18.11.1957
Efri deild: 23. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)
18. mál, umferðarlög
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins taka undir það, að eins og hefur fram komið hér hjá þm. Barð., þá hefur þessi tegund bíla eða dráttarvéla, þessi tegund af vélum, sem byggð er bæði sem bíll og dráttarvél og getur verið hvort heldur sem vera skal, þegar verið úrskurðuð af ríkisstj. heyrandi undir bíl. Hvaða þýðingu hefur það að hafa hana þar, sem hún á heima eftir byggingu sinni og gerð sinni, ekki bara hvernig hún keyrir, heldur hvernig gírar eru og hvernig aðrir hlutir í henni eru, samanborið við bíla og dráttarvélar almennt? Það hefur óskaplega litla þýðingu fyrir okkur, hvorum megin hún er sett. S.l. ár eru fluttar inn á þriðja hundrað dráttarvélar. Af þessari koma þrjár. Og þær koma af því, að það fæst ekki nógur innflutningur fyrir aðrar vélar, sem þessir menn annars hefðu keypt allflestir, hefðu þeir átt þess kost. Sannleikurinn er sá, að þessi vél er það dýrari, að bóndi getur keypt sér venjulega dráttarvél og jeppa fyrir verð hennar og þó haft svolítinn afgang. En þegar er verið að skipta gjaldeyri á milli óteljandi innflytjenda, þá hefur það gjarnan viljað verða svo, að það er verið að píra sinni ögninni í hvern og skera alls staðar af, og þess vegna var það svo, að s.l. ár var sá, sem flutti þessar vélar inn, látinn hafa ofur litla vellu, og þess vegna gátu menn, sem ekki komust að annars staðar, fengið þessar vélar. Annars eru þær sterkar og góðar, en dýrar, og hægt að nota þær bæði sem bíl og dráttarvél. Ég held, að það sé þess vegna ekkert áhorfsmál, að við eigum að standa með þeim kunnáttumönnum, sem hafa verið til aðstoðar ríkisstj., þegar þeir eftir að hafa skoðað gerð þeirra og byggingu dæmdu þær sem bíla, en ekki sem dráttarvélar, Og þýðingin, sem það hefur fyrir heildina, er óskaplega lítil, því að við skulum vona, að það greiðist eitthvað til um gjaldeyri, svo að hann verði frjálsari, og þá hverfa þessar vélar svo til alveg af markaðnum. Það eru kannske til í landinu núna 10–14 alls, sem hafa komið inn öll þau ár, sem þær hafa verið á ferðinni, og eru notaðar núna í sérstökum aðstæðum, þær af þeim, sem eru mikið notaðar. Þar að auki eru þær eyðslufrekar, sérstaklega ef þær eru notaðar sem bíll, aðallega vegna þess, hvernig þær eru byggðar, þannig að þær eru siður en svo hentugar í notkun nema í sérstökum tilfellum. Þannig er það líka sums staðar, t.d. þar, sem þm. Barð. er kunnugastur, þar sem vélin er sérstaklega heppileg til að fara í miklum snjó, þegar flytja þarf mjólk yfir að Skeri frá Rauðasandi. Svoleiðis tilfelli eru til. En það eru aðrar dráttarvélar eins heppilegar til þess að gera það og miklu ódýrari dráttarvélar, sem eru heppilegar til að gera það og gera það eins vel og þessi, t.d. Dísil-Ferguson á beltum o.fl., o.fl., svo að það er ekki þess vegna nauðsynlegt að hafa þær í dráttarvélaflokki.
Ég held, að það sé á misskilningi byggt hjá þm. Barð., að það geti ekki verið til undantekningar, sem rétt sé að taka milt á. Við skulum hugsa okkur í einhverjum afskekktum hreppi í Barðastrandarsýslunni, t.d. einhvers staðar úti á Múlanesi, að það hagaði nú allt í einu svo til, að kona væri í barnsnauð og lægi lífið á að sækja lækni. Ef maðurinn, sem hefði bíl, sem hægt væri að ná í, hefði nú verið með kunningja sínum og væri búinn að drekka t.d. tvö staup af víni, þá væri hann sem kallað væri algáður og fullfær til allra hluta, en vafasamt, hvort hann væri kominn upp á það mark, sem væri nú undir blóðrannsókn eða ekki. Á hann að fara og sækja yfirsetukonuna? Eða á hann að láta segja: „Ja, ég get ekki komið, ég er undir áhrifum víns. Ég hef smakkað vín. Og þó að ég treysti mér til að keyra, þá hlýtur maður að missa ökuleyfið fyrir það að fara og sækja yfirsetukonuna.“ — Svona dæmi hefur aldrei komið fyrir. En ég geri ráð fyrir, ef ég væri dómari og ætti að dæma þennan mann á eftir, að ég mundi taka vægt á því og ekki taka af honum ökuleyfið fyrir það, ef þá nokkur yrði til að kæra hann fyrir að sækja lækninn. Ég er ekki viss um, að það væri nokkur, sem kærði í því tilfelli. Ég er ekki viss um það. Svoleiðis geta verið til mildandi ástæður, sem rétt er að taka tillit til og lofa að standa áfram í lögunum, eins og hefur verið gert, þegar þar að auki er upplýst, að þær hafa enn þá ekki komið fyrir og ekki verið notaðar öll þau ár, sem lögin hafa staðið. Ég held þess vegna, að þetta, sem við erum með, nefndin, hvað þetta snertir, eigi að samþykkjast, en ekki till. frá þm. Barð.