða, en ekki aðeins til þess að sýnast, eins og það er að fara að gefa eftir rúmar 300 kr. á ári á móts við allar þær óhemju álögur, sem lagðar hafa verið á borgarana að tilhlutan þessarar sömu hæstv. ríkisstj., sem nú kemur og ætlar að rétta að þjóðfélagsborgurunum þessa dúsu.