02.06.1958
Efri deild: 115. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1384 í B-deild Alþingistíðinda. (1090)
136. mál, húsnæðismálastofnun
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram litla brtt. við frv. Brtt. er á þskj. 599, það er breyting á 4. málsgr. 1. gr. laganna. Í þessari brtt. er lagt til, að framkvæmdastjóri húsnæðismálastofnunar annist daglegan rekstur stofnunarinnar og ráði starfsmenn hennar með samþykki ráðh. Með þessari breytingu er fram á það eitt farið, sem mun þykja sjálfsagt um allar stofnanir. Það vita allir, að það er ekki hollt, að það séu fimm skipstjórar á einu skipi, og það er heldur ekki hollt, að það séu fimm jafnréttháir ráðamenn í einni stofnun, enda mun það vera óvenjulegt. Ætlunin var með þessari brtt. að ráða bót á þessu og gera stofnunina starfhæfari. Þar sem ég tel, að samkomulag hafi orðið um að leysa þetta mál á annan hátt, þá lýsi ég því yfir, að ég tek hér með þessa brtt. aftur.