10.03.1958
Neðri deild: 63. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1492 í B-deild Alþingistíðinda. (1298)

18. mál, umferðarlög

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að taka undir þá till., sem hv. 6. landsk. þm. (GJóh) hefur flutt á þskj. 283 og hann gerði hér mjög ýtarlega grein fyrir áðan og færði mörg rök, bæði sín eigin og þeirra manna, sem kunnugir eru þessum málum, fyrir að ætti að samþykkja. Það er viðvíkjandi því að tryggja, að ekki séu látnir vinna þeir unglingar, sem eru undir 14 ára, við að aka dráttarvél við jarðyrkju- og heyskaparstörf.

Það hafa tveir hv. þm., sem hér hafa talað, fundið ýmislegt að þessari till., og ég held, að það sé alveg nauðsynlegt fyrir okkur að horfast í augu við, hvers kyns þessar mótbárur eru, því að ég álít, að við getum ekki tekið þær til greina. Hv. 10. landsk, (PP), frsm. allshn., sagði hér áðan í sinni ræðu, að það væri ekki vist, að menn vildu sætta sig við þetta, og hann átti sérstaklega við bændur. Spurningin í svona máli er ekki, hvað menn vilja sætta sig við, heldur hvað er rétt að gera og hvað þarf að kenna mönnum. Lög eru sett í landinu með það fyrir augum að reyna að vinna að ákveðnum endurbótum eða réttindum, og það eru oft og tíðum hinir og þessir, sem máske vilja ekki sætta sig við það, en skilja þó seinna meir, að það hefði máske verið þeirra eigin hagur. Það er vitað, að barna- og unglingavinna er meiri á okkar landi, en í flestum öðrum löndum, og yfirleitt er unnið meira og erfiðar í okkar landi, en í flestum öðrum löndum. En það þýðir ekki, að við verðum ekki að reyna þó að setja þarna viss takmörk. Það er ekki verið um það að ræða í þessum efnum að setja takmörk við t.d., hvað unglingar mundu vinna almennt, hvorki við landbúnað né fiskveiðar, og við vitum, að það er ekkert smáræði. Það, sem þarna er um að ræða, er hins vegar aðeins að setja takmark við eina ákveðna tegund, það er sem sé meðferð þessara sérstöku stóru verkfæra. Það er ekki verið að banna mönnum að vinna með hrífu og öðrum slíkum verkfærum, það er aðeins verið að taka fram um dráttarvélarnar. Og það eru nefnd dæmin um leið, hvernig menn hafa farið sér að voða, hvernig menn hafa grandað lífi sínu með þessu. Og það eru líka til dæmi um, að unglingar, sem hafa byrjað á dráttarvélunum snemma, hafa að meira eða minna leyti eyðilagt sínar taugar á því út af hristingnum, þannig að þarna er um mál að ræða, sem snertir beinlínis þroska unglinganna og að varðveita þeirra heilsu og firra þá tjóni, og það er atriði, sem er ekki síður mikilvægt fyrir sjálfan sveitabúskapinn, heldur en þjóðina almennt. Ég held þess vegna, að í svona máli þurfi Alþingi alveg að segja skýrt og skorinort, hvað þarna beri að gera, og eins og líka hv. 1. þm. Reykv. (BBen) undirstrikaði viðvíkjandi þeim till., sem umferðarnefndin hafði um þetta flutt, það er rétt að taka mikið tillit til álits slíkra sérfræðinga, þegar um svona mál er að ræða.

Ég held það sé misskilningur, að þetta sé slíkt hagsmunamál fyrir bændur að þess vegna ætti ekki að vera að þessu. Ég held það sé alveg misskilningur. Ég held, að íslenzkur landbúnaður komist af án vinnu barna á þessum tækjum. Og ég held þess vegna, að það sé alveg nauðsynlegt, að við gerum okkur fyrst og fremst grein fyrir, hvað rétt er að gera í þessum málum. Það er verkefni okkar með þeirri löggjöf, sem almennt er sett viðvíkjandi börnum og unglingum, að vernda lítilmagnann, þann, sem ekki hefur sjálfur aðstöðu til þess að heyja neina baráttu í þessum efnum eða jafnvel ekki veit fótum sínum forráð. Við vitum ósköp vel, að í sveitinni er það svo, að einmitt unglingunum, strákunum, 9, 10, 11 og 12 ára, þeim þykir ekkert eins gaman og að setjast upp á dráttarvéi og fá að atast sem allra mest á henni. Þetta er sport fyrir þá, bæði drengi og stúlkur jafnvel. Og maður skilur freistinguna hjá bóndanum, sem vantar jafnvel vinnuafl, eins fámennt og er víða í sveitunum, þegar unglinginn dauðlangar í þetta og þegar bóndinn hefur þörf fyrir það. Það er einmitt vegna þess, að svona horfir við, að það þarf að gripa þarna inn í með löggjöf til þess að segja við báða aðila: Þetta er ekki hollt, og þetta er beinlínis hættulegt, — Og það er Alþingis að gera það. Það verða ekki aðrir aðilar, sem gera það í þessu efni. Og þeir sérfræðingar, sem um þetta hafa fjallað, eru á þeirri skoðun, að þetta beri að gera. Hins vegar er þetta stöðvað, þegar það hér kemur inn á Alþingi.

