20.05.1958
Neðri deild: 101. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
172. mál, aðstoð við vangefið fólk
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Málflutningur hv. 2, þm. Reykv. var nokkuð sérkennilegur að því leyti, að hann virðist vera algerlega sammála því, sem segir í nál. um, að þessi tegund skattlagningar, þar sem skattstofninn er fenginn einstöku félagi, sé mjög óæskileg, og hann hafði mjög sterk orð um það, að þetta væru þvingunarskattar og fleira slíkt. En till., sem hann flytur í málinu, er sú að láta ekki við sitja eða berjast á móti þessu, sem hann telur vera þvingunarskatt, heldur flytur hann brtt. um það, að við skulum þá setja á þrjá þvingunarskatta í einu. Þannig snýr hann algerlega við, vegna þess að hann hefur dregið að minni hyggju rangar ályktanir af meðferð þessa máls.
Það var skoðun hv. þm., að nál. og brtt. n. væru til þess eins að breiða yfir nafn og númer, eins og hann orðaði það. Ég verð að fullvissa hann um, að svo er ekki. Hann virðist alls ekki geta séð, að það væri nokkur möguleiki á öðru, en að félmrh., sem fer með þessi mál, mundi þegar gefa út reglugerð skv. þessum lögum, ef samþykkt yrðu, og ánafna umræddu Styrktarfélagi vangefinna alla þessa peninga. En ég vil benda hv. þm. á, að það eru fleiri, en þetta félag, sem starfa á þessu sviði, og það er fyrst og fremst ríkið sjálft, sem er til þess skyldugt skv. lögum, sem búin eru að vera í gildi liðlega tvo áratugi, að reisa hæli og skóla fyrir þetta fólk. Og ég vil benda honum á það, að félmrh., hver sem hann er hverju sinni, — og geri ég ráð fyrir, að hann sé, eins og oftast mun hafa verið, heilbrmrh. líka, — sjái til þess, að byggt verði á ríkisins vegum hæli fyrir þetta fólk. Ég vænti þess, og við væntum þess í nefndinni, að þessar skyldur skv. lögum, sem eru búin að vera lengi í gildi, muni toga nokkuð á móti þeirri tilhneigingu, að ráðherrar gæfu út reglugerð, þar sem féð væri allt ánafnað þessu nýja félagi, og þeir muni að ráði þeirra manna, sem ríkið hefur í þjónustu sinni í heilbrigðismálum, meta það vandlega hverju sinni, hvernig þeir veita fé úr þessum sjóði. Sé ég enga ástæðu til þess, að við getum ekki treyst því, þar sem þessir aðilar eiga í hlut, að fénu verði varið á þann hátt, sem hverju sinni er skynsamlegast og bezt fyrir þetta verkefni.
Ég get alveg fallizt á það með hv. þm., að það er ekki æskileg braut að vekja upp einstök mál og stofna til sérstakrar skattlagningar vegna þeirra á milli þess, sem þingið afgreiðir fjárlög. Og mér finnst, að í hvert skipti, sem góð málefni koma fram og eiga að fara hraðbyri gegnum þingið, þá verði hv. þm. að hugsa um það, að þeir hafa eða meiri hluti þeirra við afgreiðslu fjárlaga fyrir örfáum mánuðum orðið að neita mörgum góðum málum um stuðning. En úr því að þetta mál er komið fram og hefur þegar hlotið mikinn stuðning í þinginu með því að fara tiltölulega fljótt í gegnum aðra deildina. með því að það er flutt af mönnum úr öllum flokkum, og svo er sagt, að þeir hafi ráðgazt hver við sinn flokk og tryggt þar stuðning, þá hefur heilbr.- og félmn. kosið þann kostinn að breyta formi þessarar skattlagningar á þann hátt, sem hún telur víðunandi fyrir ríkið, og ég vil endurtaka það, að öll tortryggni hv. 2. þm. Reykv. út af þessari breytingu er algerlega ástæðulaus.
Við höfum í þessari n. fengið um það upplýsingar frá mönnum, sem til þekkja, að það sé mjög almenn skoðun yfirgnæfandi meiri hluta lækna og manna, sem að heilbrigðismálum vinna, að málefni vangefinna séu nú eitt af þeim verkefnum, sem allra nauðsynlegast sé að gera eitthvað fyrir og láta hendur standa fram úr ermum um bætta aðstöðu. Að því leyti eru verulegar röksemdir fyrir því að taka þetta mál út úr öðrum heilbrigðismálum og reyna að gera sérstakt átak á þessu sviði. Ég vil því ítreka það, að það er alger misskilningur hjá hv. þm., að heilbr.og félmn. sé ekki alvara um þessa breytingu og að hún hugsi hana ekki eins og bókstafurinn mælir fyrir um. Það er alls ekki verið að breiða yfir nafn og númer, eins og hann orðaði það. Og með því að sannleikur málsins og fyrirætlanir n. með þessum breytingum eru alls ekki þær, sem hann gerði ráð fyrir, þá er forsendan að brtt. hans í raun og veru fallin. Hann segir: Úr því að við förum út á þessa braut, þá skulum við bæta við fleirum. — En við segjum, að skv. þessum breytingum, sem við leggjum til við lögin, er alls ekki farið út á þá braut, sem frv. upphaflega gerði ráð fyrir. — Skal ég svo ekki hafa um þetta fleiri orð að sinni.