29.05.1958
Efri deild: 111. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)

186. mál, útflutningssjóður o. fl.

Frsm. 3. minni hl. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Mér láðist í framsöguræðu minni fyrir 3. minni hl. fjhn. að geta þess, að við í minni hl. mælum með samþykkt á brtt. þeim, sem hv. 11. landsk. og hv. 2. þm. Árn. flytja á þskj. 585. Að öðru leyti vildi ég leyfa mér að fara örfáum orðum um nokkur atriði úr ræðu hæstv. sjútvmrh.

Hæstv. ráðh. kvað þau ummæli mín, að samningur hefði verið brotinn á heildarsamtökum útvegsmanna, vera staðhæfingu, sem gripin væri úr lausu lofti. Ég vil endurtaka það, sem ég sagði, að samningstilboð sjútvmrh. um síðustu áramót var samþykkt með þeim fyrirvara og háð því skilyrði, að fjárhagsafkoma vélbátaútvegsins yrði ekki rýrð með nýjum álögum eða ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins á árinu 1953 frá því, sem felst í nefndu bréfi, þ.e.a.s. samningstilboði hæstv. sjútvmrh. Þessi fyrirvari var borinn undir ráðh., áður en hann var sendur honum bréflega, og samþykktur af honum. Þessu hafa samtök útvegsmanna haldið ákveðið fram við fjhn. Alþingis, sem fulltrúar frá þeim hafa rætt málið við. Auk þess hef ég gert gangskör að því að fá nákvæmar persónulegar upplýsingar um þetta frá forvígismönnum Landssambands íslenzkra útvegsmanna og fengið það staðfest, að þetta væri rétt. Það undrar mig því mjög, að hæstv. ráðherra skuli lýsa því yfir hér, að það hafi ekki komið til greina að takast á hendur neina skuldbindingu um að fá hækkaðan framleiðslukostnað bættan, eftir að hann hefur fallizt á þann fyrirvara, sem ég hef lesið hér og gerður var af hálfu Landssambands ísi. útvegsmanna, þegar samningstilboði ráðherrans var tekið um síðustu áramót.

Nú orkar það ekki tvímælis, að síðan þessi samningur var gerður, hafa stórfelldar nýjar álögur verið lagðar á útflutningsframleiðsluna. Það hefur verið upplýst, að greiðsla 55% yfirfærslugjaldsins, sem útgerðinni er gert að greiða af rekstrarvörum sínum, muni þýða hvorki meira né minna en rúmlega 200 millj. kr. nýjar álögur og útgjöld af hálfu útvegsins eins. Það sætir þess vegna engri furðu, þó að Landssamband ísl. útvegsmanna komi nú til ráðh. og til hv. Alþingis og telji brotinn á sér samning og hæstv. sjútvmrh. hefur ekki enn þá getað afsannað, að slíkt hafi gerzt.

Það er svo furðulegur málflutningur af hálfu hæstv. sjútvmrh. og fleiri hæstv. ráðh. í Nd. að halda því fram, að það sé ekki hægt að tala um þennan útgjaldaauka sem álögur á útflutningsframleiðsluna, vegna þess að hún fái þetta greitt aftur. Ef sömu röksemdafærslu væri fylgt, þá mætti segja, að þær álögur, sem lagðar eru á þjóðina, t.d. með fjárlögum, væru alls ekki útgjaldabyrði á þjóðina, vegna þess að meginhluti þess fjár og raunar allt það fé, sem varið er til ýmiss konar útgjalda á fjárlögum, gengur til þjóðarinnar aftur í einni og annarri mynd. Vitanlega er hér um að ræða hreina endileysu. Þessar álögur eru lagðar á útveginn og eru lagðar á þjóðina, enda þótt þetta komi að meira og minna leyti til þessarar sömu atvinnugreinar aftur. En þær koma náttúrlega alls ekki jafnt niður, vegna þess að útflutningsuppbæturnar eru mjög misjafnar og fara eftir mörgu, aflabrögðum, eyðslu á olíu og öðrum útgerðarvörum, veiðarfærum o.s.frv.

