10.03.1958
Neðri deild: 63. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

18. mál, umferðarlög

Einar Olgeirsson:

Hv. 1. þm. Rang. virtist nú hafa tilhneigingu til þess að fara að taka hér allan rekstur landbúnaðarins til endurskoðunar eða leggja fram rök, sem ættu raunverulega að leiða til þess. Hann sagði, að bæði bóndinn og kona hans ynnu raunverulega kauplaust svona og svona mikið. Og ég vil segja, að það væri vafalaust út af fyrir sig mjög nauðsynlegt að taka rekstur íslenzks landbúnaðar til endurskoðunar, einmitt út frá þeim þrældómi, sem á sér stað hjá fjölmörgum af einyrkjum. En hann sagði þetta vegna þess, að honum þótti ég fara skammt, þegar ég talaði um, að það væri reiknað Dagsbrúnarkaup. Ég held satt að segja þvert á móti. Ég held einmitt, að það sexmannanefndarsamkomulag, sem bændur og verkalýðssamtökin hafa gert sín á milli, hafi verið bændum til stórkostlegra hagsbóta, og ég held, að það verðlag á landbúnaðarafurðum, sem nú er, út frá því kaupgjaldi, eins og það hefur verið reiknað, sé bændum miklu hagstæðara, en frjáls verðmyndun mundi hafa verið. Ég held, að þetta samkomulag hafi skapað öryggi fyrir íslenzkan landbúnað, sem fjöldi bænda á ekki við að búa í öðrum löndum. Hins vegar eru þau vandræði í sambandi við þetta, að það hefur ekki gengið eins fljótt og eins vel og þeir, sem stóðu fyrir sexmannanefndarálitinu á sínum tíma, vonuðust eftir að koma rekstri landbúnaðarins á mjög hagrænan grundvöll, og það er stórkostlegt vandamál í íslenzkum þjóðarbúskap.

Það er engum vafa bundið, að einmitt t.d. hér sunnanlands á sér stað víða mjög mikill stórrekstur, þar sem vélarnar og þeirra afköst fá til fulls að njóta sín og þar sem líka eru notaðir fullorðnir menn til vinnunnar, þar sem ræktun er orðin nógu mikil og aðstæðurnar nægilega góðar og markaðurinn nógu nálægur til þess, að hin miklu afköst þessara véla nýtist sem bezt. En það, sem svo skapar erfiðleikana hins vegar, einmitt eins og hv. 1. þm. Rang. kom inn á, er allur þorri smábúanna í þessu sambandi, m.a. kannske vegna þess, að það hefur ekki verið skipulögð rétt verkaskipting í íslenzkum þjóðarbúskap viðvíkjandi mjólkurframleiðslunni annars vegar og kjötframleiðslunni hins vegar og viðvíkjandi stærð búanna, sem miðað væri við, og gerðar ráðstafanir til þess að skapa þá bústærð, sem hentust væri, til þess að geta borið það kaup, sem eðlilegt væri og réttlátt að reikna þeim manni, sem vinnur. Það er vitanlegt, að með sexmannanefndarsamkomulaginu var farið inn á þá leið að reyna að skapa réttlæti í þessum hlutum í stað frjálsrar verðmyndunar, láta lögmál réttlætis ráða í staðinn fyrir framboð og eftirspurn. Það er oft erfitt í þjóðfélagi, þar sem framboð og eftirspurn annars marka hlutina. Það þýðir, að þá þarf af mannanna hálfu að vinna vitandi vits að því að gera reksturinn sem hagrænastan, sem praktískastan, samtímis því sem reynt sé að halda þessum grundvelli réttlætisins. Ég held þess vegna, að út af þeim hugleiðingum, sem hv. 1. þm. Rang. kom með í þessu efni, hafi ekki þarna verið hallað á bændur, út frá þeirri aðstöðu, sem ella hefði verið, ef frjálst framboð og eftirspurn hefði átt að ráða í þessum efnum í staðinn fyrir það fyrirkomulag, sem tekið var upp með sexmannanefndarsamkomulaginu. Ég held, að þeim hafi verið skapað meira öryggi með þessu móti. Hitt er svo aftur á móti annað mál og viðtækara, hvaða áhrif þetta hefur haft fyrir þjóðarbúskapinn og hve praktískt hann hefur verið rekinn sem heild þess vegna. En það mundi leiða of langt að fara að taka þau mál inn öll til umræðu í sambandi við það mál, sem hérna liggur fyrir. Ég held, að það sé rétt fyrir okkur að halda okkur fyrst og fremst við það mál, sem hérna er verið að ræða um, og þá sérstaklega í þessu sambandi þá brtt., sem hv. 6. landsk. flytur á þskj. 283.

Út frá þeirri brtt. og andspyrnu hv. 1. þm. Rang. og hv. þm. Mýr. við hana hafa þeir talað hér nokkur orð um, hve nauðsynlegt börnunum sé að fá að nota orku sína og fá að læra að vinna. Það hefur enginn verið að tala á móti slíku hér, og það hefur verið lögð áherzla á það einmitt, hverja þýðingu það hefur fyrir unglinga að komast í tengsl við framleiðsluna, bæði til lands og sjávar. En það hefur verið og er með þessari till. reynt að setja skorður fyrir því, að slík vinna sé notuð í sambandi við þessar stóru og miklu vélar. Vinnan, sem menn komast í samband við, þegar unglingar vinna að landbúnaði og við sjávarútveg, er fyrst og fremst og á að vera sú frumstæða vinna, þar sem þeir standa sem allra mest svo að segja í sambandi við náttúruna sjálfa og aðferðirnar við að vinna í henni, án vélanna sem milliliðs, og það er það, sem er heilbrigðast. Það er í því, sem uppeldisáhrifin fyrst og fremst eru fólgin. Það er í því, sem sambönd við okkar atvinnuvegi koma til með að hafa mesta þýðingu fyrir börnin, að þau skilji, hvað þarna er um að ræða. Það er ekki verið að setja takmörkin með þessu við þeirri vinnu, sem alltaf er mikið um í sveitinni. Það er ekki komið svo, að öll vinna í sveitinni sé vélræn, — langt, langt frá því, þannig að allt, sem talað er um þá vinnu, sem menn hafi gott af að vinna og krakkarnir hafi gott af að alast upp við, sú vinna heldur áfram. Til allrar hamingju er það ekki orðið svo, liggur mér við að segja, að öll vinna í sveitinni sé orðin tóm vélavinna, enda er ég hræddur um, að ef svo væri komið, að Suðurlandsundirlendið væri orðinn einn sléttur flötur, þá mundu ekki börn vera látin vinna þar. Það er vegna þess að íslenzkur landbúnaður er enn þá að miklu leyti frumstæður, að það er hægt að senda börnin okkar í sveit með mikilli þýðingu fyrir sálarlíf barnanna, fyrir samband þeirra við vinnuna, við náttúruna, við okkar þjóðhætti. Ef búið væri að gera allan landbúnaðinn að einni samfelldri flöt, þar sem uppskorið væri með vélum, sem unnið væri við svo að segja allan sólarhringinn, þá væri sveitarvinnan búin að missa þá þýðingu, sem hún hefur fyrir okkar þjóðlíf núna, þá væri hún orðin eins og hver önnur vélavinna, eins og það, sem við erum að skapa annars staðar. Það eru ekki börn send í sveit til slíks. Og mennirnir, sem sjálfir ynnu þarna, mundu varast að láta börnin sín vera að flækjast þar fyrir, þegar þessi stóru tæki brunuðu fram og aftur um þessa endalausu akra eða engi eða tún, sem þar væru.

Nei, einmitt hollustan, nauðsynin, sem er á því fyrir m.a. kaupstaðabörnin að fá að koma í sveit, fá að vera þar, það er vegna þess, að enn þá er okkar landbúnaður það frumstæður, að þau komast í það eðlilega samband við vinnuna, náttúruna, okkar þjóðlíf, okkar þjóðhætti, eins og það hefur verið næstum því í þúsund ár. Það er það, sem gefur því uppeldisgildi.

Það er það ægilega við þróun vélanna, þar sem þær byrja að setja sitt mark á atvinnuvegina, að þær útrýma öllu þessu frumstæða og um leið uppeldisáhrifunum af því, vegna þess að þær slíta tengsl, sem annars eru svo að segja milli mannsins og náttúrunnar.

Það er nú viðvíkjandi því, sem þessir tveir hv. þm. voru að ræða um uppeldisgildið í þessum efnum. Uppeldisgildið í sambandi við, að börnin fari í sveitina, fái að nota sína orku, og börnin, sem alast upp í sveitinni, fái að finna, að þau séu foreldrum sínum til gagns og annað slíkt, allt saman þetta helzt. En það er aðeins á einu sviði verið að setja takmarkanir, það er þar sem vélarnar eru að brjótast inn í þessa frumstæðu atvinnuhætti og þar sem þessi vinna barnanna á þess vegna ekki heima. Það á að takmarka það þar, og það er engin tilviljun, að þetta er þróun, sem gengur fyrir sig í öllu mannfélaginu.

Maður rær á árabát gjarnan með pabba sínum og fer að fiska, en maður fær ekki að stjórna vélinni í bátnum, þegar vélin er sett í hann. Það eru tengslin við það frumstæða í þessu, við þá frumstæðu atvinnuhætti, sem gera börnunum eðlilegt að starfa. Það eru vélarnar, sem breyta þessu, og þær eiga ekki við börnin, hvorki við þeirra sálarlíf né skapa þau tengsl, sem þarna þurfa að vera, til þess að þau hafi gott af því.

