21.03.1958
Neðri deild: 70. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)
136. mál, húsnæðismálastofnun
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ég vil fyrst víkja nokkrum orðum að því tiltæki hv. sjálfstæðismanna að taka efni frv., sem þeir fluttu hér í upphafi þings, og flytja efni þess í brtt.-formi yfir í þetta frv., sem hér er til umr. Ég tel þetta alveg óþingleg vinnubrögð með öllu og lýsi því yfir, að ég er andvígur slíkum vinnubrögðum, held, að þeir ættu að hamra á því við viðkomandi þingnefnd að hraða afgreiðslu þess máls út af fyrir sig, en ekki að grípa til svo óþinglegra vinnubragða eins og þeir gera hér með því að ætla að innlima sitt frv. í þetta ágæta frv., sem hér er til umr. Það ber ekki nokkurn keim af sjálfstæðistilfinningu.
Hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) sagði, að lögunum, sem sett voru í fyrra um húsnæðismálastofnun ríkisins o.fl., væri mjög ábótavant og einnig framkvæmd þeirra. Það vill nú verða svo með flest mannanna verk, að þau eru ekki alfullkomin, og það er sjálfsagt ekki heldur með þessa löggjöf. Ég býst við, að það væri hægt að segja það um flesta löggjöf, sem frá Alþingi kemur, að hún sé ekki fullkomin, og einnig færi svo líklega í flestum tilfellum, að framkvæmdin væri heldur ekki í samræmi við kröfur um fullkomleika. Samt held ég það verði erfitt að neita því, að setning laganna á síðasta þingi um húsnæðismálin var til stórbóta, og það mun sýna sig mjög fljótlega, að sú löggjöf leysir miklu meiri vanda í þessum annars vandasömu efnum, heldur en sú löggjöf, sem áður gilti.
Í brtt. sjálfstæðismanna er lögð áherzla á, að tekinn sé upp frjáls sparnaður. Það er ekkert nýmæli. Það eru fullar heimildir í löggjöfinni núna um frjálsan sparnað. En það, sem þeim er meira í mun, er að fella niður gildandi ákvæði um skyldusparnaðinn. Þar er ég alveg á öndverðum meið. Ég álít, að skyldusparnaðurinn eigi fullan rétt á sér, og það er mín skoðun, að það nýmæli hafi fengið svo almennar og góðar undirtektir hjá eldri sem yngri, að frá því beri ekki að hverfa. Það var áætlað af mönnum úr hagfræðideild Landsbanka Íslands, áður en lögin voru sett í fyrra, að skyldusparnaður samkvæmt þeim ákvæðum, sem eru í löggjöfinni, væri líklegur til þess að gefa um 15 millj. kr. tekjur á ári. Nú höfum við fengið reynslu af þessu í tvo og hálfan mánuð, þannig að 15. marz sáum við, hvað skyldusparnaðarupphæðin, sem hafði innborgazt í pósthúsið í Reykjavík, nam miklu, og niðurstaðan varð sú, að fyrir janúar og febrúar og hálfan marz hafði komið inn í pósthúsið í Reykjavík 21/2 millj., þ.e.a.s.: það eru líkur til þess, að það ætli að verða svona um 1 millj. á mánuði. Þar má aftur búast við, að eitthvað þurfi að endurgreiðast og að endurgreiðslurnar séu sjálfsagt ekki komnar allar fram nú. En ef mætti miða við þetta sem meðaltal, þá er ekki ólíklegt, að utan Reykjavíkur komi a.m.k. eins mikil upphæð inn sem skyldusparnaður og þarna væri þá um 2 millj. að ræða á mánuði eða kannske ekki fjarri 24 millj. á ári. Um þetta er þó ekki gott að fullyrða enn. En það er þegar sýnt, að það kemur til með að falla til húsnæðismálanna og til úrlausna í þeim allverulegt fé skv. skyldusparnaðarákvæðum gildandi laga.