Ekki tekur betra við, þegar hæstv. ráðh. fer að gagnrýna upplýsingar stjórnarandstöðunnar um það, hve miklar þær álögur séu, sem lagðar eru á þjóðina með þessu frv. Hann viðurkennir, að hann hafi í febrúar í vetur sagt, að ekki þyrfti nema 90 millj. kr. auknar tekjur til þess að sinna þörfum ríkissjóðs og útflutningssjóðs. Nú segir hann hins vegar, að með þessu frv. séu lagðar á þjóðina 240 millj. kr. nýjar álögur. En þá er það byggt á þeim útreikningi, sem ég gat um hér áðan, að hæstv. ráðh. telur það t.d. ekki álögur á sjávarútveginn, að honum er gert að greiða 200 millj. kr. í yfirfærslugjald af rekstrarvörum sínum. Með því að reikna þetta þannig út, kemst hæstv. ráðh. að þeirri niðurstöðu, að útgjaldaþörf ríkissjóðs og útflutningssjóðs sé að vísu ekki 90 millj. kr., eins og hann sagði í febrúar, heldur 240 millj. kr.

En ég skal gera alveg sundurliðaða grein fyrir því, hvernig ég og aðrir stjórnarandstæðingar fáum út þá tölu, sem við höldum fram að sé hin raunverulega nýja gjaldabyrði, sem lögð sé á þjóðina með þessu frv. Þessi tala er þannig fengin: Í fyrsta lagi, að hækkun yfirfærslugjalds af innfluttum vörum gefi útflutningssjóði í nýjar tekjur 452 millj. kr., eða samtals 580 millj. kr. í stað 128 millj. kr. áður. Í öðru lagi, að tolltekjur ríkissjóðs séu með frv. hækkaðar um 144 millj. kr. Í þriðja lagi, að nýtt benzíngjald, sem á að verða 62 aurar á litra, gefi ríkissjóði 24.6 millj. kr. í nýjar tekjur. Í fjórða lagi, að yfirfærslugjald af öðrum yfirfærslum, en vörukaupum nemi 240.5 millj. kr. hækkun.

Samtals gera þessar upphæðir 861 millj. kr., en frá þeirri upphæð á að dragast 86 millj. kr. lækkun, sem gerð er skv. frv., á gamla innflutningssjóðsgjaldinu. Niðurstaðan verður þá sú, að hækkun álagna á almenningi verður skv. þessu frv. um 780 millj. kr. eða sú upphæð, sem við sjálfstæðismenn höfum haldið fram, frá því að þetta mál var lagt fyrir hv. Alþingi.

Ég vil gjarnan geta þess, að við höfum við útreikning þessara útgjalda leitað álits sérfróðra manna og jafnvel stuðzt við álit þeirra sérfræðinga, sem unnu með hæstv. ríkisstj. að samningu þessa frv. Hér er því ekki um neinar ýkjur eða órökstuddar staðhæfingar að ræða. Skv. þessu frv. eru lagðar á þjóðina hátt á 8. hundrað millj. kr. í nýjum álögum, með hinni dulbúnu gengislækkun og yfirfærslugjöldum og verulegu tollahækkunum, sem framkvæmdar eru í leiðinni.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta mál. Ég harma það, að hæstv. sjútvmrh. hefur ekki treyst sér til þess að svara ýmsum þýðingarmiklum fsp., sem ég beindi til hans, m.a. um það, hvernig skilja bæri 3. gr. frv., að ógleymdu þó hvernig stæði á undanþágu ilmefna til sápugerðar frá greiðslu þeirra gjalda, sem um ræðir í 31. gr. frv. Hæstv. ráðh. tók ekki heldur afstöðu til þeirra brtt., sem við í minni hl. höfum flutt og miða að því að koma í veg fyrir, að stórfelldur samdráttur verði í iðnaðinum, sem allar líkur benda til að síðar mundi hafa í för með sér verulegt atvinnuleysi. En það er eins og hæstv. ríkisstj, hafi gersamlega gefizt upp fyrir öllum vanda. Hana varðar um það eitt að fá skattana lagða á almenning í landinu, en miklu síður og helzt alls ekki um hitt, hvernig hægt sé að nota þessar gífurlegu álögur til þess að fleyta framleiðslunni og þjóðarbúskapnum yfir þau blindsker verðbólgu og dýrtíðar, sem nú blasa við á bæði borð og ekki er sýnna annað, en þjóðarskútan muni steyta á fyrr, en varir.