14.04.1958
Neðri deild: 77. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1527 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)
95. mál, sala jarða í opinberri eigu
Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):
Herra forseti. Þessu máli um sölu þriggja jarða í Eyrarbakkahreppi var frestað við 2. umr. samkv. ósk frá hv. 1. þm. Reykv., og nefndin hefur nú athugað málið nánar og byrjaði á því að fara sjálf austur á Eyrarbakka og kynna sér allar aðstæður þar með eigin augum. Það var síðasta dag, sem þingið sat fyrir páskana. Síðan hefur ekki verið hægt að koma á nefndarfundi, vegna þess að einn nm. hafði verið fjarverandi og annar mun hafa verið lasinn, svo að nefndin er ekki enn búin að afgr. málið frá sér, og ég hef þess vegna ekki umboð til þess að tala hér fyrir hennar hönd. — Ég vildi aðeins geta þessa, og ég vildi um leið óska þess og tel það á engan hátt saka, þó að málið fengi að fara áfram til 3. umræðu.