21.03.1958
Neðri deild: 70. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)
136. mál, húsnæðismálastofnun
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Ég á hérna brtt. á þskj. 297, sem er tilraun frá minni hendi til að leiðrétta nokkurt ranglæti, sem gætir í þeirri löggjöf, sem nú gildir. Þessi brtt. fjallar um, að unglingar í sveitum, sem vinna hjá foreldrum sínum eða fósturforeldrum og leggja árlega a.m.k. 25% af kaupi sínu að fæði frádregnu í bústofnsaukningu, séu undanþegnir þeirri skyldu að leggja 6% af launum sínum greiddum í peningum í því skyni að mynda sérsjóð til íbúðarbyggingar eða bústofnunar í sveit, eins og það hljóðar í lögunum. Ef þetta yrði að lögum, þá nyti þetta fólk sömu undanþágu og það fólk, sem um ræðir í A-, B- og C-lið 11. gr. laganna.
Þetta tel ég að sé í alla staði eðlilegt og sanngjarnt, þegar á það er litið, að lögin mæla svo fyrir, eins og áður er sagt, að þessi 6% skuli leggjast í sjóð til styrktar íbúðarbyggingu eða bústofnun í sveit. En í þeim tilvikum, sem brtt. mín ræðir um, þá leggur þetta fólk á sig miklu hærri gjöld til bústofnunar, þ.e. 25% af kaupi sínu, og þetta fólk er því með frjálsu framlagi að vinna að því verkefni, sem sjóðnum er ætlað að vinna, en með mun hærri fjárframlögum, en gert er ráð fyrir í lögunum. Fyrir sjóðinn hefur þessi undanþága mjög lítil áhrif til eða frá, þar eð búpeningseign unglinga og ungs fólks er orðin að sögn miklum mun fátíðari, en áður var. Þetta er þróun, sem flestir sveitabændur eru á einu máli um að sé mjög óheillavænleg fyrir landbúnaðinn. Brtt. mín miðar því að því að örva unga fólkið til að taka upp fyrri hætti. Hún stuðlar að því, að ungt fólk komi sér upp bústofni í skjóli foreldra sinna og að þessir unglingar verði þannig beinir þátttakendur í búrekstrinum. Það er margföld reynsla fyrir því, að slík þátttaka í búrekstrinum er öruggasta ráðið til að tengja unga fólkið við sveitirnar og landbúnaðinn til frambúðar.
Ég er sannfærður um það og styðst þar við nokkra reynslu, að margt sveitafólk á þessu aldursskeiði, sem hér um ræðir, hefur mun meiri áhuga fyrir að eignast skepnur, sem það umgengst, heldur en að safna í sjóði, ef um þetta tvennt er að ræða. Með samþykkt till. gefst Alþ. færi á að stuðla að þróun, sem mundi hafa mikla þýðingu fyrir sveitirnar og landbúnaðinn í framtíðinni. Aukin þátttaka unga fólksins í búskapnum mundi vega margfaldlega á móti því krónutapi, sem sjóðurinn mundi líða vegna þessarar undanþágu. Það er ég alveg sannfærður um.