01.02.1957
Neðri deild: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

105. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hv. 1. þm. Rang. hélt hér fyrst nokkurn fyrirlestur um útsvörin og hvað það væri ákaflega erfitt hér í Reykjavík að fást við þau mál, tekjustofnar litlir o.s.frv., og þess vegna væru menn tilneyddir að leggja á þuftartekjurnar; það væri svo sem ekki af því, að menn vildu gera þetta, menn væru tilneyddir.

Síðan sagði hann, að það væri hægt að leysa þetta allt saman og mundi létta ákaflega mikið á bæjarfélögunum, ef hæstv. fjmrh. teldi ekki nauðsynlegt að hækka fjárlögin um 100 millj. árlega og hefði talið undanfarið.

Þetta gefur mér tilefni til þess að upplýsa hér enn, sem ég hef reyndar upplýst áður, að fjár1ögin hafa aldrei fengizt hækkuð eins mikið og sjálfstæðismenn vildu. Þeir hafa ævinlega viljað hækka fjárl. miklu meira en þeir hafa getað komið í framkvæmd, enda hafa þeir alveg ótæpt á undanförnum árum rógborið mig fyrir það, að hin og önnur framlög til nauðsynlegra mála hafi ekki fengizt fram, af því að Eysteinn hafi staðið á mótí. Svo kemur þessi herra, hv. 1. þm. Rang., sem hefur verið í stjórn undanfarið, og talar hér fyrir munn þessara manna og segir: Ja, þetta hefði allt saman getað verið miklu betra og öðruvísi, útsvörin lægri og allt miklu betur farið úr hendi, ef hæstv. fjmrh., þ.e.a.s. Eysteinn Jónsson, hefði ekki endilega viljað hækka fjárl. árlega um 100 millj. eða meira. — Hvað segja menn um þennan málflutning? Hér við bætist, að engir menn, sem ég hef þekkt í stjórn, hafa verið eins leiknir við að auka rekstrarkostnað ríkisins og sumir ráðherrar sjálfstæðismanna hafa verið. Þeir virðast bókstaflega hafa sett metnað sinn í að stofna til kostnaðar og nýrra embætta.

Þá ræddi hv. 1. þm. Rang. um fjárfestinguna. Eiginlega skilst manni helzt, að sjálfstæðismenn hafi þar ekkert komið nærrí, það hafi verið Framkvæmdabankinn, sem hafi ákveðið fjárfestinguna yfir höfuð í landinu. Þetta og annað slúður býður þessi hv. þm. þingheimi upp á; manni skilst, að stj. hafi hvergi komið þar nærri, ríkisstj. fyrrverandi, allra sízt sjálfstæðismenn, því að allt hafi það verið eftir höfði framsóknarmanna, allt saman nákvæmlega eins og þeir vildu. Þetta var það, sem menn gátu lesið út úr því, sem hv. 1. þm. Rang. sagði.

En hvað er hið rétta? Eru menn búnir að gleyma því, að eftir kosningarnar 1953 gerði Sjálfstfl. að aðalkröfu sinni að afnema helzt algerlega allt fjárfestingareftirlitið, og þegar sjálfstæðismenn fengu því framgengt að afnema það í jafnríkum mæli og gert var, þá héldu þeir sérstakan gleðifund innan flokksins, þar sem þessu var lýst eins og lausn úr álögum, að búið væri að létta höftunum fyrir baráttu sjálfstæðismanna, en gegn harðsnúinni mótspyrnu framsóknarmanna? Lugu þeir þá, eða sögðu þeir satt? Nú skyldi maður halda, að þeir hefðu logið þessu öllu saman, eftir því sem hv. 1. þm. Rang. vill nú endilega láta sýnast. Ég heyri ekki betur en að hann sé að keppast við að fá menn til að trúa því, að þetta hafi allt saman verið hrein ósannindi, það hafi ekkert verið gert í þessum málum annað en það, sem Framsfl. vildi, fyrst stefnan sjálf, hvað skyldi afnumið, þar næst framkvæmdin að öllu leyti. En það rétta í þessu er nú það, sem þeir sögðu þá, að Framsfl. var mjög hikandi við að afnema fjárfestingareftirlitið í jafnríkum mæli og gert var, en taldi óhjákvæmilegt að taka tillit til þess, að Sjálfstfl. hafði unnið nokkurn kosningasigur á þessu frelsistali sínu og fengið forustuna í ríkisstj. Afleiðingin hefur svo orðið sú gífurlega fjárfestingaralda, sem risið hefur í landinu, eins og við vitum. Ofan á þetta allt saman bættu svo sjálfstæðismenn því að svíkjast aftan að sínu eigin kerfi með því að láta ýmsa gæðinga sína reisa með prettum eitthvert mesta stórhýsi landsins og látast vera að byggja íbúðir.

Nú er komið á eftir og sagt: Blessaðir, verið þið ekki að tala um mikla fjárfestingu og ofþenslu, Framsókn vildi hafa þetta allt saman svana. Það er allt saman slúður og bull, sem við höfum áður sagt um, að það væri nokkur forusta hjá Sjálfstfl. fyrir auknu byggingarfrelsi, eða að sá flokkur hafi nokkurn tíma haft áhuga fyrir auknu fjárfestingarfrelsi. Það er allt áróður frá Framsókn, hún vildi hafa þetta allt svona. — Hvað á maður að segja um svona lagað? Ég veit það ekki; ég held, að það sé bezt að hætta.