Hv. þm. Borgf. segir hér áðan, að það sé ekki þörf á þessu. Það er ekki röksemd, sem er rétt í þessum efnum. Það er þörf á því að banna þetta. Það sannar slysahættan, og það sanna afleiðingarnar af þessu. Það er þess vegna ekki hægt að neita brtt. á þskj. 283 frá því sjónarmiði, að það sé ekki þörf á að gera þetta.

Þá er hin röksemdafærslan, sem hv. 10. landsk. þm. kom með, sterkari, þegar hann sagði, að þarna væru ákveðnir hagsmunir í veði. Og þá er að athuga það, hvort hún er það sterk, að taka eigi tillit til hennar. Ég held hún sé ekki það sterk. Ég tel, að augnablikshagsmunir, sem þarna kynnu að vera, ef til vill meira eða minna misskildir, séu ekki eins sterkir og framtíðarhagsmunirnir, hættan, sem af þessu getur hlotnazt fyrir heilsu og líf manna.

Hv. þm. Borgf. sagði, að við yrðum að treysta á heimilisfeðurna í þessum efnum. Ég minntist áðan á aðstæðurnar í þessum efnum, og það hefur ekki verið regla Alþingis út af löggjöf, sem sett hefur verið viðvíkjandi vinnuöryggi og öllu mögulegu slíku, að treysta eingöngu á þá, sem hafa atvinnureksturinn með höndum, að þeir sjái um þetta. Þvert á móti. Það hefur verið sett mjög sterk og ákveðin löggjöf um mikið eftirlit og annað slíkt í þessu sambandi. Alþingi hefur ekki álitið, að það gæti treyst þeim, sem atvinnureksturinn hefðu með höndum, þegar hagsmunir þeirra væru annars vegar, það yrði þvert á móti að skerast í leikinn með tilliti til hagsmuna almennings og þjóðarinnar og kynstofnsins.

Hv. þm. Borgf. sagði, að með svona ákvæði mundu verða skertir starfskraftar í sveitinni. Ég vil ekki trúa því að óreyndu, að það sé svo mikið um vinnu barna á þessum dráttarvélum, að það væru skertir starfskraftar í sveitinni, svo að um munaði. Og ég vil minna á í því sambandi, að þegar reiknuð er út vinna í sveitinni samkvæmt því samkomulagi, sem verið hefur á síðustu 15 árum milli verkalýðssamtaka og bændasamtaka, þá er reiknað með vinnunni sem vinnu, sem fullorðinn maður vinnur og reiknað er Dagsbrúnarkaup fyrir, þannig að það er gengið út frá, að þær afurðir, sem þar séu framleiddar, séu framleiddar með vinnu fólks, sem fær fullt kaup. Ég held þess vegna, að hér verðum við alveg fyllilega að taka fyrst og fremst tillit til þess, að okkur ber í þessu sambandi að tryggja, að á þessum tækjum séu ekki látnir vinna unglingar, sem enn þá eru raunverulega börn, unglingar innan 14 ára aldurs, og það sé rétt að setja á löggjöf um það.

Við höfum sett margháttaða löggjöf um barnavernd og gengið þó ekki enn þá nærri því eins langt í þeirri löggjöf og flestar okkar nágrannaþjóðir, og þurfum við vafalaust að athuga það vel að fara að ganga þar lengra. En yfirleitt hefur það þó verið svo, að sú vinna, sem börn hafa unnið hér, hefur verið vinna við ein af þeim gamaldags, frumstæðu tækjum. Það hefur ekki þótt rétt að tengja vinnu barnanna eða unglinganna innan þess aldurs, sem hérna er talað um, við vélarnar. Og við vitum það ósköp vel, að þannig hefur það líka verið alls staðar erlendis, þar sem barátta hefur orðið út af barnavinnunni, að hún hefur fyrst og fremst komið upp í sambandi við verksmiðjurnar, vélarnar og annað slíkt, en barnavinna aftur á móti við allar þær tegundir starfs og atvinnu, sem frumstæðar eru, heldur áfram að viðgangast í einu eða öðru formi, þó að hún sé óvíða eins mikil og hérna í okkar nágrannalöndum.

Ég vil þess vegna eindregið mælast til þess við hv. þdm., að þeir samþykki þá till., sem flutt er af hv. 6. landsk. þm. á þskj. 283. Ég álít, að það sé bæði rétt og nauðsynlegt, að það sé gert, og það sé alger misskilningur, að með því móti væru skertir nokkrir réttmætir hagsmunir nokkurra aðila, en hins vegar þvert á móti séð fyrir því að vernda lítilmagnann, hafa vit fyrir þeim, sem í augnabliksþörfinni og nauðsyninni kynni að hætta við að hugsa ekki nóg um framtíðina í þessum efnum.