11.04.1958
Neðri deild: 76. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)

146. mál, veiting ríkisborgararéttar

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Til Alþ. hafa borizt umsóknir um ríkisborgararétt frá allmörgum mönnum, síðan frv. var lagt fram, Nú milli umr. hefur allshn. athugað þessar umsóknir, og hefur þar verið hafður sami háttur á og áður hafði verið hafður, að höfð hefur verið samvinna um þessa athugun við allshn, Ed. Eftir að þessi athugun hefur farið fram, hefur það orðið niðurstaðan að leggja fram brtt. á þskj. 370 um, að inn í frv. verði bætt nöfnum 10 manna, og liggur sú brtt. nú einnig fyrir.