28.05.1958
Neðri deild: 107. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)
169. mál, mannfræði og ættfræðirannsóknir
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Með frv. þessu er gerð sú breyting á l. um skráningu Íslendinga til stuðnings mannfræði- og ættfræðirannsóknum hér á landi, að prestum skal lögð sú skylda á herðar að skrásetja á sérstök eyðublöð nöfn þeirra, sem þeir jarðsyngja, og senda þá skrá æviskrárritara í loks hvers árs. Þetta á að gera til hagræðis við þá skrásetningu Íslendinga, sem æviskrárritari annast.
Menntmn. mælir með því, að frv. þetta verði samþ.