24.02.1958
Neðri deild: 55. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1478 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)
18. mál, umferðarlög
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Hv. frsm. skýrði frá því nú, eins og hann raunar gerði einnig í fyrri ræðu sinni, að dómstólar hér muni ekki hafa dæmt menn seka um brot á ákvæðum laga viðkomandi akstri undir áhrifum áfengis, nema vínandamagn í blóði þeirra væri 0.8%0 eða þar yfir. En jafnframt er frá því skýrt, að t.d. sakadómari hér og aðrir, sem um þetta mál hafa fjallað, telja, að hæfilegt væri nú að setja markið 0.6%0.
Skyldi þetta vera fyrir það, að niðurstöður vísindarannsókna hafi tekið einhverjum breytingum nú nýlega, eða af einhverjum öðrum ástæðum? Ég veit það ekki. En hitt get ég vel fallizt á með hv. frsm., að það sé rétt að setja glögg ákvæði um það í lög, við hvað skuli miða, Og eins og ég gat um áður, þá tel ég, að það sé hægt að gera það, þó að fallizt verði á mína till. um að hverfa frá þessum dilkadrætti á ölvuðum ökumönnum, sem frv, nú gerir ráð fyrir.
Þá er það viðkomandi till, minni um endurkröfuna frá vátryggingarfélögum á hendur þeim, sem valda tjóni.
Hv. frsm, segir, að menn úr umferðarmálanefnd, sem rætt hafi verið við, hafi heldur lagzt gegn þessu. En ég hef ástæðu til að ætla, að þeir hafi þá ekki verið búnir að gera sér ljóst, hvað felst í minni till., því að ég fæ ekki séð, að það sé hægt að tala um sérstök óþægindi við innheimtu á þessu, eins og mín till. er. Það a.m.k. snertir þá eingöngu vátryggingarfélögin, en ekki aðra.
Hv. frsm. segir, að vátryggingarfélögin hafi þegar endurkröfurétt skv. frv. En ég vil benda á það, að hann er mjög takmarkaður. Í 73. gr. segir, að félag, sem hefur orðið að greiða bætur, eigi endurkröfurétt á hendur hverjum þeim, sem valdið hefur slysi eða tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, og síðan á sérstök nefnd skv. 76. gr. að meta, hvort þessar ástæður séu fyrir hendi, þannig að það eigi að nota endurkröfuréttinn. En við vitum, að hér verða ákaflega mörg tjón vegna bifreiðaárekstra, þó að ekki sé hægt að halda því fram, að það sé af stórkostlegu gáleysi og því síður af ásetningi. En þeim árekstrum mundi vafalaust fækka, ef menn vissu, að þeir mundu verða krafðir um einhverjar fjárupphæðir, þegar þeir valda tjóni, jafnvel þótt ekki sé hægt að kalla, að það sé fyrir stórkostlegt gáleysi.
Ég fagna því, ef hv. n. vill taka þessa till. mína til nánari athugunar, og gefist ekki tími til þess fyrir n. að athuga þessa 3. brtt. mína, áður en atkvgr. fer fram nú við 2. umr., þá mun ég taka þá till. aftur til 3. umr. í von um, að hv. n. athugaði það mál sérstaklega milli umræðna.