21.04.1958
Neðri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1241)

146. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Breytingin, sem Ed. hefur gert á frv., er sú, að bætt hefur verið þremur umsækjendum í frv. Ég og hv. þm. N–Þ. höfum haft samvinnu við nefnd Ed. um þetta atriði og gengið úr skugga um, að þessir þrír umsækjendur, sem bætt hefur verið inn á frv., fullnægja þeim reglum, sem þingið hefur sett sér fyrir veitingu ríkisborgararéttar. Við viljum því mæla með, að frv., eins og það nú liggur fyrir, verði samþ. óbreytt.