18.04.1958
Efri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1599 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)
169. mál, mannfræði og ættfræðirannsóknir
Frsm. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 381 um breyt. á lögum nr. 30 frá 1956, um skráningu Íslendinga til stuðnings mannfræði- og ættfræðirannsóknum hér á landi, er flutt af menntmn. samkv. beiðni menntmrh.
Efni frv. er í aðalatriðum það að fela prestum þjóðkirkjunnar og viðurkenndum forstöðumönnum trúfélaga hér á landi að skrásetja á sérstök eyðublöð, er þjóðskjalasafnið lætur í té, alla íslenzka ríkisborgara, 15 ára og eldri, er þeir jarðsyngja, og senda síðan æviskrárritara skýrslu þessa árlega.
Tilgangurinn með frv. er sá að fá með þessum hætti sem öruggastar heimildir til þeirrar spjaldskrárgerðar, sem þjóðskjalasafninu er ætlað að framkvæma samkv. lögunum frá 1956.
Menntmn. hefur tekið málið fyrir á tveimur fundum, en ekki lokið athugun á frv., og nefndarmenn hafa óbundnar hendur um brtt. við frv.
Ég sé ekki ástæðu til, að frv. verði vísað til nefndar, þar sem það er flutt af nefnd.