06.05.1958
Efri deild: 89. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)
95. mál, sala jarða í opinberri eigu
Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 428, um sölu nokkurra jarða í opinberri eigu og um eignarnám erfðafesturéttinda, er flutt í Nd. og komið hingað til hv. Ed.
Þetta frv. var — og fleiri e.t.v. samhljóða — flutt í byrjun í Nd., t.d. frv. um að selja Eyrarbakkahreppi land jarðanna Einarshafnar, Skúmsstaða og Stóru-Háeyrar í Eyrarbakkahreppi með hjáleigum og um eignarnámsheimild á erfðafesturéttindum. Þetta frv. var flutt í Nd., eingöngu um þetta atriði, á þskj. 184.
Þetta frv. tók nokkuð miklum breytingum í Nd. á þann hátt, að samþ. var eða steypt í eitt frv., sem nú liggur hér fyrir á þskj. 428, heimildum fyrir ríkisstj. til þess að selja fleiri ríkisjarðir og fleiri aðilum. Eins og það liggur nú fyrir, er þetta heimild fyrir ríkisstj. að selja Eyrarbakkahreppi í Árnessýslu allt land jarðanna Einarshafnar, Skúmsstaða og Stóru-Háeyrar í Eyrarbakkahreppi með hjáleigum, að undanskildum eignarlóðum, sem þegar hafa verið seldar úr landi Stóru-Háeyrar. Þetta er nr. 1 í 1. gr. Og í öðru lagi er heimild til að selja Raufarhafnarhreppi allt land jarðarinnar Raufarhafnar. Í þriðja lagi að selja Óskari Hjartarsyni á Grjóteyri í Andakílshreppi í Borgarfjarðarsýslu jörðina Skógarkot í Andakílshreppi. Í fjórða lagi að selja hreppsnefnd Eyrarsveitar jörðina Hrafnkelsstaði í Eyrarsveit. Og í fimmta lagi að selja Þorvarði Einarssyni á Bakka í Stykkishólmi jörðina Kiðey í Stykkishólmshreppi.
Þá eru sérákvæði einnig í 1. gr. hvað snertir 1. og 2. lið, þ.e. sölurnar til Eyrarbakkahrepps og Raufarhafnarhrepps, að náist ekki samkomulag um söluverð landsins, skal meta það með gerðardómi, þar sem kaupandi og seljandi tilnefna sinn hvorn aðilanna og sýslumaður Árnessýslu nefnir oddamann fyrir Raufarhafnarhrepp.
Hvað Eyrarbakkahrepp snertir, þá er tiltekið, að andvirði landanna skuli hreppnum heimilt að greiða á 25 árum, en hvað Raufarhafnarhrepp snertir, þá er sagt, að greiðsluskilmálar skuli vera hagkvæmir, sbr. 4. gr. laga nr. 64 27. júní 1941, og einnig tiltekið, að hreppurinn má ekki selja jörðina eða hluta hennar nema með samþykki ríkisstj.
Þá er einnig tekið fram, að þarfnist ríkið eða ríkisstofnanir byggingarlóða úr landinu undir opinberar byggingar, skal því heimilt að kaupa þær og þá við sama verði hlutfallslega og Eyrarbakkahreppi og Raufarhafnarhreppi var gert að greiða fyrir landið.
Þá er um 3. og 4. og 5. tölulið sagt, að söluverð þeirra jarða skuli ákveðið af dómkvöddum mönnum.
Í 2. gr. er ákvæði um það, að hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps eða Raufarhafnarhrepps er heimilt að taka eignarnámi erfðafesturéttindi í eignarlandi hreppsins, eða hreppanna, ef nauðsyn krefur vegna skipulags.
Þetta er í stuttu máli innihald þessa frv., eins og það liggur hér fyrir.
Í grg., sem fylgir frv, um söluna til Eyrarbakka, eins og það var flutt í byrjun, eru raktar ástæður fyrir ósk hreppsnefndarinnar, — en frv. var flutt samkvæmt hennar ósk, — að hreppurinn fái land umræddra jarða keypt. Á landi þessara jarða er öll byggð þessa þorps, þ.e.a.s. Eyrarbakka. Og á Eyrarbakka eru nú 500–600 íbúar.
Ég skal ekki fjölyrða um rök hreppsnefndarinnar fyrir þessu eða þau rök, sem hún færir fyrir því, að það sé eðlilegt, að hreppurinn fái þessi umræddu lönd keypt. En ég vil taka undir það, sem þar er sagt, að bæjum og þorpum sé nauðsynlegt að eiga land það, sem byggð þeirra stendur á. Skipulag bygginga, gatnagerðar og annarra mannvirkja í slíkum þorpum verður því aðeins vel framkvæmt eða framkvæmt svo, að í lagi sé, að viðkomandi hreppsnefndir og bæjarstjórnir hafi fullt umráð og helzt eignarrétt yfir landi því, er skipuleggja skal. Allar lóðir og lendur innan hinna skipulögðu svæða bæjanna og í næsta nágrenni þeirra hækka mjög í verði við framkvæmdir, sem bæjarfélögin gera á sínum svæðum, t.d. skipulagningu bygginga, gatnagerðar, lokræsa o.s.frv. Það er eðlilegt, að verðhækkanir, sem verða vegna þessara framkvæmda bæjarfélaganna, komi þeim sjálfum að notum í framtíðinni.