Unga fólkið hefur nú margt tekið sínar sparibækur, og ég hef orðið þess var, að það er ekki síður ánægt með þessar sparisjóðsbækur heldur, en aðrar slíkar bækur, sem eðlilegt er, því að þessar sparifjárinnstæður eru miklu betur verndaðar og miklu betur ávaxtaðar, en annað sparifé í þessu landi hefur nokkru sinni verið og gefur þó aðallega hið stóra fyrirheit, þegar búið er að spara ákveðinn tíma og til framkvæmda koma þau forréttindi, sem unga fólkið aflar sér með þessum sparnaði umfram það að hafa ávaxtað sitt fé, — þau forréttindi að geta þá fengið húsnæðislán og hærri að upphæð og með forgangi fram yfir aðra, þegar þetta unga fólk stendur þá í því stóra átaki að leysa sín húsnæðismál. En þetta er eitt af þeim nýmælum, sem fólust í setningu laganna í fyrra, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði að hefðu haft inni að halda mjög fá nýmæli og þó öll smávægileg. Þetta er eitt af þeim smávægilegu nýmælum, sem í lagasetningunni í fyrra fólust. Annað smávægilegt nýmæli var það, að 1% af öllum tolltekjum ríkisins skyldi falla til húsnæðismálanna, og í þriðja lagi, að það voru lagðar til nýjar tekjur til eignar fyrir húsnæðismálasjóð eða byggingarsjóð ríkisins, sem þá var stofnaður, þannig að hans stofnfé varð 108 millj. kr. Gildur þáttur í starfseminni verða þannig vaxtatekjur af þessum sjóði, sem ég játa annars að hefði þurft að vera miklu stærri til þess að leysa hinn mikla vanda, sem þarna hafði safnazt saman og sífellt ber að höndum í þessum málum.
Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þetta. Hvað sem menn segja um það, að það hafi verið lítilsverð nýmæli, sem hafi falizt í lagasetningunni um húsnæðismálin í fyrra, þá er það staðreynd, að þar var bæði aukið fé til þessara mála og enn fremur lögð drög að því, að settar væru skynsamlegri reglur um að leysa fyrst og fremst vanda þeirra, sem nauðulegast væru staddir í húsnæðismálum, en fram að þeim tíma hafði það verið mjög eftir geðþótta tveggja manna, til hverra lánin féllu, og það var ekki til þess að byggja á því til frambúðar.
Það hefur verið hér bent á það af hv. 5. þm. Reykv., að þess væri full þörf að auka fjárveitingar til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. Þetta er alveg hárrétt. Það væri þörf á því að fá meira fé, bæði til þess að leysa þennan þátt húsnæðisvandamálanna og aðra þætti. En þegar hv. Sjálfstfl. fór með stjórnarforustu í landinu, þá vöru ætlaðar 3 millj. kr. til þess að leysa þessi mál. Með lagasetningunni í fyrra, þessari lítilsverðu, var þetta framlag aukið um 25% og ætlaðar til þess 4 millj. á ári, og vegna þessarar aukningar tók húsnæðismálastofnunin svo það á sig að hækka framlagið til þess fólks, sem fengi íbúðir samkv. þessum kafla, úr 50 þús. kr. í 70 þús. kr., þannig að við það ástand, sem ríkti, þegar Sjálfstfl. hafði stjórnarforustu í landinu, áttu fátæklingarnir, sem bjuggu í hinu heilsuspillandi húsnæði, kost á því að fá 50 þús. kr. framlag frá Reykjavikurbæ og 50 þús. frá ríkinu, þ.e.a.s. 100 þús., og aðeins á meðan 3 millj. kr. upphæðin á fjárl. væri fyrir hendi. En eftir breytingu laganna er þetta svo, að nú á einstaklingurinn kost á 70 þús. kr. framlagi frá Reykjavíkurbæ og 70 þús. kr. frá ríkinu, eða 140 þús. kr., meðan 4 milljónirnar á fjárl. hrökkva til.
Ég veit ósköp vel, að þarna þyrfti að koma enn þá meiri hjálp til, af því veitti ekkert. En þetta er þó ólíkt meiri hjálp, en hægt er að veita efnalitlu fólki yfirleitt, sem aðeins á kost á því að fá lán. Þessi lán eru veitt til 50 ára, en aðrir eiga kost á að fá lán með 71/4% vöxtum til 15 eða 20 ára — 15 nokkurn hlutann og 20 ára annan hlutann — og aðeins 70–80 þús. kr. lánsupphæð. Allt er þetta skorið við neglur, það verður að játast. En það er áreiðanlegt, að hér hefur verið betur gert einmitt s.l. ár í þessum málum, en nokkru sinni fyrr.
Þeir, sem nú eru háværir um það, að hér sé ekki nærri því nógu vel að unnið, ættu þá fyrst og fremst að rifja það upp, að enn verr gerðu þeir við þessi mál, þegar þeir fóru með þau, og var þá þörfin ekkert minni, en hún er nú.
