10.03.1958
Neðri deild: 63. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1483 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
18. mál, umferðarlög
Frsm. (Pétur Pétursson):
Herra forseti. Allshn. hefur rætt um þær till., sem hafa komið fram, bæði síðan nál. var skilað og áður höfðu komið fram. Hún hefur ekki orðið sammála um að mæla með neinni af þeim brtt. sérstaklega.
Ég vil fara aðeins örfáum orðum um till. hv. 6. landsk. þm. á þskj. 283 varðandi það atriði að binda aldur unglinga, sem aka dráttarvélum, við 14 ár. Það er auðvitað augljóst, að hér rekst á öryggi þessara unglinga og hagsmunir atvinnuvegarins, sem vinnan er unnin við. Það er sjálfsagt að viðurkenna þá þörf, sem er á því að setja eitthvert hámark. En mér sýnist bara raunin vera sú, að það sé býsna örðugt atriði að setja lámarksaldur á þetta. Staðreyndin er sú, að unglingar yngri en 14 ára aka dráttarvélum í sveitum, og ég er hálfhræddur um, að þó að þetta væri bundið í lögum, þá mundi reynslan verða sú, að unglingar haldi áfram að aka dráttarvélum af þeirri einföldu ástæðu, að þetta er víða mjög mikið atriði fyrir bændur, og ég veit, að hv. 6. landsk. viðurkennir það atriði út af fyrir sig. Hins vegar kemur svo öryggisatriðið sjálft, sem hann setti hér mjög greinilega fram og er auðvitað alveg hárrétt. Ég býst við, að örðugt kunni að vera að láta þessi tvö veigamiklu atriði falla saman, þannig að tekið sé tillit til hvors tveggja. Ég hef aðeins látið mér detta í hug, hvort hægt væri að setja t.d. 12 ára mark í staðinn fyrir 14 ára. Það getur vel verið, að bændur mundu sætta sig við það, eða a.m.k. miklu fremur, en 14 ára markið. Það fer ekki milli mála, og það er auðvitað mál, að 12–13 ára unglingar geta verið jafngóðir ökumenn á dráttarvélum eins og fullorðnir menn út af fyrir sig. Slys geta alltaf komið fyrir, hvort sem unglingur eða fullorðinn á í hlut. Mér finnst hins vegar allmikið atriði í þessu, hvort á að fara að setja þetta þannig í lögin, að það sé í raun og veru fyrir fram vitað, að þetta verður brotið meira og minna vegna þeirrar nauðsynjar, sem að kallar í sveitunum. Mér finnst eðlilegt, að það væri reynt að athuga þetta mál ofur lítið betur. Ég veit, að umferðarmálanefndin ræddi þetta mikið, enda í sínu upphaflega frv., eins og getið var um í framsöguræðu fyrir till., setti hún inn 15 ára markið. En hins vegar veit ég, að umferðarmálanefndin hefur gert sér ljósa þá erfiðleika, sem eru á því að setja svona mark fast.
Þá er hér önnur till., sem hefur komið fram, eftir að n. skilaði áliti, á þskj. 269, um lágmarkshraða. Ég vildi aðeins — með leyfi hæstv. forseta — lesa upp það, sem umferðarmálanefndin segir um þetta atriði:
„Nefndin fellst á þau sjónarmið, að of hægur akstur geti verið vítaverður, enda refsivert samkvæmt 1. málsgr. 49. gr., en þar segir: „Ökuhraða skal ávallt miða við gerð og ástand ökutækis, staðhætti, færð, veður og umferð og hagað þannig, að aksturinn valdi ekki hættu eða óþægindum fyrir aðra vegfarendur né geri þeim óþarfatálmanir.“ Þá telur nefndin það rétt, að oft sé erfitt að meta, hvenær akstur geti valdið hættu eða óþægindum fyrir aðra vegfarendur eða gert þeim óþarfatálmanir. Nefndin telur, að þetta mat sé bezt komið í höndum einstaklinga og dómstóla, ef þörf krefur, eins og ákveðið er í 49. gr. Ef þróun umferðarmála leiðir til þess, að þörf verði á ákveðnari reglum á þessu sviði, telur n., að setja megi slíkar reglur samkvæmt síðustu málsgr. 50 gr.“
Umferðarmálanefndin hefur sem sé fjallað um þetta atriði líka og telur ekki eðlilegt, að það sé sett í frv. Að öðru leyti held ég, að ég hafi ekki fleiri orð um frv. á þessu stigi.