Þetta, sem ég nú hef minnzt á í þessu sambandi, á við söluna á jörðum eða löndum til Eyrarbakkahrepps og Raufarhafnarhrepps. Þarna er um tvö gömul þorp að ræða, sem við nýja skipulagningu hljóta að breytast mjög mikið. Þar eru vitanlega gamlar byggingar, sem verða að hverfa fyrir öðrum nýrri, öðruvísi staðsettum, þar eru lagðar nýjar götur, sem gamlar byggingar verða að víkja fyrir, o.s.frv. Þetta ýtir allt undir það, að nauðsynlegt sé fyrir bæina að eiga þessi lönd, sem þarna er um að ræða.
Við meðferð þessa máls hefur verið leitað umsagna jarðeignadeildar ríkisins, landnámsstjóra og í sumum tilfellum Búnaðarfélags Íslands, t.d. um frv. um söluna til Eyrarbakkahrepps og Raufarhafnarhrepps. Þeim var vísað til stjórnar Búnaðarfélagsins, sem síðan lagði málið fyrir búnaðarþing, nýafstaðið, og segja má, að umsagnir allra þessara aðila væru jákvæðar, þannig að þeir mæltu með því, að þessum aðilum, sem þarna er um rætt, verði seldar þessar jarðir og þessi lönd, sem þarna um ræðir. Þó skal ég geta þess, að jarðeignadeild ríkisins leggur til, að við sölu Eyrarbakka verði undanskilið vikurnám, sandtaka og malartekja, sem þar á sér stað í fjörunni eða í sjávarmálinu á milli ósa Ölfusár og Eyrarbakka, en á þessu svæði á hreppurinn sjálfur nú þegar nokkurt land, þar sem það fylgir jörð, sem hreppurinn keypti fyrir nokkuð mörgum árum, þ.e.a.s. Óseyrarnesi. En á landi þessara jarða, sem nú er talað um að Eyrarbakkahreppur fái keyptar, þ.e. land jarðarinnar Einarshafnar, Skúmsstaða og Stóru-Háeyrar, á því landi stendur, eins og ég sagði áðan, byggð þorpsins, og á því landi er einnig þessi vikur- og sandtaka, sem hér um ræðir.
Jarðeignadeild ríkisins mælti með því, að hreppnum yrðu seldar þessar jarðir, þó með því skilyrði, að vikurnámið yrði tekið undan. Ég vil geta þess, að þarna er um sand og víkur að ræða, sem er notaður í steypu, og hefur verið töluvert af þessu efni flutt hingað til Reykjavíkur og selt hér til bygginga. Þá má geta þess, að þarna er ekki um fast sandnám að ræða, heldur er það þannig, að Ölfusá flytur mikið af vikri til sjávar. Þessi rekavikur flögrar svo um hvert flóð frá árósnum austur með ströndinni, og verður að sæta lagi með lágsjávuðu til þess að ná í hann og flytja hann undan sjó. Vikurinn gerir ýmist að fara eða koma, og verður alltaf að sæta færi til þess að bjarga honum undan sjó. Og menn á Eyrarbakka, bílstjórar, sem hafa haft töluverða atvinnu af því að flytja vikurinn hingað á bílum sínum, — þegar þeir hafa farið hingað til Reykjavíkur til þess að sækja vörur, hafa þeir flutt vikurinn á bílunum, sem annars hefðu verið tómir, — og þeir hafa haft töluverða atvinnu af þessu og hagað því á þann hátt, að þeir hafa notað hvert tækifæri með lágsjávuðu og flutt vikurinn undan sjó og bjargað honum og tekið hann svo þaðan, þegar heppilegt hefur verið og þeir hafa getað flutt hann á ákvörðunarstað.
Á meðan málið var til meðferðar í hv. Nd., fóru nm. landbn. ásamt nokkrum fleiri til Eyrarbakka til þess að kynna sér þessar aðstæður, og eftir að hafa kynnt sér aðstæðurnar og skoðað þetta svæði, þá lagði meiri hl. landbn. Nd. til, að hreppnum yrðu seldar jarðirnar skilyrðislaust, þ.e.a.s., að ekki yrði vikurtakan tekin undan, og þannig liggur frv. nú fyrir.
Þá vil ég aðeins minnast á þriðja liðinn í 1. gr., þ.e. að selja Óskari Hjartarsyni á Grjóteyri í Andakílshreppi í Borgarfjarðarsýslu jörðina Skógarkot í Andakílshreppi.
Það hefur verið leitað, eins og ég sagði áðan, umsagnar sömu aðila og ég nefndi um þessa sölu, og hafa þeir mælt með henni. Þá er kunnugt um, að fjórir af fimm hreppsnefndarmönnum Andakílshrepps hafa einnig skrifað um það, að þeir mæltu með þessari sölu, en skólastjórinn á Hvanneyri hefur skrifað og mótmælt, að þessi jörð yrði seld. Hann færir þar til nokkrar ástæður, og er sú helzt, að hann álítur þetta land, land Skógarkots, sem er eyðijörð, vel fallið til að beita á það nautgripum, væri það girt af, enda hefur komið til orða að leigja það þá Nautgriparæktarsambandi Borgarfjarðar- og Mýrasýslu til þeirra nota.
Málið hefur verið til athugunar hjá landbn. þessarar hv. d., og leggur nefndin til, að þessi liður sé einnig samþykktur eins og hann er í frv. Þó hefur hv. 11. landsk. þm. sérstöðu um þennan lið frv.
Ég vil þá vísa til nál. n. á þskj. 464. Þar segir, að nefndin hafi athugað frv. og leggur til, að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir. Einn nm., hv. 11, landsk., hefur þó fyrirvara um einn lið þess. M.ö.o.: með þessari undantekningu leggur n. til, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir.