28.03.1958
Efri deild: 75. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1079)

136. mál, húsnæðismálastofnun

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Í þessu frv. felast nokkrar smábreytingar á lögum um húsnæðismálastofnun ríkisins o.fl.

Í 1. gr. frv. er svo ákveðið, að af B-flokki lána skuli vextir og afborganir vera með vísitölur kjörum. Bankamenn hafa nú upplýst, að það sé óþægilegt eða litt framkvæmanlegt að reikna vextina sjálfa út með vísitölukjörum. Þess vegna felst sú ein breyting í 1. gr., að B-flokkur, allt að 50 millj. kr. á ári, verði með vísitölukjörum, þannig að greiðslur afborgana séu bundnar vísitölu framfærslukostnaðar. Með þessu verður alveg skýrt, að það er ekki ætlazt til þess, að vextirnir séu sjálfir með vísitölukjörum, og er eingöngu horfið frá því vegna erfiðleika í framkvæmd.

Það var ætlun allra, sem stóðu að setningu löggjafarinnar um byggingarsjóð og húsnæðismálastofnun ríkisins á s.l. ári, að skyldusparnaðartímabil ungmenna næði yfir 10 ár, og var það orðað þannig, að það væri frá 16 til 25 ára, og þá lagður sá skilningur í þetta orðalag, eins og þegar við segjum frá 10.–15. einhvers mánaðar, að sé ekki annað fram tekið, þá sé reiknað með, að þetta sé að báðum dögum meðtöldum, þarna í þessu tilfelli að báðum nefndu árunum, 16 og 25, meðtöldum. 2. gr. er til þess að taka af vafa um þetta og gera skýrt, að skyldusparnaðartímabilið nái yfir 10 ár, og yrði þá orðalagið hafið yfir öll tvímæli á þennan veg. Skyldusparnaður hefst við næstu mánaðamót, eftir að hlutaðeigandi verður 16 ára, og lýkur við næstu mánaðamót, eftir að hann verður 26 ára.

Í 3. gr. frv., eins og það var borið fram, var eingöngu um það að ræða að gera skýrt, að útlendingar, sem hér hafa landvistar- og atvinnuleyfi um tiltekinn tíma, dveljast hér um stundarsakir, skuli að vísu greiða 6% af launum sínum og taka þannig fullan þátt í skyldusparnaði eins og allir aðrir, en fá þetta fé endurgreitt, þegar þeir hverfi af landi brott. Um þetta ákvæði er ekkert í gildandi löggjöf, en þykir sanngjarnt, að útlendingum, sem hverfa héðan af landi brott að loknum þeim tíma, sem þeir hafa hér atvinnuleyfi, verði endurgreiddur sá skyldusparnaður, sem tekinn hefur verið af launum þeirra.

Í 4. gr. þessa frv. er eingöngu um það að ræða að setja skýr ákvæði um viðurlög við því, ef vanrækt eru sparimerkjakaup, og er nýmælið þetta: „Ákveða má í reglugerð sérstakt gjald, er skattyfirvald ákveður, á hendur þeim, sem vanrækir sparimerkjakaup, er nema má allt að þrefaldri þeirri upphæð, sem vanrækt hefur verið að kaupa sparimerki fyrir.“ Þetta er eingöngu til þess að veita aðhald um það, að ekki verði vanrækt sparimerkjakaup, og viðurlögin þarna sett allt að þrefaldri þeirri upphæð, sem vanrækt hefur verið að kaupa.

Í þessari sömu gr. er einnig tekið skýrt fram, að allur kostnaður við sparimerki, sparimerkjabækur og framkvæmd skyldusparnaðarins skuli greiðast úr ríkissjóði.

Með orlofsmerkin hefur það verið haft þannig, að samið hefur verið við póststjórnina um að sjá um prentun þeirra og afgreiðslu orlofsbókanna, og það þótti sjálfsagt að hafa þetta á einum og sama stað, og hefur verið gengið frá því á þann veg. En byggingarsjóður sjálfur hefur ekkert fé til umráða, og að því er snertir orlofsmerkin, þá er kostnaður við þau greiddur af ríkissjóði, og hefur því verið talið sjálfsagt, að þessi framkvæmd væri höfð í einu lagi og á hendi sama aðila og að ríkissjóður borgaði í báðum tilfellum kostnaðinn, bæði af orlofsmerkjunum og sparimerkjunum.

Í 5. gr. er eingöngu ákvæði um sektir, viðurlög vegna brota á lögunum.

Eins og menn sjá af þessu, er hér ekki um neitt stórmál að ræða. Það eru tekin af tvímæli um ein tvö eða þrjú atriði og sett skýrari ákvæði um önnur tvö smávægileg atriði, þ. á m. endurgreiðslu sparifjár til útlendinga, sem dveljast hér um skamman tíma.

Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. fari til hv. heilbr.- og félmn., þegar þessari umr. lýkur.