21.11.1957
Efri deild: 24. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)

18. mál, umferðarlög

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég flyt ásamt hv. þm. Vestm. brtt. á þskj. 64 við frv. Ég tók þær aftur við 2. umr., en þær liggja nú fyrir hér við 3. umr. Við höfum beðið eftir nokkrum upplýsingum varðandi það atriði frv., sem við flytjum brtt. við. Við höfum að vísu fengið þær að nokkru, en þó vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann fresti frekari umræðu núna, svo að okkur gefist tóm til þess að athuga þessar upplýsingar nánar, enda sýnist ekki málinu vera stefnt í neina hættu, það er nægur tími fyrir það að komast í gegnum þingið, og þetta virðist heldur ekki hindra nein önnur mál í þessari hv. deild, svo að ég vænti þess, að hæstv. forseti verði við þessum tilmælum.