20.05.1958
Neðri deild: 101. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)
172. mál, aðstoð við vangefið fólk
Björn Ólafsson:
Ég ætla ekki að hefja deilur við frsm. nefndarinnar um málið. Það stendur óhaggað, sem ég sagði um meðferð n. á frv. og hver árangurinn verður af því. Ég geri ráð fyrir, að aðalástæðan fyrir því, að nefndarmenn breyttu frv. í þann dularbúning, sem það er nú komið í, sé sú, að mjög hefur verið ýtt á þá úr ýmsum áttum og þeir hafi talið sér þetta einu útgöngudyrnar til þess að koma frv. aftur inn í þingið, að afneita því á þann hátt, en láta svo deildina sjá fyrir því að koma því áleiðis.
Hann sagði, að ég væri heldur ósamkvæmur minni stefnu í málinu, ég væri andstæður þeirri stefnu, en bæri þó fram till. um frekari fjártillög til annarra félaga. Ég sagði í minni ræðu, að ég væri andvígur þessari stefnu, en ef á að knýja það fram, að þessi stefna verði gerð gildandi, þá teldi ég sjálfsagt, að önnur félög væru ekki beitt ranglæti á þann hátt, að öllum væri fyrirmunað að njóta þessarar stefnu öðrum, en því félagi, sem hér er um að ræða. Ég get ekki séð, að hér sé um nokkurt ósamræmi að ræða í afstöðu minni til málsins.