27.03.1958
Neðri deild: 73. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)

136. mál, húsnæðismálastofnun

Jóhann Hafatein:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að koma hér inn í umr. um þetta mál, áður en þeim lýkur, nokkru fyllri upplýsingum, sem ég hef nú með höndum, um það, sem deilt var um hér við 2. umr., þ.e.a.s., hversu miklar lánveitingar hefðu verið á undanförnum árum til íbúðabygginga.

Það er að vísu svo, að menn töluðu um nokkuð sitthvað í þessu sambandi, í fyrsta lagi, hversu lánveitingarnar eða löng lán til íbúðabygginga almennt hefðu verið mikil á undanförnum árum, og svo annars vegar, hversu miklar lánveitingar hefðu verið eingöngu gegnum hið almenna veðlánakerfi eða frá byggingarsjóði ríkisins. Og sérstaklega var það hæstv. félmrh., er lagði áherzlu á það, að þær skýrslur, sem fyrir lægju frá Landsbankanum um löng lán til íbúðabygginga almennt í landinu, væru að nokkru leyti áætlunarupphæðir, því að það væri naumast hægt að gera sér alveg glögga grein fyrir því út í æsar, hversu miklar þessar lánveitingar væru.

Við skulum segja það, að þær upplýsingar, sem Landsbankinn hefur gefið um þetta efni, séu að einhverju leyti áætlunarupphæðir. En það skiptir ekki öllu máli í þessu sambandi, og má láta það liggja á milli hluta. Um hitt á ekki að þurfa að deila, hve mikið lánsfé hefur farið um hendur hins almenna veðlánakerfis eða hve miklar lánveitingar hafa átt sér stað úr byggingarsjóði ríkisins eða hinu almenna veðlánakerfi, sem er nú eitt og hið sama, en heitir annað nú, en áður hét, eins og hv. þm. er kunnugt um. Og þar sem því hefur einmitt verið haldið hér mjög á lofti, að sjálfstæðismenn, þegar þeir stóðu að ríkisstj., hafi mjög brugðizt fyrirheitum sínum um að afla fjár til hins almenna veðlánakerfis og snögg umskipti hafi orðið, þegar núverandi hæstv. ríkisstj, tók við, þá er rétt að leggja nú áherzlu á og taka eingöngu til samanburðar þær lánveitingar, sem fram hafa farið um þetta almenna veðlánakerfi eða frá byggingarsjóði ríkisins og við getum kallað A- og B-lán, og bera það saman, eins og það var áður og eins og það er nú. Ég hef hér fyrir framan mig upplýsingar um það, hvað veðdeild Landsbankans, sem annast afgreiðslu þessara mála, hefur afgreitt mikið af slíkum lánum, A- og Blánum, frá því að hún var stofnuð.

Nú vil ég vekja athygli á því, að það er dálítið annað, þegar menn stundum tala um, að húsnæðismálastjórn hafi veitt svo og svo mikil lán, A-lán og B-lán, eða afgreiðslu lánanna, því að stundum liggur eitthvað á milli mála í veðdeildinni, — það er kannske búið að veita lánin frá húsnæðismálastjórn, og einhvern tiltekinn tíma getur þetta skipt einni eða tveimur millj. kr. eða því um líku, áður en búið er að afgreiða lánin. Þessu vek ég athygli á, svo að menn blandi ekki þessu saman, að þær tölur, sem ég fer núna með, eru yfir afgreidd A- og B-lán, frá því að húsnæðismálalöggjöfin var stofnsett 1955. Eins og kunnugt er, var gengið frá löggjöfinni í maímánuði það ár, en starfsemi veðlánakerfisins eða afgreiðsla lána hófst í nóvembermánuði árið 1955.

Ég vil þá gefa upplýsingar um það, að árið 1955, frá 2/11, þ.e.a.s. síðustu tvo mánuði ársins, voru afgreidd A- og B-lán frá veðdeildinni sem hér segir: A-lán 20 millj. 220 þús. kr., B-lán 7 millj. 214 þús. kr., eða þessa tvo mánuði 27 millj. 434 þús. kr. Síðan er árið 1956, og vil ég skipta því í tvennt, annars vegar til miðs árs, þegar kosningar fara fram og ný stjórn tekur við í júlímánuði, og hins vegar síðari hluta ársins. Fyrri hluta ársins 1956 eða til 30/6 eru afgreidd A-lán 29 millj. 545 þús. kr. og B-lán 12 millj. 520 þús. kr., eða á þessum sex fyrstu mánuðum ársins 1956, meðan fyrrverandi ríkisstj. sat enn að völdum, 42 millj. og 65 þús. kr. Síðari hluta ársins, eftir að núverandi hæstv. ríkisstj. tók við völdum, eru hins vegar afgreidd A-lán 14 millj. 485 þús., B-lán 7 millj. 105 þús., eða samtals 21 millj. 590 þús. kr. En samtals verður þetta á árinu 1956 um 63.6 millj. kr., sem afgreidd eru af þessum lánum. Þá er árið 1957, og það er árið allt í heild. Á því ári eru afgr. A-lán 26 millj. 647 þús. kr. og B-lán 19 millj. 23 þús. kr., eða samtals 45 millj. 670 þús. kr. Frá því að veðlánakerfið tók þess vegna til starfa eða byrjaði að afgreiða A- og B-lán þess í nóvembermánuði 1955 og til ársloka 1957 hafa samtals verið afgr. lán að upphæð 136 millj. 759 þús. kr.

