07.02.1958
Efri deild: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)
94. mál, húsnæði fyrir félagsstarfsemi
Jón Kjartansson:
Ég vil benda hv. þingdeild á ummæli ráðh. Hann segir: Það er ekkert í lögum, sem bannar að rífa íbúðarhús og byggja upp að nýju skrifstofubyggingar eða hvað sem þeir vilja. — En hitt er bannað í l., segir ráðh., að breyta íbúðum í skrifstofur. Það má gera það mikla, stóra, en ekki það minna. Sjá ekki allir, hve mikil fjarstæða þetta er, ef fleiri gerðu þetta, við skulum segja, að það færu allir, sem eiga hús við Laugaveginn, og rifu niður og byggðu upp skrifstofubyggingar? Þetta er leyfilegt, segir hæstv. ráðh., það bara má ekki breyta íbúðum í skrifstofur. Það má rífa hús niður og byggja upp skrifstofur. Ég vil benda hv. deildarmönnum á, út í hvaða reginvitleysu hæstv. ráðh. er kominn með þessum rökfærslum.