18.11.1957
Efri deild: 23. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)
18. mál, umferðarlög
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Hv. frsm. allshn. hefur gert grein fyrir því, hvers vegna n. féllst ekki á að breyta þessari skýrgreiningu um dráttarvélar. Mér skilst, að rökin séu þau, að þeir liti svo á, að þær dráttarvélar, sem kallaðar eru og fara yfir þennan aksturshraða, 30 km á klst., eigi að fara í flokk með bifreiðum, og þær geti farið í þann flokk vegna þess, að þar segir: Bifreið er vélknúið ökutæki, sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga, svo og til annarra nota, — af því að þessi orð standa þar í skilgreiningunni, „svo og til annarra nota“, þá geti dráttarvélar fallið þarna undir. Ekki vil ég deila við dómarann um það, að hægt sé að koma þeim þangað, þó að þær falli alls ekki undir aðalákvæði greinarinnar, að vera ætlaðar til mannflutninga og fólksflutninga, því að til þess eru þær ekki ætlaðar. Það virðist þess vegna liggja alveg ljóst fyrir núna, að komi til ágreinings út af þessu síðar, þá muni þessar vélar, ef það sannast, að þær hafi meiri aksturshraða en þetta, verða kallaðar bifreiðar, tollafgreiddar eftir því og árleg gjöld af þeim greidd eftir því. Þessarar skoðunar mun n. vera, — ég dreg það af þessum svörum frsm., — og eftir þessum skilningi mundi þá að sjálfsögðu verða farið hjá bifreiðaeftirliti og ráðuneyti, þar sem ætti að úrskurða þennan ágreining, enda er fyrri úrskurður í svona ágreiningi á þessa leið. Það er alveg rétt, að það er í samræmi við þessa skoðun hv. frsm., þó að þetta frv. sé nú ekki orðið að lögum enn þá. M.ö.o.: það liggur því alveg ljóst fyrir, að ef við samþykkjum þetta ákvæði í frv. eins og það er nú og einhvern bónda langar til að fá inn í landið, nýtízku dráttarvél, af því að hún er betri en þær, sem hingað til hafa verið fluttar inn, eða hún er fjölhæfari eða hún er ódýrari í rekstri eða eitthvað þess háttar, þá verður hún tolluð undir bifreið, svo framarlega sem hún getur ekið hraðar en 30 km á klukkustund. Og þar með er um annaðhvort að gera, kaupa vélina nokkrum tugum þúsunda króna hærra verði eða láta vera að kaupa hana. Það kostar ekki minna, en þetta.
En nú vil ég spyrja hv. frsm.: Hvað vinnst með þessu ákvæði? Ég spurði um það áðan, en hef ekki fengið svör við því. Er verið að afstýra einhverri hættu með því að setja þetta 30 km takmark þarna inn, eða til hvers er það? Mér er það ekki ljóst.
Þá ræddi hann um brtt. mína um miskunnsemina við ökumennina, sem aka undir áhrifum áfengis. Hann taldi þetta ekki vera aldeilis miskunnsemi, því að þetta kæmi aldrei til greina, nema þegar málsbætur væru mjög miklar, enda þannig orðað í frv., sem rétt er, að það þurfi að vera miklar málsbætur til þess, að maðurinn geti sloppið við réttindamissi, þó að hann hafi ekið undir áhrifum áfengis. Hann segist ekki vita til eða nefndin hafi ekki vissu um, að þetta hafi eiginlega nokkru sinni komið fyrir, að slíkar málsbætur væru fyrir hendi. Hann er kunnugri þessum málum en ég. En ef það skyldi nú aldrei hafa komið fyrir, til hvers er þá verið að hafa þetta í frv.? Hverjum er verið að þjóna með því?
Það er alveg rétt hjá frsm., að þetta ákvæði er í gildandi lögum svona, þessi heimild dómara er til að fella niður réttindasviptingu, ef miklar málsbætur eru fyrir hendi. En hann segist ekki vita til, að þetta hafi komið fyrir, og það muni vera sárafá dæmi til þess. En samt þarf endilega að hafa þetta. Hann nefndi dæmi, það gæti komið fyrir, að svona málsbætur lægju fyrir, ef maður væri að bjarga mannslífi, hefði gripið til bifreiðar og ekið henni, en verið undir áhrifum áfengis. En ef þessi maður hefði nú verið með meira en 1.30%o af áfengi í blóðinu, þá var það ekki eins mánaðar svipting, sem hann hlaut að fá, heldur heils árs. Skv. minni till. gæti það komið fyrir, að maður yrði dæmdur til þess að missa ökuréttindi í einn mánuð, við skulum segja við að bjarga mannslífi, en ef hann hefði verið með þetta hærra áfengismagn í blóðinu, þá hefði hann orðið dæmdur til eins árs réttindamissis. Ég get ómögulega skilið, að það sé ósanngjarnt hjá mér að álita, að hann eigi undir öllum kringumstæðum að missa ökuleyfið eitthvað, ef hann ekur undir áhrifum áfengis, ekki sízt þegar slík dæmi koma hér um bil aldrei fyrir, að slíkar málsbætur séu fyrir hendi, þegar hinn aðilinn verður að þola ársmissi þessara réttinda. Og ef þetta er ekki miskunnsemi eða eitthvað annað, þá skil ég ekki, hvað það er.