Þá var að því vikið af hv. 5. þm. Reykv., að brtt. þær, sem hér eru bornar fram við húsnæðismálalöggjöfina frá því í fyrra, sýni það, að hún hafi verið meingölluð og illa undirbúin. Ég hef áður vikið að því hér, að þessar breyt., sem nú eru til umr., sýna það á engan hátt. Hér er að fenginni reynslu verið að lagfæra nokkur smáatriði. Í fyrsta lagi er orðalag laganna nú á þann veg, að það mætti skilja það þannig, að ætti að greiða vísitölu af stofnfé og vöxtum. Vísitöluna á að greiða af stofnfé, en þegar til framkvæmdarinnar kemur, þá segja bankamenn, að það sé erfitt að reikna út vísitölu af vöxtum. Fyrsta breyt. er aðeins um þetta smáræði, að það sé skýrt, að lagabókstafurinn sé í samræmi við það, sem bankamenn telja að möguleikar framkvæmdanna ákveði.
Það var alveg skýlaust ætlun löggjafans fyrir ári, að sparnaðurinn næði yfir 10 ár, og önnur breyt. er aðeins til þess að taka af tvímæli um það, að sparnaðurinn skuli vera ekki í 9 ár, heldur í 10 ár, þ.e.a.s. skuli ekki hætta fyrr, en að loknu 25. aldursári.
Í þriðja lagi voru svo í löggjöfinni margs konar undanþáguheimildir, þar sem upp voru taldir ýmsir aðilar, sem ættu rétt h að vera undanþegnir sparnaðarskyldu, svo sem fólk, sem væri í skóla hálft árið eða meir, og fólk, sem hefði við mikla efnahagserfiðleika að búa, heilsuleysi, og fleiri voru upp taldir. En það mun hafa láðst að taka það fram, hvort útlendingar, sem vinna hér í landinu, ættu að vera, ef þeir væru á þessu aldursskeiði, undir sparnaðarákvæðum löggjafarinnar eða hvort þeir skyldu undanþiggjast. Og hér er það tekið fram, að útlendingar skuli fá sitt sparnaðarfé, sem af þeim verður tekið eins og öðrum, endurgreitt, þegar þeir fara alfarið af landi brott. Engin stórbreyting getur það nú talizt, en það er til þess að ákveða nákvæmlega um þetta fyrirbæri í þeim tilfellum, þegar útlendingar kynnu að vera á tímabilinu 16–25 ára hér við störf, og þykir sanngjarnt, að þeir fái sitt sparaða fé, þegar þeir fari úr landi, en verði þeir hér framvegis, þá séu þeir undir sömu reglum og skyldum og íslenzkt fólk.
Svo er eitt atriðið um, að það skuli vera skýrt og ákveðið, hvaða viðurlög skuli liggja við vanrækslu sparimerkjakaupa, og hygg ég, að flestir séu sammála um, að það sé bezt, að það sé alveg ákveðið, svo að menn viti, að ef þeir brjóta af sér í því efni að framkvæma sölu eða afhendingu sparimerkja, þá komi það þeim í koll aftur skv. skýrum ákvæðum laga þar um.
Þetta sýnir allt saman, að breytingarnar eru smávægilegar og eingöngu til þess, eins og sjálfsagt er í löggjöf, sem inniheldur allmörg nýmæli, að taka af tvímæli, þar sem orðalag virðist ekki hafa verið alveg hnitmiðað í samræmi við nauðsynlega framkvæmd. Ég tel, og munu flestir þm. líta svo á, að þessar brtt. séu sjálfsagðar, enda hef ég ekki hér neitt hnotið um það, að þessar brtt. séu ekki eðlilegar og sjálfsagðar. En það, sem hv. sjálfstæðismenn ræða hér um, eru þessi óþinglegu vinnubrögð með annað frv., sem þeir bera fyrir brjósti og hafa flutt hér á Alþingi, að fá meginefni þess frv. fellt inn í þetta frv., og því er ég, eins og ég áðan sagði, andvígur. Ég held, að það orki ekki tvímælis, að það er miklu réttara að taka afstöðu með og móti þeim breytingum, sem felast í þessu frv., sem hér er til umr., og láta það bíða síns tíma, að þingmenn á sama hátt taki afstöðu til efnis þess frv., sem hv. sjálfstæðismenn hafa flutt um breytingu á húsnæðismálalöggjöfinni, og fæ ég a.m.k. ekki skilið það, að hverju leyti þeim finnst það betra að innlima sitt eigið frv. í þetta ágæta frv. og svipta þannig sitt eigið frv. sjálfstæðri tilveru.