28.05.1958
Efri deild: 110. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Það er vegna þess, að hv. 6. þm. Reykv. er ekki mættur, sem ég ætlaði að segja fáein orð hér, nú að þessu sinni.
Ég minnist þess, að þegar stjórnarblöðin voru í vetur að þjarka um það, hvaða leiðir mundu líklegastar í efnahagsmálunum, var því þráfaldlega haldið fram í Tímanum, blaði Framsfl., að uppbóta- og styrkjaleiðin hefði gengið sér til húðar, um þessa leið væri því ekki að ræða lengur. Aðalorsakir þess, að þessi leið væri ófær, voru þær að sögn stjórnarblaðsins, að leggja þyrfti svo miklar álögur á þjóðina, að hún fengi ekki undir risið. Ég hygg, að í aðalatriðum sé þessi skoðun rétt. Uppbótaleiðin er fær að vissu marki, en þegar hún fer að verða meginstoðin undir atvinnurekstrinum árum saman og alltaf vex sú fúlga, sem krefja þarf þjóðina um til stuðnings atvinnuvegunum, þá hlýtur að því að reka, að boginn bresti.
Lítum á þróunina, eins og hún hefur verið þann stutta tíma, sem núverandi hæstv. ríkisstj. hefur setið að völdum. Talið er, að álögurnar, sem lagðar voru á þjóðina með „jólagjöfinni“ svonefndu í árslok 1956, hafi numið 300-350 millj. kr., og með frv. því, sem hér liggur fyrir, á að bæta nýjum álögubagga á þjóðina, sem nemur um 800 millj. kr. Þetta verða samtals 1.100–1.200 millj. kr. á þessum stutta tíma. Ég spyr: Fær þetta staðizt? Er boginn ekki þegar brostinn? Getur þjóðin risið undir þessum bagga?
Augljóst er, að hinar gífurlegu tollahækkanir og álögur, sem ráðgerðar eru í frv., hljóta að hafa í för með sér stórkostlegar verðhækkanir á flestum vörum. Afleiðing þess verður nýtt dýrtíðarflóð, sem hlýtur að bitna á atvinnuvegunum og þjóðinni í heild. Stjórnarflokkarnir vilja sem minnst gera úr þeim hækkunum á verðlagi, sem þetta frv. hlýtur að leiða af sér, en það sjá allir, sem opin augu hafa, að slík staðhæfing fær ekki staðizt.
Ég vil nú leyfa mér að benda á nokkur dæmi um hækkanir, sem leiðir af þessu frv., ef að lögum verður.
Dráttarvélar hækka um 35.2%. Ég vildi í þessu sambandi geta þess, að þeir voru þó nokkuð margir, bændur í Vestur-Skaftafellssýslu, sem höfðu pantað dráttarvélar þessu sinni, greiddu þær að fullu snemma í vetur eins og aðrir landsmenn, og féð hefur legið á banka síðan vaxtalaust. Þeir hafa allir með tölu kallað aftur sína pöntun nema einn einasti. Ég þykist vita, að sumir stjórnarliðar fagni þessum tíðindum, vegna þess að með þessu verður sparaður gjaldeyrir. En er þetta fögnuður fyrir landbúnaðinn, að svona er farið að? Er það fögnuður, að ekki sé hægt að kaupa slík nauðsynjatæki sem dráttarvélar eru, því að það er líklega ekkert tæki jafnnauðsynlegt og dráttarvélar í þeirri fólksfæð, sem nú er í sveitunum. Varahlutar í dráttarvélar hækka um 35.4%. Mjaltavélar hækka um 31%. Heyvinnsluvélar hækka um 30%. Fóðurbætir hækkar um 43.3%. Þetta eru aðeins fáeinar vörur, sem snerta landbúnaðinn fyrst og fremst.
Ég vil þá nefna nokkur tæki, sem snerta samgöngumálin og vörur til þeirra. Sveitir hér á Suðurlandi búa við samgöngur á landi einvörðungu og verða að nota bifreiðar til þeirra hluta, hafa engin önnur ráð. En hvernig er þá farið með sveitirnar? Benzín hækkar um 25.30%. Vörubílar munu hækka um 25%. Varahlutar í vörubíla munu hækka um 25%. Og bílagúmmí mun hækka um 17%. Haldið þið, að þessar gífurlegu hækkanir hafi ekki einhver áhrif á vöruflutningana í sveitum landsins, bæði til sveitanna og einnig afurðirnar úr sveitunum?
Hv. 4. þm. Reykv. minntist hér nokkuð á erfiðleikana, sem mundu verða í byggingarmálunum. Ég vil bæta hér nokkru við um þær verðhækkanir, sem verða á brýnasta byggingarefni. Sement mun hækka um 22.2%, timbur um 25%, bárujárn um 19.2%, miðstöðvarofnar um 24.2%, steypustyrktarjárn um 19.4%, rúðugler, einfalt eða tvöfalt, hækkar frá 19 og upp í 23% hækkun.
