25.10.1957
Neðri deild: 9. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (107)
2. mál, bifreiðaskattur o. fl.
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Það frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 2, er flutt af hæstv, ríkisstj. Með því er lagt til, að innflutningsgjald af benzíni og bifreiðaskattur og innflutningsgjald af hjólbörðum og gúmmíslöngum á bifreiðar verði það sama á næsta ári, 1958, eins og nú er, á því ári, sem nú er að líða, samkv. ákvæðum laga nr. 95 frá 1956.
Fjhn. hefur athugað frv., borið það saman við gildandi lög og mælir með því, að það verði samþykkt.
Þess skal getið, eins og frá er skýrt í nál., að einn nm. var fjarstaddur, þegar málið var afgreitt í nefndinni.