Þegar á þessar tölur er litið, þá sést, að því fer svo fjarri, að nokkur aukning hafi orðið í lánveitingunum af A- og B-lánunum, eftir að hæstv. núv. ríkisstj. tók við, að þau eru miklu og verulega miklu minni, og legg ég áherzlu á þetta, vegna þess að þeir, sem nú hafa forustu þessara mála, voru ósparir á að gagnrýna fyrrv. ríkisstj. fyrir það, hversu skammt hún gengi í þeim málum að útvega lánsfé til íbúðabygginga. En niðurstöðurnar af þessum tölum sýna, að síðustu, átta mánuðina, sem fyrrv. ríkisstj. sat að völdum, þ.e.a.s. þá mánuði, sem afgreiðsla lána átti sér stað, frá því í byrjun nóvember 1955 og fram á mitt ár 1956, þá eru afgreidd lán úr veðlánakerfinu, A- og B-lán, á átta mánuðum að upphæð 69 millj. 499 þús. kr., en það samsvarar á hvern mánuð að meðaltali 8.7 millj. kr.

Ef hins vegar er tekinn seinni hluti ársins 1956 og allt árið 1957, sem er það tímabil, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur setið að völdum, hún tók að vísu við völdum í lok júlímánaðar 1956, — eða þetta 18 mánaða tímabil, þá hafa á þeim átján mánuðum alls verið afgr. A- og B-lán að upphæð 67 millj. 260 þús. kr., eða að meðaltali á mánuð 3.7 millj. kr., — 3.7 millj. kr. að meðaltali á mánuði þetta síðara tímabil á móti 8.7 millj. kr. að meðaltali á mánuði hið fyrra tímabil.

Í þessu sambandi er auðvitað eins að gæta líka, að núv. hæstv. ríkisstj. byggir á því kerfi, sem búið var að koma á fót, og stendur því að langmestu leyti á þeim grundvelli, sem búið var að koma upp í þessum málum, áður en hún tók við. Mönnum var ljóst, þegar húsnæðismálalöggjöfin gekk í gildi 1955, að það þurfti auðvitað að halda áfram að vinna að endurbótum á henni, og fyrrv. hæstv. ríkisstj. sýndi það líka í verki með auknum framlögum til þessara mála, eins og ég hef áður gert grein fyrir hér, þegar ákveðið var að verja tilteknum upphæðum, eða 13 millj. kr. af tekjuafgangi eða greiðsluafgangi ríkissjóðs, fyrsta ár þessarar löggjafar einmitt til íbúðalána. Það hvíldi þess vegna mjög þung skylda á herðum þeirra, sem við tóku, að halda áfram að bæta við húsnæðismálalöggjöfina og einkum og sér í lagi að vinna að því að útvega nægjanlega mikið lánsfé til þess að ljúka þeim byggingum, sem í smíðum voru, og ekki sízt hvíldi sú skylda á herðum þeirra manna, sem mest höfðu fjargviðrazt yfir því, hversu slælega fyrrv. hæstv. ríkisstj. hefði gengið fram í þessu máli. En þær tölur, sem ég nú hef sýnt, sanna, að það hefur dregið úr þessum lánveitingum og það stórlega í tíð núverandi hæstv. ríkisstj.

Til viðbótar við það, sem ég nú hef sagt, vil ég svo gefa þær upplýsingar, að frá áramótum nú, 1957 og 1958, hafa verið afgr. A-lán að upphæð 15 millj. 404 þús. kr. og B-lán 18 millj. 665 þús. kr., eða um 34 millj. kr. á þessum þremur mánuðum þessa árs, og mun það vera ein mesta afgreiðsla lána, sem átt hefur sér stað á jafnskömmu tímabili. En það staðfestir það, sem ég sagði hér í upphafi og var að inna eftir: Hvað var úthlutað miklu einmitt í kosningamánuðinum fyrir bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar og afgr. af þessum lánum? Þá var uppi fótur og fit, og þá voru veðsettar væntanlegar tekjur byggingarsjóðs ríkisins, sem inn áttu að koma smám saman á árinu, bæði frá skyldusparnaði og af innheimtum stóreignaskatti, — þá voru veðsettar þessar tekjur til þess að geta úthlutað þessu í sambandi við kosningarnar. En þó að það sé búið að úthluta 34 millj. kr. fyrstu 3 mánuði þessa árs, þá er alveg óséð, hvað úthlutunin verður mikil, það sem eftir er af árinu, og það einkum og sér í lagi vegna þess, að það eru hvorki meira né minna en 25 millj. kr., sem veðsettar voru af væntanlegum tekjum byggingarsjóðs ríkisins.

Mér þótti rétt, áður en umr. lyki um þetta mál, að þessar upplýsingar kæmu fram, og auðvitað á ekki að þurfa að deila um hluti eins og þessa, því að um þá liggja á hverjum tíma fyrir nákvæmar skýrslur. Aðalatriðið er, að menn beri saman það, sem sambærilegt er, og hafi óyggjandi skýrslur um það frá þeim aðilum, sem fjalla um þessi mál, og fyrir því hef ég nú gert grein varðandi afgreiðslu A- og B-lána, frá því að húsnæðismálalöggjöfin var sett 1955.