Ég minnist þess, — ég held, að það hafi verið fyrir 1 eða 2 dögum, — að við vorum að ræða hér um hjónaskatt, og þá kom hv. þm. S-Þ. hér upp, flutti lítinn fræðifyrirlestur, þar sem hann vildi réttlæta það, að húsmæðrum, sem vinna á heimilum, er refsað fyrir það, að þær fara ekki út í sjoppurnar eða fiskreitina til þess að vinna. Hann nefndi sem dæmi, að þessar húsmæður hefðu svo þægilegar vélar og tæki til þess að vinna á heimilunum, að þeim væri það vissulega vorkunnarlaust að starfa þar nú orðið. Þeir hafa fundið það, þessir blessaðir herrar, að þetta verður of hægt fyrir húsmæðurnar, og þess vegna kemur nú hækkunin á þessi tæki. Ég skal geta nokkurra. Kæliskápar eiga að hækka um 20%, þvottavélar eiga að hækka um 21.7%, hrærivélar 21.7%, Ég nefni hér aðeins fá hin nauðsynlegustu tæki, þar sem mér virtist fram koma hjá þm. S-Þ., að ekki væri ástæða til þess að ívilna þessum konum í skattgreiðslum, þó að þær hafi máske 5 eða upp í 10 börn sumar, það skiptir ekki miklu máli. En svona verður nú þarna þyngt þeirra starf.
Það má geta þess, að nú er svo komið víðast hvar í kaupstöðum og eins í öllum kauptúnum úti um land og mjög víða í sveitum, að til húsakyndingar er notuð olía. Hækkun á olíu til húsakyndingar verður 25%.
Þá vil ég minnast hér á fáeinar vörur, sem eru almennar neyzluvörur, þótt ekki sé beinlínis hægt að segja, að þær séu nauðsynjavörur. Kaffi hækkar um 13.5%, sykur hækkar nm 14.7%, hveiti um 14.2%. Ég gæti haldið áfram að telja þannig ótal vörur, og þar kemur í ljós, að alls staðar er gífurleg hækkun. Ég spyr: Dettur mönnum í hug, að það verði hægt að fá fólkið til að kaupa þessar dýru vörur til þess að standa undir greiðslum til útflutningsins?
Ég hygg, að ríkisstj. eigi eftir að þreifa á því, að fólkið getur ekki keypt þessar vörur. Það dregur við sig svo sem unnt er að kaupa vöruna. Þá getum við líka reitt okkur á, að innflytjendur spara við sig sem mest þeir geta að flytja inn þessar vörur. Þeir flytja ekki inn nema rétt eftir brýnustu þörfum, sem hægt er að selja jafnharðan. Þeir liggja ekki með svo dýrar vörur. Það er alveg frágangssök fyrir þá.
Mér finnst það dálítið athyglisvert, að í sambandi við þetta mál munu liggja fyrir mótmæli frá hvorki meira né minna en 15 verkalýðsfélögum, — mótmæli gegn þessum ráðstöfunum, Þetta er eftirtektarvert, segi ég, vegna þess að ríkisstj. hafði heitið því að hafa fullt samráð við verkalýðinn. Meðal þessara 15 verkalýðsfélaga, sem hafa sent mótmæli gegn þessum ráðstöfunum, eru flest, ef ekki öll stærstu verkalýðsfélög á landinu. Þetta er mjög athyglisvert. Ég hygg, að á meðan við erum með þetta mál hér á síðustu stundu, sé enn ekki búið að semja við þau félög, sem hafa sagt upp kjarasamningum. Hvað kemur þá, ef þau heimta nú kauphækkanir? Það er þegar víst um eitt sterkasta félagið, prentarafélagið, — þó að það sé ekki fjölmennast, þá er það ákaflega öflugt félag, — það heimtar hækkun um 10%. Einnig má minna á það, að þau eru fjöldamörg iðnaðarfélögin og önnur atvinnurekendafélög, sem hafa mótmælt þessu frv. Er ekki nokkuð dökkt fram undan að knýja þetta mál svona áfram, þegar þannig er í pottinn búið?
Ég hygg, að það verði engin fagnaðarlæti hjá þjóðinni, þegar hún fær þessa nýju sumargjöf, ef það má kalla það svo. Ég skal ekki orðlengja þetta frekar, en ég vildi aðeins með þessum fáu orðum mótmæla þeirri firru, sem kemur oft fram hjá stjórnarliðinu, að það sé ekki vert að vera að tala um verðhækkanir í sambandi við þetta frv., ef að lögum verður.