20.05.1958
Neðri deild: 101. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1577 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)
134. mál, sveitastjórnarkosningar
Frsm. (Pétur Pétursson):
Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Ed. Sú meginbreyting, sem þar var gerð á því, er það, að í staðinn fyrir, að í frv. er gert ráð fyrir, að almennar bæjarstjórnar- og hreppsnefndarkosningar skuli fara fram fjórða hvert ár, síðasta sunnudag í maímánuði, er þessu atriði breytt, þannig, að gert er ráð fyrir, að kosningar í kaupstöðum og kauptúnum fari fram síðasta sunnudag í maímánuði, sem ekki ber upp á hvítasunnudag, en aðrar hreppsnefndarkosningar síðasta sunnudag í júnímánuði.
Allshn. hefur rætt um frv. og athugað umsögn hagstofustjóra og stjórnar Sambands íslenzkra sveitarfélaga og mælir einróma með því, að það verði samþykkt eins og það liggur nú fyrir.