Hv. þm. Mýr. tók svo djúpt í árinni, að hann sagði, að dráttarvélar yrðu ekki notaðar, nema unglingarnir færu með þær. Það er að vísu nokkuð mikið vafalaust um það, að unglingarnir fari með þetta í sveitunum, en ég held, að þetta sé of djúpt tekið í árinni. Síðan bætti hann því við, að það yrði aldrei það eftirlit, að það væri hægt að framkvæma þetta.

Ég held, að hann vantreysti íslenzkum bændum. Ég efast ekki um, að ef hér á Alþingi væri samþykkt ákvörðun um þetta efni og sett í lög, þá mundu íslenzkir bændur virða það. Það vei treysti ég þeirra löghlýðni.

Hv. 1. þm. Rang. spurði, hvort slysin mundu vera nokkru tíðari hjá unglingum, en hjá fullorðnum. Út af fyrir sig væri það nú ekki röksemd í þessu, jafnvel þó að þau kynnu að vera jafnalgeng eða minna algeng hjá unglingunum, — fyrir utan náttúrlega, að ég býst ekki við, að neinar endanlegar skýrslur liggi þarna fyrir. Álit Slysavarnafélagsins var hins vegar það, með leyfi hæstv. forseta, það segir í bréfi til hv. 6. landsk. þm.:

„Þá leyfir Slysavarnafélag Íslands sér að vekja eftirtekt hins háa Alþingis á því, hvað það hefur verið áberandi síðustu árin, að mörg börn hafa slasazt við meðferð vélknúinna búnaðartækja, bæði vegna þess, að allt of ungum börnum hefur verið trúað fyrir stjórn tækjanna og börnum leyft að sitja á tækjum, þegar þau hafa verið í notkun, og teljum vér því nauðsynlegt, að í lögum verði ákvæði, sem leggi á þetta sterkar hömlur, að börn verði látin stjórna eða sitja uppi á opnum, óvörðum landbúnaðartækjum, jafnvel þótt heima á sléttum túnum sé.“

Slysavarnafélag Íslands virðist líta svo á, að þetta sé því miður allalgengt. Hv. 1. þm. Rang. undirstrikaði, að meðferð dráttarvéla væri alltaf áhættusöm, og það er rétt hjá honum. Það er einmitt röksemd í þá átt, að það beri að hindra, að unglingar vinni að þessu.

Í bréfi öryggismálastjóra til hv. 6. landsk. er undirstrikuð sú skoðun hans, með leyfi hæstv. forseta: „Það mun þó því miður vera allalgengt hér á landi, að drengir allt niður í 9–10 ára aldur séu látnir aka dráttarvélum.“ Og svo vitnar hann í skrifstofustjóra í tæknideild sænska öryggiseftirlitsins, sem álítur, að það ætti ekki að leyfa yngri börnum en 15 ára að aka dráttarvélum.

Hv. 1. þm. Reykv. skaut því inn í, þegar hv. 1. þm. Rang. var að tala, hvort það gæti ekki náðst samkomulag um 12 ára takmark í þessum lögum. Og hv. 1. þm. Rang. tók þannig undir það, að honum fyndist það a.m.k. mjög til athugunar, en bætti svo við, að hann áliti, að helzt ætti þetta bara að vera undir mati húsbænda. Það hefur nú hingað til ekki verið siður Alþingís að láta allt svona vera undir mati húsbænda. Alþingi hefur sett sín mjög ákveðnu lög í þessum efnum, og álit t.d. Slysavarnafélagsins bendir í þá átt, að það sé ekki einhlítt að hafa þetta undir mati húsbænda.

Nú er að vísu sá galli á, ef samþykkt væri t.d. 12 ára takmark þarna, að þá væri Alþingi raunverulega að löggilda á vissan hátt, að unglingum væri leyft að vinna svona, t. d. milli 12 og 15 ára, beinlínis barnavinnu, sem út af fyrir sig er mjög leiðinlegt fyrirbæri. Engu að síður er það engum efa bundið, að þegar segir í áliti Slysavarnafélagsins og öryggismálastjóra, að það sé allt of algengt, að jafnvel 9 og 10 ára börn vinni á svona tækjum, þá álít ég að eðlilegt væri, að athugað væri og menn fengju tækifæri til þess að hugsa sig vei um, hvort samkomulag væri fáanlegt um að setja þarna 12 ár í staðinn, og ég mundi vilja mælast til þess við hæstv. forseta, að umr. um þetta mál yrði núna frestað og þm. gefið tækifæri til þess fyrir framhald umr. að athuga, hvort þeir gætu ef til vill komið sér saman um einhverja slíka tillögu.