15.04.1958
Efri deild: 78. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1335)

167. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum og kauptúnum

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., flytur samgmn. að beiðni samgmrn., og ætti að vera óþarft að fara um það mörgum orðum. Það fylgir með mjög greinargott bréf frá Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli sem fskj. á þskj. og skýrir afstöðu leigubifreiðastjóranna til þessa máls, en tildrög þess eru, eins og í grg. segir, þau, að á s.l. ári eða nánar tiltekið með lögum nr. 40 29. maí 1957 er ákveðin hámarkstala leigubifreiða í kaupstöðum, en í þeim eru engin refsiákvæði. Hins vegar þykir rn. eftir ósk Bifreiðastjórafélagsins Hreyfils rétt og eðlilegt, að í þessi lög verði sett ákveðin refsiákvæði, þar sem gert sé ráð fyrir sektum frá 100–10000 kr., nema þyngri refsing liggi við í öðrum lögum. Eins og fram kemur á þskj., mælir n. einróma með samþykkt frv, og vonast til, að d. geti orðið sammála um það.